Skessuhorn


Skessuhorn - 04.11.2020, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 04.11.2020, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 4. NóVeMBeR 202022 Undanfarið hefur borið á því að íbúar í Borgarbyggð eru byrjaðir að lýsa upp skammdegið með jóla- ljósum- og skreytingum. „Borgar- byggð fagnar þessu frumkvæði og hefur ákveðið að slást í för með íbú- um með því að setja jólaljósin upp snemma í ár. Íbúar eru hvattir til að gera slíkt hið sama,“ segir í tilkynn- ingu frá Borgarbyggð. mm eldfjallasafnið í Stykkishólmi hefur verið sett á sölu. Frá því var greint í frétt í Morgunblaðinu á mánudag- inn. Allt sem Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur hefur í gegnum áratugina safnað að sér fyrir safnið fylgir með í sölunni. Segir hann það mikið áfall að þurfa að selja safnið. Ástæða sölunnar segir hann að í gegnum árin hafi hann rekið safn- ið í samvinnu við Stykkishólmsbæ en nú sjái bærinn sér ekki fært að halda við húsi safnsins. Það er því ekki annað í stöðunni fyrir Harald en að selja. Ákvörðun liggur ekki fyrir Að sögn Jakobs Björgvins Jakobs- sonar, bæjarstjóra Stykkishólms- bæjar, liggur ákvörðun af hálfu bæj- arins ekki fyrir í málinu. er málið til umsagnar í safna- og menning- armálanefnd bæjarins og mun Jak- ob gera bæjarráði grein fyrir stöðu þess á næsta fundi ráðsins. „Stykk- ishólmsbær áttu fund á dögunum með Haraldi Sigurðssyni og öðrum fulltrúum Vulkan ehf. sem legg- ur til öll listaverk og safngripi eld- fjallasafnsins, en safnið var opn- að árið 2009 eftir að bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar hafði gert sam- komulag við Harald um að setja upp safnið í gamla Samkomuhús- inu. Ríkið hafði samþykkt að kosta flutning á safninu frá USA til lands- ins árið 2005 eftir að sérfræðingar á vegum ráðuneyta höfðu lagt mat á gildi safnmuna,“ segir Jakob. Brýnt að huga að endurgerð Jakob segir tilgang fundarins með forsvarsmönnum Vulkan ehf. hafa verið að ræða stöðu eldfjallasafns- ins, framtíð þess og ástand sam- komuhússins sem hýsir safnið. „Fyrir liggur hönnun endurgerð- ar á Samkomuhúsinu við Aðal- götu 6 í Stykkishólmi m.t.t. ástands og uppruna, þar sem lagt er mat á mikilvægi þess að húsið verði end- urgert,“ segir Jakob. Þá bendir hann á að skipulags- og bygginga- fulltrúi Stykkishólmsbæjar hafi árið 2017 tekið saman greinargerð um ástand hússins þar sem fram kem- ur að brýnt sé að huga að endur- gerð hússins á næstu árum og hefur verið horft til þess að afla styrkja til endurgerðar á húsinu frá Húsafrið- unarsjóði. „Það er óhætt að segja að bærinn hafi lagt mikla áherslu á safnið sem sjá má á þeim framlög- um sem lögð hafi verið til safnsins til þess að tryggja rekstur þess. Með þessu er ljóst að Stykkishólms- bær hafi sýnt í verki að bærinn hafi skilning á gildi safnsins og hversu verðmætt það er,“ segir Jakob. arg Um þessar mundir er verið að leggja lokahönd á nýtt skrifstofu- húsnæði Verkalýðsfélags Akraness við Þjóðbraut 1 á Akranesi. Að sögn Vilhjálms Birgissonar formanns félagsins mun starfsemin verða flutt alfarið í nýtt húsnæði í lok þessar- ar viku. Skrifstofan mun svo verða opnuð á nýjum stað mánudaginn 9. nóvember. Vilhjálmur tók sérstak- lega