Skessuhorn


Skessuhorn - 04.11.2020, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 04.11.2020, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 4. NóVeMBeR 202012 Mjólkursamsöl- unni skipt upp LANDIÐ: eigendur og stjórn Mjólkursamsölunnar hafa ákveðið að skipta starf- seminni upp í sjálfstæð félög í sömu eigu, sem sinni annars vegar innlendri og hins vegar erlendri starfsemi. „er þessi breyting nú rökrétt framhald á þeirri vegferð sem hófst um mitt ár 2018, þegar stofnað var sérstakt dótturfélag um erlenda starfsemi Mjólkur- samsölunnar, Ísey útflutn- ingur ehf. Var það gert bæði til að mæta áskilnaði í samn- ingum ríkisins og bænda um fjárhagslegan aðskilnað inn- lendrar og erlendrar starf- semi, og einnig til að skerpa stjórnunarlegar áherslur og sýn á mismunandi verkefni,“ segir í tilkynningu. Með breytingunni nú færast Ísey útflutningur og eignarhlutur í móðurfélagi Ísey Skyr Bars í félagið MS erlend starfsemi ehf. og eignarhlutur í banda- ríska skyrfyrirtækinu Ice- landic Provisions í félagið MS eignarhald ehf. Bæði þessi félög verða í eigu sam- vinnufélaganna Auðhumlu og Kaupfélags Skagfirð- inga, eins og Mjólkursamsal- an ehf. Ari edwald sem hef- ur verið framkvæmdastjóri Ísey útflutnings undanfarið rúmt ár, samhliða forstjór- astarfi hjá Mjólkursamsöl- unni, mun hér eftir stýra MS erlendri starfsemi og MS eignarhaldi og alfarið sinna erlendri starfsemi. Pálmi Vilhjálmsson, núverandi að- stoðarforstjóri, verður for- stjóri Mjólkursamsölunnar. -mm Ekið á ljósastaur STYKKISHÓLMUR: Síð- astliðið laugardagskvöld var bifreið ekið á ljósastaur á bif- reiðastæði við Íþróttamið- stöðina í Stykkishólmi. ekki urðu slys á fólki en bifreiðin var eitthvað löskuð. -frg Útafakstur á Bröttubrekku VESTURLAND: Á laugar- dag var tilkynnt um útafakst- ur á Bröttubrekku. ekki urðu slys á fólki en við nánari skoðun kom upp grunur um að ökumaður væri mögulega smitaður af Covid. Í fram- haldinu fór ökumaður í ein- angrun. -frg Bílvelta á Bröttubrekku VESTURLAND: Á sunnu- dag barst Neyðarlínu til- kynning um útafakstur Borg- arfjarðarmegin á Bröttu- brekku. Tilkynningin barst kl. 19:36 um kvöldið og fóru lögregla og sjúkralið frá Borgarnesi á staðinn. Þar reyndist jeppabifreið hafa farið út af veginum í mikilli hálku. Bifreiðin fór marg- ar veltur og voru ökumaður og farþegi fluttir á sjúkrahús. Þeir voru með meðvitund en nokkuð slasaðir, meðal ann- ars með höfuðmeiðsli. -frg Hvalfjarðarsveit hefur óskað eft- ir inngöngu í barnaverndarnefnd Borgarfjarðar og Dala að nýju. Sveitarstjórn staðfesti þá beiðni á fundi sínum 27. október sl., þar sem tillaga þess efnis var samþykkt sam- hljóða. Byggðarráð Borgarbyggð- ar hefur tekið jákvætt í beiðnina og falið velferðarnefnd að vinna nán- ar að aðkomu Hvalfjarðarsveitar að nefndinni. Í júní í fyrra undirrituðu Hvalf- jarðarsveit og Akraneskaupstaður samning sem sneri m.a. að því að Akraneskaupstaður tæki að sér þjónusu fyrir Hvalfjarðarsveit á sviði barnaverndarmála. Litið var á samninginn sem tilraunaverkef- ni til eins árs, með möguleika á framlengingu. Nú er ljóst að hann verður ekki endurnýjaður, hel- dur hyggst Hvalfjarðarsveit ganga í barnaverndarnefnd Borgarfjarðar og Dala á nýjan leik. kgk Styrktaraðilar fótboltans á Akra- nesi fá auglýsingaskilti upp við völl- inn. einn þeirra er verktakafyrir- tækið Borgarverk sem býður jafn- framt gesti velkomna í Borgarnes, enda eru höfuðstöðvar fyrirtækisins þar. Gárungar segja þetta sérlega skemmtileg skilaboð enda þekkt að nokkurs rígs gæti milli bæjanna. frg Framkvæmdir eru hafnar við síð- asta áfangann í ljósleiðaravæð- ingu dreifbýlis Snæfellsbæjar. Um er að ræða lagningu ljósleiðara milli Hellissands og Gufuskála, en sveitarfélagið nýtur styrks frá Fjar- skiptasjóði til verksins. Það