Skessuhorn - 02.09.2020, Síða 31
MIÐVIKUDAGUR 2. SEptEMBER 2020 31
Víkingur Ó. og ÍBV skildu jöfn,
1-1, þegar liðin mættust í 1. deild
karla í knattspyrnu á laugardaginn.
Leikið var í Ólafsvík.
Ólafsvíkingar voru líflegir í upp-
hafi leiks en það voru gestirnir frá
Vestmannaeyjum sem skoruðu á
undan. Á 9. mínútu leiksins átti
Felix Örn Friðriksson góða fyrir-
gjöf frá vinstri, beint á kollinn á
Gary Martin sem var einn og óvald-
aður í teignum og skallaði boltann
í netið.
Heimamenn fengu sín færi til að
jafna í fyrri hálfleiknum. Á 12. mín-
útu átti Indriði Áki Þorláksson gott
skot að marki eftir stungu sendingu
frá Gonzalo Zamorano, en Halldór
páll Geirsson varði vel frá honum.
Á 19. mínútu átti Gonzalo síðan
hörkuskot að marki sem Halldór
varði stórglæsilega.
Heimamenn voru sterkari það
sem eftir lifði fyrri hálfleiks og
náðu að jafna metin á 37. mínútu.
Þorleifur Úlfarsson sendi boltann
á Gonzalo, sem var við vítateigsj-
aðarinn, aðeins til vinstri. Gonzalo
setti boltann yfir á hægri og smurði
honum með fallegu innanfótarskoti
í markvinkilinn fjær. Stórglæsilegt
mark hjá Gonzalo.
tíðindi fyrri hálfleiks voru ekki
öll ósögð, því aðeins mínútu eftir
að heimamenn jöfnuðu fékk Vign-
ir Snær Stefánsson sitt annað gula
spjald fyrir tæklingu rétt utan víta-
teigs. Máttu Ólafsvíkingar því leika
manni færri allan síðari hálfleikinn
og rúmlega það.
Eyjamenn hugsuðu sér gott til
glóðarinnar og sóttu í síðari hálf-
leik, en það voru engu að síður
Ólafsvíkingar sem fengu bestu fær-
in og hefðu getað stolið sigrinum,
manni færri. Besta færi seinni hálf-
leiksins kom á 67. mínútu þegar
Þorleifur sendi boltann beint fyrir
fætur Gonzalo sem átti skot á nær-
stöng sem Halldór varði vel. Rétt
fyrir leikslok fór um Ólafsvíkinga
þegar Jonathan Glenn komst einn
í gegnum vörnina, en Ívar Reynir
Antonsson átti frábæra tæklingu á
hárréttum tíma og kom boltanum
í hornspyrnu. Ekkert varð úr henni
og leiknum lauk með 1-1 jafntefli.
Víkingur Ó. situr í 9. sæti deild-
arinnar með ellefu stig eftir tólf
leiki, stigi á eftir Aftureldingu en
stigi á undan Leikni F. Næsti leik-
ur Ólafsvíkinga er útileikur gegn
toppliði Fram í kvöld, miðvikudag-
inn 2. september.
kgk
Káramenn máttu sætta sig við jafnt-
efli, 2-2, þegar þeir mættu KF í 2.
deild karla í knattspyrnu á laugar-
daginn. Leikið var í Akraneshöll-
inni og þar komust heimamenn
tveimur mörkum yfir, áður en gest-
irnir jöfnuðu. Allt gerðist þetta
áður en flautað var til hálfleiks.
Það var Hilmar Halldórsson sem
kom Kára yfir á 13. mínútu leiksins,
þegar hann fylgdi eftir með skalla
skoti sem hafði verið varið út að
markteigshorni. Á 28. mínútu fékk
Hilmar laglega sendingu inn fyrir
vörnina hægra megin. Hann sendi
fyrir á Guðfinn Þór Leósson sem
hitti boltann ekki alveg nógu vel, en
nægilega til að skila honum í fjær-
hornið og koma Kára í 2-0.