fram að skrifstofan verður lok- uð fimmtudag og föstudag í þess- ari viku. Að sögn Vilhjálms verður um al- gera byltingu að ræða í aðbúnaði starfsfólks og gesta. Núverandi hús- næði var orðið mjög þröngt enda aðeins um 100 fermetrar. Nýja hús- næðið er þrefalt stærra og ljóst að öll aðstaða verður mun betri og rýmri. Félagið á 100 ára afmæli árið 2024 og að sögn Vilhjálms er löngu tímabært að félagið komist í gott húsnæði. frg/ Ljósm. mm. Karlmaður á sextugsaldri, sem varð fyrir alvarlegri líkamsárás í Borgar- nesi mánudaginn 19. október síð- astliðinn, var fluttur á gjörgæslu tveimur dögum síðar. Ástand hans hafði þá versnað mjög og var tal- ið lífshættulegt. Hann var rifbeins- brotinn, kjálkabrotinn og mögu- lega viðbeinsbrotinn ásamt því að hafa nokkur bitför í andliti. eftir að hann var fluttur frá sjúkrahúsinu á Akranesi á Landspítala kom í ljós að annað lunga hans hafði fallið sam- an. Þetta er meðal þess sem kem- ur fram í gæsluvarðhaldsúrskurði Héraðsdóms Vesturlands og greint er frá á fréttavef Ríkisútvarpsins. Ætlaði að gista hjá manninum Í greinargerð lögreglustjóra kem- ur fram að þegar lögregla kom á vettvang hafi þolandinn staðið fyr- ir utan húsið, blóðugur í andliti og haldið um brjóstkassann. Hann hafi verið í heimsókn hjá árásarmannin- um og ætlað að gista þar um nótt- ina. Þeir hefðu drukkið nokkuð og verið orðnir ölvaðir þegar húsráð- andi réðst að honum þar sem hann sat í rúmi í íbúðinni, kýlt hann með krepptum hnefa í andlit og líkama og bitið hann í andlitið. Sá sem varð fyrir árásinni hafi talið að maður- inn myndi drepa sig og því slegið frá sér þar til árásarmaðurinn rot- aðist. Í framhaldi af því hafi hann komið sér út úr húsinu. Blóðslettur um veggi og gólf Samkvæmt lögreglu mætti henni mikið blóð þegar farið var inn í íbúðina, blóðslettur og blóðkám víða um gólf og veggi. Mikið af blóðblettum hafi verið á rúmföt- um rúmsins þar sem brotaþoli kvaðst hafa setið þegar ráðist var á hann. Árásarmaðurinn lá á gólf- inu með blóð á höndum sér og í andliti. Hann hafi verið mjög ölv- aður og ekki geta sagt til um hvað hefði gerst, en kvartað undan höf- uðverk og ekki getað staðið upp. Hann var síðan handtekinn eftir læknisskoðun. Við yfirheyrslur kvaðst árásarmaðurinn hafa neytt áfengis og sterkra verkjalyfja en mundi ekki eftir því að hafa kýlt eða bitið hinn manninn. Lögregla telur framburð hans ekki fullnægjandi skýringu á því hvað gerðist og ekki samræmast því sem komið hafi fram við rannsókn. Mikilvægt sé að geta tekið skýrslu af brotaþolanum en það hafi ekki verið hægt þar sem hann sé á gjörgæslu og koma verði í veg fyrir að árásarmaðurinn geti haft áhrif á framburð hans. Árásarmaðurinn var í héraðsdómi úrskurðaður í gæsluvarðhald og einangrun til 2. nóvember, en Landsréttur stytti gæsluvarðhaldið til 29. október með úrskurði. kgk/ Ljósm. úr safni. Verkalýðsfélag Akraness flytur Eldfjallasafnið í Stykkishólmi var vígt í maí 2009. Það hefur nú verið boðið til sölu. Ljósm. úr safni Skessuhorns. Eldfjallasafnið í Stykkishólmi boðið til sölu Á gjörgæslu eftir líkamsárás í Borgarnesi Borgarbyggð hvetur til að jóla- ljósin verði sett upp snemma

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.