Skessuhorn - 04.11.2020, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 4. NóVeMBeR 2020 13
Kennsluaðferðir FSN eru verkefnamiðaðar og námsmatið
er leiðsagnarmiðað.
Samskipti á milli kennara og nemenda eru persónuleg og hvatt er til sjálfstæðra vinnu-
bragða. Vinnuumhverfið er nútímalegt og kennsla fer fram á TEAMS og í MOODLE.
Allar frekari upplýsingar fást hjá námsráðgjafa agnes@fsn.is og aðstoðarskólameistara
solrun@fsn.is og í síma 430-8400.
Við hlökkum til að hitta ykkur
Starfsfólk Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Dagskóli
Innritun fyrir nám í dagskóla á
vorönn 2021 fer fram rafrænt á
menntagatt.is eða á skrifstofu
skólans dagana 1.-30. nóvember.
Fjarnám
Opið er fyrir umsóknir í fjarnám.
Umsækjendur um fjarnám geta
skráð sig í nám á heimasíðu
skólans undir flipanum „Fjarnám“
Námsbrautir í boði
Stúdentsbrautir:
Félags- og hugvísindabraut•
Náttúru- og raunvísindabraut•
Opin braut til stúdentsprófs•
Íþróttabraut•
Framhaldsskólabrautir
Framhaldsskólabraut 1•
Framhaldsskólabraut 2•
Starfsbraut
Innritun á vorönn 2021
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Heilbrigðisráðherra hefur fram-
lengt til 31. desember næstkom-
andi reglugerð um greiðslur fyrir
þjónustu sjálfstætt starfandi sjúkra-
þjálfara sem starfa án samnings við
Sjúkratryggingar Íslands. einnig er
gerð sú breyting frá gildandi reglu-
gerð að greiðsluþátttaka sjúkra-
trygginga vegna meðferðar verð-
ur alfarið bundin því að fyrir liggi
skrifleg beiðni frá lækni eða sjúkra-
þjálfara starfandi í heilsugæslu þar
sem fram kemur sjúkdómsgrein-
ing.
Samningur milli Sjúkratrygg-
inga Íslands og sjálfstætt starfandi
sjúkraþjálfara rann út 12. janúar
2019. Til að tryggja sjúklingum
áframhaldandi greiðsluþátttöku
sjúkratrygginga, meðan unnið væri
að nýjum samningi, setti heilbrigð-
isráðherra reglugerð nr. 1364/2019
sem kveður á um endurgreiðslu
kostnaðar fyrir sjúkraþjálfun á
grundvelli gjaldskrár Sjúkratrygg-
inga Íslands.
Samkvæmt gildandi reglugerð
hefur forsenda fyrir endurgreiðslu
sjúkratrygginga verið bundin því að
fyrir liggi skrifleg beiðni frá lækni
þar sem fram kemur sjúkdóms-
greining. Þó hefur verið heimilt
að víkja frá þessu skilyrði vegna
bráðameðferðar sem nemur allt að
sex skiptum á 12 mánaða tímabili.
Með nýrri reglugerð sem tók gildi
1. nóvember og gildir til loka þessa
árs er sú breyting gerð að heim-
ildarákvæði um bráðameðferðir án
formlegrar beiðni gildir eingöngu
þegar í hlut eiga sjúkraþjálfarar sem
starfa samkvæmt samningi.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigð-
isráðherra segist binda vonir við
að samningar náist sem fyrst milli
Sjúkratrygginga Íslands og sjúkra-
þjálfara. „Sjúkraþjálfun er mikil-
væg heilbrigðisþjónusta sem þarf
að tryggja með samningi sem er
til þess fallinn að tryggja þeim sem
á þurfa að halda jafnan aðgang að
öruggri og góðri þjónustu sjúkra-
þjálfara í samræmi við markmið
heilbrigðisstefnu til ársins 2030,“
segir Svandís.
mm
Guðfinna Rúnarsdóttir opnar á
næstu vikum nýja fótaaðgerðastofu
í Stykkishólmi. Guðfinna hefur ný-
lega lokið námi í fótaaðgerðafræði
og bíður eftir leyfi landlæknis til að
hefja störf. „Um leið og ég fæ leyf-
ið mun ég byrja að vinna á hjúkr-
unarheimilinu hér í Stykkishólmi
og svo vonandi í lok mánaðarins get
ég opnað stofu sem ég er að setja
upp í bílskúrnum heima hjá mér.