Á 41. mínútu leiksins minnkaði
KF muninn. Þeir náðu góðri send-
ingu í gegn og komust í dauðafæri
sem Dino Hodzic varði vel, en bolt-
inn barst þaðan á Ljubomir Delic
sem skilaði honum í netið. Aðeins
tveimur mínútum síðar náðu gest-
irnir snarpri sókn upp hægri kant-
inn. Boltinn barst á fjærstöngina
á Oumar Diouck sem fór framhjá
einum varnarmanni, sendi boltann
fyrir markið á Sachem Wilson sem
átti ekki í vandræðum með að skora
af stuttu færi.
Gestirnir voru þar með búnir að
jafna á örskömmum kafla undir lok
fyrri hálfleiks. Engin mörk voru
skoruð í síðari hálfleiknum og lykt-
ir leiksins því 2-2 jafntefli.
Kári situr í 8. sæti deildarinn-
ar með 15 stig eftir tólf leiki og er
fjórum stigum á eftir KF, en með
þriggja stiga forskot á Víði. Kári
lék gegn toppliði Kórdrengja í gær-
kvöldi, þriðjudaginn 1. september,
en sá leikur var ekki hafinn þegar
blaðið fór í prentun.
kgk
ÍA fékk skell gegn Haukum, 1-4,
þegar liðin mættust í 12. umferð 1.
deildar kvenna á Akranesi í síðustu
viku. Skagastúlkur hafa ekki fund-
ið taktinn á leiktíðinni og einungis
unnið einn leik í sumar.
Hafnarfjarðarliðið mætti einbeitt
til leiks í Akraneshöllinni, þar sem
leikurinn fór fram. Strax á upphafs-
mínútunum slógu Haukastúlkur
tóninn þegar Sæunn Björnsdóttir
skoraði. Vienna Behnke tvöfaldaði
forystuna á 35. mínútu og leiddu
gestirnir 2-0 þegar gengið var til
hálfleiks.
Haukar héldu uppteknum hætti
í síðari hálfleik og bættu við þriðja
markinu strax á 48. mínútu. Þar
var á ferðinni Ásta Sól Stefánsdótt-
ir fyrir þær rauðklæddu. Vienna
Behnke jók svo forystuna í fjögur
mörk þegar um stundarfjórðungur
lifði af leiknum.
Þær gulklæddu fengu víti á 83.
mínútu og tækifæri til að minnka
muninn sem þær nýttu sér. Erna
Björt Elíasdóttir fór á punktinn og
skilaði knettinum örugglega í netið.
Ekki komust Skagastúlkur nær og
lokaniðurstaðan 4-1 Haukum í vil.
Eftir tapið situr ÍA sem fastast í 7.
sæti deildarinnar með níu stig. Aft-
ur á móti eru Haukastúlkur á blúss-
andi siglingu upp töfluna. Er þetta
fjórði sigur Hafnarfjarðarliðsins í
röð og eru þær rétt á eftir efstu lið-
um í þriðja sæti með 20 stig, einu
stigi á eftir Keflavík og tveimur
stigum á eftir toppliði tindastóls.
Næsti leikur ÍA í deildinni er
gegn Keflavík á Akranesvelli sunnu-
daginn 6. september næstkomandi.
Fyrir þann tíma leikur liðið hins
vegar gegn Breiðabliki í átta liða
úrslitum Mjólkurbikarsins. Bikar-
leikurinn fer fram á Akranesvelli á
morgun, fimmtudaginn 3. septem-
ber. glh/ Ljósm. úr safni/ gbh.
Lið ÍA í knattspyrnu karla fékk
skell gegn Íslandsmeisturunum í
KR þegar liðin mættust í 13. um-
ferð pepsi Max deildar karla í Vest-
urbænum á sunnudaginn. KR vann
fyrri leik liðanna í sumar, 2-1, sem
fram fór á Akranesi svo Skagamenn
áttu harma að hefna gegn Vestur-
bæjarliðinu.
