Skessuhorn - 04.11.2020, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 4. NóVeMBeR 20208
Um fjölda
viðskiptavina í
verslunum
LANDIÐ: Nú er heimilt að
hafa allt að 50 viðskiptavini í
einu inni í lyfja- og matvöru-
verslunum og allt að 10 við-
skiptavini samtímis í öðrum
verslunum, að því gefnu að
hægt sé að hafa a.m.k. tvo metra
á milli einstaklinga sem ekki eru
í nánum tengslum. Um starfs-
menn í þessum verslunum gild-
ir að þeir mega ekki vera fleiri
en tíu í sama rými og samgang-
ur á milli rýma starfsmanna er
óheimill. Öllum er skylt að bera
andlitsgrímu í verslunum. Heil-
brigðisráðherra hefur samþykkt
breytingu á reglugerð um tak-
markanir á samkomum þar
sem fjöldatakmörk í verslunum
eru skýrð. Með reglugerð ráð-
herra eru tekin af tvímæli um
að fjöldatakmarkanir í verslun-
um séu bundnar við fjölda við-
skiptavina, óháð fjölda starfs-
fólks. Að öðru leyti gilda ákvæði
um fjöldatakmarkanir hvað
varðar aðra starfsemi óbreytt,
samkvæmt reglugerð um tak-
mörkun á samkomum vegna
farsóttar. -mm
Samið um
rekstur laugar
HVALFJ.SV: Sveitarstjórn
Hvalfjarðarsveitar samþykkti
á fundi sínum 27. október að
semja við Aldísi Ýr ólafsdótt-
ur um rekstur sundlaugarinn-
ar að Hlöðum næstu þrjú árin,
frá 2021 til 2023. Hún hefur
rekið laugina undanfarin tvö ár
og hafði sóst eftir því halda því
áfram næstu þrjú árin. Sveit-
arstjórn lýsti yfir ánægju sinni
með það; „enda hefur samstarf-
ið og reksturinn verið til fyrir-
myndar undanfarin tvö ár,“ seg-
ir í fundargerð. -kgk
Meiri umferð en í
fyrstu bylgju
RVK: Örlítill umferðarkipp-
ur varð á höfuðborgarsvæðinu í
síðustu viku, þeirri 43. á árinu,
eða 3,1% meiri en í vikunni á
undan. Aftur á móti reynd-
ist umferðin í borginni 19,5%
minni en í sömu viku í fyrra.
Vegagerðin birtir nú vikuleg-
ar umferðartölur af höfuð-
borgarsvæðinu, sem vísibend-
ing um áhrif sóttvarnarreglna
og mismunandi samkomutak-
markana vegna kórónuveirunn-
ar. „Áberandi er að umferðin
dregst minna saman í yfirstand-
andi bylgju faraldursins miðað
við fyrstu bylgjuna í vor,“ seg-
ir í frétt á vef Vegagerðarinnar.
-kgk
Stærsti úflutn-
ingsmánuður
fiskeldisafurða
FISKELDI: Útflutningsverð-
mæti eldisafurða í fiski nam tæp-
um fjórum milljörðum króna í
september. er hér um stærsta
mánuð í útflutningi á eldisaf-
urðum frá upphafi að ræða á
alla mælikvarða. Það er verð-
mæta í krónum talið, verðmæta
í erlendri mynt og í tonnum.
Í krónum talið er um að ræða
182% aukningu frá septem-
ber í fyrra. Aukningin er nokk-
uð minni í erlendri mynt út af
veikingu á gengi krónunnar, en
engu að síður hressileg, eða sem
nemur 144%. Í tonnum talið er
aukningin um 138%. Útflutn-
ingsverðmæti eldisafurða var
6,4% af verðmæti vöruútflutn-
ings alls í september og hefur
sú hlutdeild aldrei áður mælst
hærri. -mm
Sektað fyrir að
greiða undir lág-
markskjörum
LANDIÐ: Miðflokkurinn hef-
ur lagt fram á Alþingi frum-
varp um breytingar á lögum um
starfskjör launafólks og skyldu-
tryggingu lífeyrisréttinda. Birgir
Þórarinsson þingmaður er fyrsti
flutningsmaður, en aðrir flutn-
ingsmenn eru hinir átta þing-
menn Miðflokksins. Í breyt-
ingartillögunni felst að Vinnu-
málastofnun verði veitt heim-
ild til að leggja stjórnvaldssekt
á atvinnurekanda sem vísvitandi
eða af stórfelldu gáleysi greið-
ir launamanni laun eða önn-
ur starfskjör sem eru lakari en
umsamin lágmarkskjör á vinnu-
markaði. Sömuleiðis er lagt til
að atvinnurekendur verði skyld-
aðir til að veita stéttarfélögum
og trúnaðarmönnum aðgang
að gögnum sem upplýsa um
kjör launamanna. „Lögum sem
þessum hafa bæði atvinnurek-
endur og fulltrúar launamanna
kallað eftir [og] hér er brugðist
við því kalli,“ segir í tilkynningu
frá Miðflokknum. -kgk
Sá ekki vinnuvél-
ina fyrir sólinni
AKRANES: Síðastliðinn mið-
vikudag var bifreið ekið á
vinnuvél á Akranesi. Ökumað-
ur hafði blindast af sól og ekki
séð vinnuvélina. Hann fann fyr-
ir eymslum og fór á slysadeild.
