Skessuhorn - 09.08.2020, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 9. SEptEMBER 202020
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Pennagrein
Hinni árlegu og rómuðu sviða-
veislu Félags sauðfjárbænda í Dala-
sýslu hefur verið aflýst, en hún
hefur verið fastur liður í dagskrá
Haustfagnaðar FSD sem haldinn
er seinni hluta októbermánaðar ár
hvert. Grillveisla haustfagnaðirins
hefur einnig verið blásin af, sem og
dansleikurinn. Þetta kemur fram í
tilkynningu stjórnar FSD, sem birt
var á Facebook-síðu félagsins fyr-
ir helgi. „Stjórninni þykir það eina
rétta í stöðunni að blása af sviða-
veisluna, grillveisluna og ballið
vegna Covid-19 veirunnar,“ seg-
ir þar.
Ástæðuna fyrir þessari ákvörð-
un segir stjórnin vera fjölda- og
nálægðartakmarkanir, en fyrst og
fremst sú algjöra óvissa um það
hvernig ástandið verður í haust.
Vonast stjórnin til að takist að
vinna bug á veirunni og þá verði
hægt að koma enn sterkari og
skemmtanaglaðari inn á næsta ári.
„Við tökum það fram að við reikn-
um með metþátttöku í ljósmynda-
samkeppninni þar sem allir hafa
væntanlega ekkert nema tíma til að
mynda alla hrútana sem eru þemað
okkar í ár,“ segir í léttum dúr í til-
kynningu stjórnar FSD. kgk
Kvenfélag Ólafsvíkur afhenti á
dögunum Heilbrigðisstofnun Vest-
urlands í Snæfellsbæ tvær brjósta-
dælur ásamt fylgihlutum að gjöf.
Voru brjóstadælurnar keyptar fyr-
ir ágóða af skemmtikvöldi sem
kvenfélagið stóð fyrir 7. mars síð-
astliðinn, rétt áður en samkomu-
bann tók gildi. Það var Fanný Be-
rit Sveinbjörnsdóttir ljósmóðir sem
veitti dælunum viðtöku frá Kristínu
Vigfúsdóttur formanni Kvenfélags
Ólafsvíkur. Munu nýju brjóstadæl-
urnar koma sér vel fyrir nýbakað-
ar mæður í Snæfellsbæ enda er dæl-
an sem fyrir var komin til ára sinna.
Á myndinni með þeim Kristínu
og Berit eru Gerður Þórðardótt-
ir, Margrét Vigfúsdóttir og Sól-
ey Jónsdóttir en þær ásamt Katr-
ínu Aðalheiði Magnúsdóttur voru í
fjárfölunarnefndinni sem stóð fyrir
skemmtikvöldinu.
þa
Þeim aðilum sem falin hefur ver-
ið stjórn Sorpurðunar Vestur-
lands hefur því miður ekki tek-
ist að reka urðunarstað félagsins
í Fíflholtum á Mýrum af framsýni
og metnaði að leiðarljósi. Það
þarf því ekki að koma á óvart að
byggðarráð Borgarbyggðar hafi
í júlí lagst gegn aukinni urðun í
Fíflholtum í umsögn sinni um
frummatsskýrslu Sorpurðunar
Vesturlands.
Það sem kom hinsvegar á óvart
voru viðbrögð og yfirlýsingar sem
komu fram á stjórnarfundi hjá
Sorpurðun Vesturlands í fram-
haldinu og Skessuhorn greindi
frá 26. ágúst. Svo langt var geng-
ið að byggðarráð Borgarbyggðar
var sakað um hreppapólitík. Við-
brögðin lýsa væntanlega best van-
þekkingu viðkomandi á starfsem-
inni í Fíflholtum og þeim skaða
sem hún veldur nágrönnum sín-
um, umhverfinu, og lífríkinu á
svæðinu. Niðurstaða fundar-
ins var að kalla eigendur félags-
ins saman þar sem væntanlega á
að sannfæra Borgarbyggð um að
samþykkja aukna urðun í Fífl-
holtum.