Fyrsta mark leiksins kom strax
á 4. mínútu. Þar var að verki Atli
Sigurjónsson sem náði boltanum af
Aroni Kristófer Lárussyni hjá ÍA og
smurði boltanum með vinstri fæt-
inum upp í fjærhornið.
KR-ingar voru með yfirhönd-
ina að mestu eftir að þeir komust
yfir og sóttu hart að marki Skaga-
manna í kjölfarið. Annað mark KR
kom svo á 39. mínútu. Skagamenn
rétt misstu af marki þegar Ísak
Snær Þorvaldsson skallaði boltann
í þverslána. Í kjölfarið fengu KR-
ingar skyndisókn þar sem Krist-
inn Jónsson átti fantagóða fyrirgjöf
yfir á Atla Sigursjónsson sem skall-
aði boltann í stöngina og inn og KR
2-0 yfir í hálfleik.
Skagamenn komu ákveðnir inn
í seinni hlutann. Strax á 48. mín-
útu náði Stefán teitur Þórðar-
son að minnka muninn fyrir ÍA í
2-1. töluvert fjör færðist í leik-
inn og á 68. mínútu fengu heima-
menn skyndisókn. Kristinn Jónsson
var þar aftur á ferðinni þegar hann
skallaði boltann á pablo punyed
sem náði að skrúfa knöttinn í netið
af löngu færi og jók forskot sinna
manna í 3-1. pablo var svo aftur
á ferðinni á 89. mínútu og klár-
aði leikinn endanlega þegar hann
negldi knettinum í fyrstu snertingu
utan teigs neðst í hornið. Lokastað-
an 4-1 fyrir Íslandsmeisturunum.
ÍA dettur niður um eitt sæti og er
nú í því 8. með 14 stig, jafn mörg
stig og Víkingur R. í sætinu fyrir
ofan og HK í sætinu fyrir neðan.
KR fer upp um sæti og eru nú í því
5. með 20 stig. Efstir í deildinni eru
hins vegar Valsmenn frá Hlíðar-
enda með 28 stig.
Næsti leikur Skagamanna er gegn
HK og fer fram í Kópavogi sunnu-
daginn 13. september.
glh
Snæfellingar máttu sætta sig við
eins marks tap gegn Stokkseyri
þegar liðin mættust í 13. umferð 4.
deildar karla í knattspyrnu. Spilað
var í Stykkishólmi á sunnudag.
Engin mörk litu dagsins ljós í
fyrri hálfleik og var hann frekar
tíðindalítill. Milos Janicijevic í liði
Snæfells nældi sér í rautt spjald á
40. mínútu og neyddust Hólmarar
til að spila leikmanni færri það sem
eftir lifði leiks.
Svipað var upp á teningnum í síð-
ari hálfleik sem var líka heldur tíð-
indalaus. Fyrsta og eina mark leiks-
ins kom á 66. mínútu. Arilíus Ósk-
arsson skoraði fyrir Stokkseyri og
kom þeim félögum í 1-0 og tryggði
sínu liði stigin þrjú.
Snæfellingar sitja í kjallarasætinu
í B-riðli 4. deildar með einungis eitt
stig eftir tíu leiki í mótinu. Stokks-
eyri er aftur á móti í 4. sæti riðilsins
með 14 stig. Efst er lið Kormáks/
Hvatar með 25 stig.
Næsti leikur Snæfells er gegn
Álafossi sunnudaginn 6. sepember
á tungubakkavelli í Mosfellsbæ.
glh/ Ljósm. úr safni/ sá.
Tap hjá Hólmurum
Misstu niður tveggja
marka forystu
Frá leik Kára og KF í Akraneshöllinni.
Ljósm. Knattspyrnufélagið Kári.å
Skellur á heimavelli
Svipmynd úr viðureign ÍA og KR fyrr í sumar. Ljósm. úr safni/ gbh.
Tap gegn meisturunum
Ólafsvíkingar sækja að marki Eyjamanna í leiknum á laugardag. Ljósm. af.
Manni færri
en hættulegri