Bíllinn var óökuhæfur eftir at-
vikið. -frg
Flugeldar
á safnasvæði
AKRANES: Um kl. 22.00 á
fimmtudagskvöld barst Neyð-
arlínu tilkynning um að verið
væri að sprengja flugelda á safn-
asvæðinu á Akranesi. Lögregla
fór á staðinn og benti sprengi-
fólkinu á að slíkt athæfi væri
stranglega bannað. Að sögn lög-
reglu verður talsvert vart við að
fólk sé að rífa í sundur og breyta
flugeldum. Slíkt er stórhættu-
legt því það breytir eiginleikum
flugeldanna og gerir þá stór-
hættulega. Lögregla benti jafn-
framt á að slíkt hefði haft mörg
alvarleg slys í för með sér. -frg
Sveitarstjórnir Húnaþings vestra,
Dalabyggðar, Strandabyggðar
og Reykhólahrepps hafa sent frá
sér sameiginlega ályktun vegna
áhyggja af lágu afurðaverði til sauð-
fjárbænda. Hefur hún verið send
til sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra, þingmanna Norðvest-
urkjördæmis, atvinnumálanefnd-
ar Alþingis, Bændasamtaka Íslands,
Landssamtaka sauðfjárbænda, af-
urðastöðva landsins og á fjölmiðla.
„Sveitarstjórnir Húnaþings
vestra, Dalabyggðar, Strand-
abyggðar og Reykhólahrepps lýsa
yfir þungum áhyggjum af lágu af-
urðaverði til sauðfjárbænda og
seinagang við birtingu afurða-
stöðvaverðs haustið 2020. Sauðfjár-
rækt er mikilvæg búgrein þessara
sveitarfélaga og ein af forsendum
búsetu í dreifbýli. Í þessum sveitar-
félögum var rúmlega 21% af fram-
leiðslu kindakjöts árið 2019.
Á undanförnum árum hafa orð-
ið ábúendaskipti á þónokkrum
bújörðum í sveitarfélögunum og
yngra fólk með fjölskyldur tekið
við. Þessar fjölskyldur efla samfé-
lagið, styðja við þjónustu ásamt því
að halda uppi atvinnustigi.
Líkt og í öðrum rekstri er mik-
ilvægt að sauðfjárbændur fái við-
unandi verð fyrir sína vöru og hafi
þannig forsendur til áætlanagerðar
og ákvarðanatöku. Því er skorað á
afurðastöðvar að gefa út afurðaverð
2021 fyrir komandi áramót.
Samkvæmt samantekt Landssam-
taka sauðfjárbænda var afurðaverð
til íslenskra sauðfjárbænda á síð-
asta ár það lægsta sem finnst í evr-
ópu og miðað við nýbirtar verðskr-
ár 2020 er vegið meðalverð 502
kr./kg. Hefði afurðaverð fylgt al-
mennri verðlagsþróun frá 2014 ætti
það að vera 690 kr./kg. Því vantar
enn tæpar 200 kr/kg. upp á afurða-
stöðvaverð fylgir verðlagsþróun.