Óheft fok úrgangs, ágangur
vargfugla og refa, ásamt ólykt
hafa verið viðvarandi vandamál
í Fíflholtum og virðast síst fara
minnkandi. Í stað þess að bregð-
ast við kvörtunum með markviss-
um og vel ígrunduðum aðgerðum
til úrbóta, þá hefur frekar verið
brugðist við með ýmsum afsök-
unum. Stjórnendur hafa ítrekað
borið því við að hvasst sé í Fífl-
holtum og því fjúki úrgangur, en
ein áhugaverðasta afsökunin kom
þó fram í fyrravor þegar mófugl-
unum var kennt um að sækja í
svæðið og róta því upp. Ekki kom
fram hvort lóan var þar helsti
sökudólgurinn, en hvorki hún né
aðrir mófuglar eru taldir líkleg-
ir til að róta mikið í jarðvegi eða
rusli í ætisleit það best er vitað.
Meðfylgjandi mynd sýnir
ástandið eins og það blasti við
vegfarendum um Snæfellsnesveg
í maí 2020, en á myndinni má sjá
mikið magn úrgangs á og við veg-
girðinguna, þó aðallega plasti af
fjölbreyttum uppruna. Enginn
ætti að efast um að svona ástand
er með öllu óviðunandi og gild-
ir þá einu hvort reynt sé að tína
þann úrgang sem stöðvast næst
urðunarstaðnum. talsverð-
ur hluti þess úrgangs sem fýkur
finnst ekki og veldur langvarandi
mengun á stóru svæði.
Ágangur vargfugla, einkum
hrafna og máva hefur einnig hald-
ið áfram og skipta fuglarnir jafnan
hundruðum enda væntanlega nægt
æti fyrir alla. Ágangur refa í ná-
grenni Fíflholta hefur einnig verið
mikill.
Árið 2008, síðasta árið sem
Borgarbyggð sá sér fært að greiða
grenjaskyttum fyrir alla þá refi sem
þær veiddu í sveitarfélaginu, þá
veiddust 118 refir í hinum gamla
Hraunhrepp og voru það 24 pró-
sent allra refa sem veiddust í Borg-
arbyggð það árið. Því má ljóst vera
að ágangur refa í nágrenni Fíflholta
var mikill og má fastlega gera ráð
fyrir að hann sé það enn þótt opin-
berar tölur liggi ekki fyrir. Varg-
fuglar og refir valda ekki bara
bændum á svæðinu tjóni, heldur
hafa þeir mikil áhrif á lífríkið og þá
sérstaklega á varptíma.
Hér með er skorað á eigendur
Sorpurðunar Vesturlands að marka
sér skýra stefnu varðandi úrgang
og endurvinnslu hans þegar henni
verður viðkomið. Mikilvægt er að
hvetja íbúa og fyrirtæki svæðisins
til að flokka úrgang og gera öllum
það kleyft með þriggja tunnu kerfi.
Markviss stefna og aðgerðir í þess-
um málum munu gera nýtt starfs-
leyfi fyrir Sorpurðun Vesturlands
óþarft eins og kemur nú þegar fram
í frummatsskýrslu félagsins þar sem
reiknað er með að urðun á næsta
ári verði innan við 11.000 tonn sem
rúmast vel innan núverandi starfs-
leyfis sem gerir ráð fyrir urðun á
allt að 15.000 tonnum á ári.
Kæru eigendur, horfið til fram-
tíðar og sjáið til þess að Sorpurðun
Vesturlands verði rekin með sem
minnstum áhrifum á umhverfið og
í sem bestri sátt við nágranna sína.
Það er hægt að gera mun betur en
gert hefur verið til þessa.
Jón Axel Jónsson
Opið bréf til eigenda
Sorpurðunar Vesturlands
Úrgangur, aðallega plast, á og við veggirðingu meðfram Snæfellsnesvegi í maí
2020. Fok á plasti frá urðunarstöðum er óásættanlegt.
Fullt hús í Dalabúð í sviðaveislu á Haustfagnaði FSD síðasta haust.
Ljósm. úr safni/ sla.
Árlegri sviðaveislu
í Dölum aflýst
Kvenfélagið gaf
brjóstadælur á HVE