er verk- takinn Stafnafell ehf. í Staðarsveit sem sér um að plægja fyrir ljósleið- aranum en Gunnar Hauksson hefur umsjón með verkefninu fyrir hönd Snæfellsbæjar. kgk Á Snæfellsnesi hefur í haust ver- ið unnið að ýmsum verkefnum hjá Vegagerðinni, bæði stórum og smá- um. Stærsta verkefnið var vinna við að bæta öryggi á Snæfellsnesvegi en í Stórholtum voru lengd ræsi og vegfláar og öryggissvæði lagað en um 6000 rúmmetrum var keyrt í vegfláana. Í Grundarbotni austan megin við Grundarfjörð var skipt um tvö ræsi sem voru orðin ónýt auk þess sem Framsveitarvegur var styrktur og borin í hann möl. Við Snæfellsnesveg í Helgafellssveit var unnið að styrkingu ásamt lag- færingu og í vikunni verða Kolvið- arnesvegur og Lýsudalsvegur lag- færðir og í framhaldinu Helgafells- sveitarvegur og Stakkhamarsvegur. Vegagerðin var einnig Þjóðgarðin- um Snæfellsjökli til aðstoðar vegna vegar og plans við Saxhól. Nýi vegurinn um Fróðárheiði var einnig stikaður í haust ásamt öðrum verkefnum tengdum þeirri framkvæmd eins og girðingum og fleiru. Stikur voru einnig lagað- ar fyrir veturinn og gert við slit- lag eins og reyndar er gert jafnt og þétt. Af þessu má sjá að verkefnin hjá starfsmönnum Vegagerðarinnar hafa verið mörg og misjöfn. þa Börn að leik í Hvalfjarðarsveit. Ljósm. úr safni/ hlh. Aftur í barnaverndarnefnd Borgarfjarðar og Dala Víða lagfæringar í vegagerð á Snæfellsnesi Brotist inn í bát STYKKISHÓLMUR: Að morgni sunnudags barst lögreglu tilkynning um að brotist hefði verið inn í skip- ið Leyni SH-120 sem lá við bryggju í Stykkishólmi. Við athugun kom í ljós að rúða hafði verið brotin í skipinu. Talið var að farið hefði ver- ið inn í skipið en í fljótu bragði virt- ist engu hafa verið stolið. Lyfjakista skipsins reyndist í lagi. enginn hef- ur verið handtekinn vegna máls- ins en unnið er að rannsókn, með- al annars með yfirferð á upptökum eftirlitsmyndavéla. -frg Hraðakstur í Hvalfirði VESTURLAND: Um kl. 23:30 á mánudagskvöld stöðvaði lög- regla bifreið á Vesturlandsvegi, við Kúludalsá fyrir of hraðan akst- ur. Hraði bifreiðarinnar reyndist vera 139 km/klst en hámarkshraði á þessum vegarkafla eru 90 km/ klst. Samkvæmt sektarreikni á vef Samgöngustofu má ætla að öku- maður eigi von á allt að 150.000 kr. sekt auk þess sem þrír refsi- punktar bætast við ökuferilsskrá. -frg Bílvelta við Hafnará VESTURLAND: Um kl. 23:30 á mánudag barst Neyðarlínu til- kynning um bílveltu á Vestur- landsvegi við Hafnará. Bifreið á suðurleið ók út af og valt. Öku- maður og farþegi slösuðust á baki og höfði og voru fluttir á sjúkra- húsið á Akranesi. –frg Aflatölur fyrir Vesturland 24.-30. október Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu Akranes: 4 bátar. Heildarlöndun: 8.836 Mestur afli: ebbi AK-37: 5.930 kg í einni löndun. Arnarstapi: 1 bátur. Heildarlöndun: 14.087 kg. Mestur afli: Hafdís SK-4: 14.087 kg í einni löndun. Grundarfjörður: 5 bátar. Heildarlöndun: 191.702 kg. Mestur afli: Runófur SH-135: 55.643 kg í einni löndun. Ólafsvík: 7 bátar. Heildarlöndun: 45.210 kg. Mestur afli: Hafdís SH-167: 2.333 kg í tveimur löndunum. Rif: 5 bátar. Heildarlöndun: 66.2621 kg. Mestur afli: Hamar SH-224, 29.809 kg í tveimur löndunum. Stykkishólmur: 1 bátur. Heildarlöndun: 3.486 kg. Mestur afli: Fjóla SH-7: 3.486 í þremur löndunum. Allar hafnir samtals: 329.582 kg. í 35 löndunum. Topp fimm landanir á tíma- bilinu: 1. Runólfur SH-135 – GRU: 55.643 kg. 2. Farsæll SH-30 – GRU: 45.399 kg. 3. Hringur SH-153 – GRU: 45.183 kg. 4. Sigurborg SH-12 – GRU: 44.698 kg. 5. Hamar SH-224 – RIF: 22.288 kg. fr Ljósleiðari lagður síðasta spölinn Plægt fyrir ljósleiðara milli Hellissands og Gufuskála. Ljósm. Snæfellsbær. Boðnir velkomnir til Borgarness á Akranesvelli

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.