Í heimsfaraldri vegna COVID-19
fengu Íslendingar áminningu um
mikilvægi innlendrar matvælafram-
leiðsu. Skapa þarf greininni stöð-
ugleika í rekstri til lengri tíma og
styðja á öflugan hátt við innlenda
matvælaframleiðslu.“ Þá segir að
öll viðbrögð við erindinu og sú að-
stoð sem viðtakendur geta lagt mál-
inu, sé þegin með þökkum. mm
Þórólfur Guðnason, sóttvarnar-
læknir sagði á upplýsingafundi á
mánudag að dreifing kórónuveir-
unnar væri stöðug, eins og hann
orðaði það, og heldur vera á leið-
inni niður undanfarna daga. Hert-
ar reglur tóku gildi fyrir helgi og
í gær tóku gildi hertari reglur um
skólahald. Sagðist Þórólfur vona að
hægt verði að byrja að aflétta tak-
mörkunum eftir tvær vikur en tekur
þó fram að það þurfi að fara hægt í
þær aðgerðir. Þá segir hann ekkert
benda til þess að faraldurinn stefni
í veldisvöxt eins og er að gerast í
mörgum löndum í kringum okkur.
Þórólfur ítrekaði mikilvægi þess-
ara aðgerða sem farið hefur verið
í og að þó farsóttarþreyta sé kom-
in í okkur öll sé mikilægt að hafa
augun á tilgangi aðgerðanna og
að halda þetta út. ef allir geri sitt
besta verði vonandi hægt að slaka
á takmkörkununm fljótlega og þá
verði hægt að halda aðventu og jól
með minni takmörkunum. Að lok-
um sagði hann ekkert nýtt vera að
frétta af bóluefnum en komin er
af stað undirbúningsvinna svo allt
verði tilbúið til að bólusetja hratt
og örugglega þegar bóluefni kem-
ur, sem hann vonar að verði fljót-
lega á næsta ári.
Mikilvægt að sækja sér
heilbrigðisþjónustu
Alma D. Möller, landlæknir,
sagði stöðuna í heilbrigðiskerf-
inu vera þunga og enn að þyngj-
ast fyrir norðan og er Sjúkrahúsið
á Akureyri komið á hættuástand.
Sýkingavarnarteymi var sett sam-
an um helgina og er því ætlað að
bregðast við kalli hjúkrunarheim-
ila um allt land komi þar upp
smit, leiðbeina varðandi sýkinga-
varnir, aðstoða við smitrakningu
og fleira. Hvatti Alma stjórnend-
ur og starfsmenn hjúkrunarheim-
ila til að vera í viðbragðsstöðu.
Alma fór yfir stöðuna almennt
í heilbrigðiskerfinu og hvatti fólk
til að sækja sér þá þjónustu sem
það þyrfti á að halda. Hún sagði
mikið áhyggjuefni að fólk væri
kannski ekki að leita heilbrigð-
isþjónustu, hvort sem er vegna
líkamlegra eða geðrænna vanda-
mála. Þá minnti hún á að upp-
lýsingar um bjargráð vegna kvíða
eða andlegra vandamála er að
finna á Covid.is og Hjálparsím-
inn 1717 og netspjallið þar og á
Heilsuveru er opið.
arg/ Ljósm. James Einar Becker.
MMR birti í síðustu viku frétt um
nýja könnun á fylgi stjórnmála-
flokka. Samkvæmt henni mælist
fylgi Sjálfstæðisflokksins nú 21,9%,
tæplega fjórum prósentustigum
lægra en við síðustu könnun MMR
sem framkvæmd var í september.
Fylgi Samfylkingarinnar eykst um
rúmlega tvö prósentustig og mælist
nú 15,2% en fylgi Pírata minnk-
aði um eitt og hálft prósentustig
og mældist nú 13,5%. Fylgi Fram-
sóknarflokksins eykst um tæplega
tvö prósentustig frá síðustu mæl-
ingu og mælist nú 10,2%. Mið-
flokkurinn mælist nú með 11,6%
sem sömuleiðis er hækkun frá síð-
ustu könnun. Fylgi Vinstri grænna
dalar enn, mælist nú 8,3% en var
8,5% í síðustu könnun.
Stuðningur við ríkisstjórnina
mælist nú 50,3% og minnkaði um
tæpt prósentustig frá síðustu könn-
un, þar sem stuðningur mældist
51,0%.
mm
Meðfylgjandi mynd var tekin í Ljárskógarétt í Dölum fyrir níu árum.
Ljósm. úr safni.
Lýsa yfir áhyggjum af lágu
afurðaverði til sauðfjárbænda
Stefnir ekki í veldisvöxt
Talsverð hreyfing á fylgi flokka