Nú stendur til að færa hjúkrunar-
heimilið í Stykkishólmi undir sama
þak og Heilbrigðisstofnun Vestur-
lands og vonast ég til að fá aðstöðu
þar. Ég vann áður hjá HVe í Stykk-
ishólmi sem er dásamlegur vinnu-
staður,“ segir Guðfinna í samtali
við Skessuhorn. „Mig langar mik-
ið að geta sinnt öllu Snæfellsnesi en
það er mikil vöntun á fótaaðgerða-
fræðingi hér á svæðinu. Það eru
margir sem þurfa nefnilega að fara
í meðferð hjá fótaaðgerðafræðingi
reglulega. Það væri í raun eðlileg-
ast við við myndum öll fara í eftirlit
reglulega bara eins og við förum til
tannlæknis,“ segir Guðfinna.
Hlutverk
fótaaðgerðafræðinga
Spurð af hverju það sé svo mikil-
vægt að fara í reglulegt eftirlit til
fótaaðgerðafræðings segir hún það
vera vegna þess að umhirða fóta
er mikilvæg og hægt er að fyrir-
byggja fótamein og afmyndanir á
fótum með slíku eftirliti. „Það sem
mér sjálfri þótti hvað áhugaverðast
þegar ég byrjaði í náminu var hvað
fótaaðgerðafræðingar gera í raun
margt. Þetta er heilbrigðisstétt en
fótaaðgerðafræðingar eru eigin-
lega smá fyrir utan kerfið ef svo
má segja, og fólk gerir sér kannski
ekki grein fyrir því hvað við gerum
í raun og veru,“ segir Guðfinna.
„Hlutverk fótaaðgerðafræðings er
að meðhöndla fætur og fótamein
á heildrænan hátt. Við viljum helst
fyrirbyggja vandamálin og leið-
rétta áður en fólk er orðið mjög
verkjað og kannski með varanleg-
ar afmyndanir eða slíkt. Svo sjáum
við auðvitað líka um að sinna inn-
grónum nöglum, vörtumeðferðum,
líkþornum og almennri umhirðu
fóta,“ útskýrir Guðfinna.
Vanrækjum
gjarnan fæturnar
Aðspurð segir Guðfinna fólk oft
hundsa verki í fótum of lengi og
ekki koma til fótaaðgerðafræðings
fyrr en það er orðið mjög verkjað.
„Þetta er held ég sá hluti líkam-
ans sem við vanrækjum mest,“ seg-
ir hún og bætir við að ýmsir sjúk-
dómar geti orsakað vandamál í fót-
um, eins og til dæmis sykursýki. „Í
náminu vorum við með kennara
frá Skotlandi sem er eiginlega bara
gúrú í fótaaðgerðafræði, en hann
vinnur á sykursýkideild Landspít-
alans. Hann lagði mikla áherslu á
það við okkur hvað sykursýki get-
ur haft mikil áhrif á fætur, til dæm-
is valdið skynskerðingu sem getur
haft slæmar afleiðingar. en þetta er
bara eitt af svo ótrúlega mörgu sem
getur haft áhrif á fæturnar okkar og
því er svo mikilvægt að við látum
fylgjast vel með þeim,“ segir Guð-
finna. Spurð hvort hún sé búin að
finna nafn á nýju stofuna sína hlær
hún og svarar: „Ég hef farið í marga
hringi með það en ég enda alltaf á
nafninu „Skref í rétta átt,“ svo ætli
stofan heiti ekki bara það,“ segir
hún og hlær.
arg
Skref í rétta átt
í Stykkishólmi
Fótaaðgerðafræðingur tekur til starfa
Guðfinna Rúnarsdóttir fótaaðgerða-
fræðingur opnar fótaaðgerðastofu í
Stykkishólmi. Ljósm. aðsend.
Gifs sett um fót. Ljósm. Stjórnarráðið.
Breyttar reglur um greiðslur
fyrir þjónustu sjúkraþjálfara
Opið:
Mánudaga – föstudaga kl. 10 -18
Laugardaga kl. 11-15
Fákafeni 9 - 108 Reykjavík
Sími 511-3388
Jólaútsaumurinn kominn