Skessuhorn - 04.11.2020, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 4. NóVeMBeR 2020 15
ÚTHLUTUN ÚR MINNINGARSJÓÐI
HEIMIS KLEMENZSONAR
Úthlutað verður úr
Minningarsjóði Heimis
Klemenzsonar í fyrsta
skipti nú fyrir áramót.
Af því tilefni óskar
stjórn sjóðsins eftir
tilnefningum um ungt
og efnilegt tónlistarfólk
úr Borgarfirði. Gert er
ráð fyrir að tónlistar-
mennirnir séu komnir
í framhaldsnám eða
sambærilegt nám/tón-
sköpun.
Tilnefningar ásamt sem gleggstum upplýsingum um viðkomandi
tónlistarmann sendist á netfangið jomundur@gmail.com fyrir 10.
nóvember. Stjórn Minningarsjóðsins skipar jafnframt valnefnd og er
áskilinn réttur til að velja hvaða nafn sem er eða hafna öllum.
Þeim sem vilja styrkja sjóðinn er bent á söfnunarreikning sjóðsins.
Reikn: 326-22-1916 kt: 500119-0980
Minningarsjóður Heimis Klemenzsonar var stofnaður 2018. Hlutverk
Minningarsjóðsins er að standa við bakið á ungu og efnilegu tónlistar-
fólki í Borgarfirði og heiðra á þann hátt minningu Heimis Klemenzsonar.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
02
0
Breyting á deiliskipulagi
á iðnaðar- og hafnar-
svæðis á Grundartanga
vestursvæði
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum
þann 13. október að auglýsa breytingu á deiliskipulagi ásamt
umhverfisskýrslu á iðnaðar- og hafnarsvæðis á Grundartanga
samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sú breyting á deiliskipulagi iðnaðar- og hafnarsvæði sem hér um
ræðir tekur til útvíkkuna á losunarsvæði á núverandi flæðigryfju
á vestursvæði, suðaustan (neðan) Grundartangavegar og einnig
leiðréttingar á lóðarstærðum.
Kynning verður á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar föstudaginn 6.
nóvember á milli 10:00–12:00.
Athugasemdum skal skilað til skrifstofu Hvalfjarðarsveitar
að Innrimel 3, 301 Akranesi, eða á netfangið skipulag@
hvalfjardarsveit.is merkt ”Grundartangi”. fyrir 18. desember 2020.
Bogi Kristinsson Magnusen
Skipulags- og umhverfisfulltrúi Hvalfjarðarsveitar
skipulag@hvalfjardarsveit.is
Vélsmiðja Grundarfjarðar á sér
stutta sögu í Grundarfirði en hún
var stofnuð árið 2016 þegar hún
festi kaup á Vélsmiðjunni Berg
sem hafði verið starfrækt þar und-
anfarna áratugi. Ákveðið var að
breyta nafninu í Vélsmiðju Grund-
arfjarðar þar sem vélsmiðja með því
nafni hafði verið rekin í Grundar-
firði á síðustu öld við góðan orðstír.
Þórður Magnússon annar eiganda
vélsmiðjunnar settist aðeins niður
með fréttaritara Skessuhorns í lið-
inni viku.
Síðastliðinn mánudag var nýjasti
hluti vélsmiðjunnar tekinn í notk-
un, en nú er lokið við að byggja við
húsið þar sem bifreiðaverkstæði
verður rekið. „Við höfum verið með
bifreiðaverkstæði frá árinu 2016 en
fyrstu árin var sá hluti svona 10%
af veltunni á meðan Vélsmiðjan var
90%,“ segir Þórður. „Verkstæðis-
hlutinn er alltaf að stækka og í dag
er þetta orðið 50%,“ bætir hann
við. Remeg Bilevicius á helminginn
í Vélsmiðju Grundarfjarðar á móti
Þórði og í byrjun sá hann alfarið
um verkstæðishlutann en hann er
menntaður bifvélarafvirki. Nú í dag
eru þeir með fullmenntaðan bifvéla-
virkja í vinnu og eru að fara að ráða
annan bifvélavirkja á næstu miss-
erum. Gamla verkstæðinu verður
breytt í varahlutaverslun og verður
opnað eftir nokkra daga. „Við erum
komnir í samstarf við AB Varahluti
og verðum með helstu bílavörur í
samvinnu við þá“.
Mánudaginn 2. nóvember var
nýi hlutinn svo tekinn í notkun
og verkstæðisstarfsemi komin al-
farið þangað. „Viðbyggingin er al-
veg sér og það er ekki innangengt
inn í vélsmiðjuna frá verkstæðinu,“
segir Þórður. Þessi viðbót verður
mikil búbót fyrir Grundarfjörð en
þetta er eina verkstæðið á svæðinu.
Vélsmiðja Grundarfjarðar er með
þrjá starfsmenn í vinnu og eru tveir
væntanlegir til viðbótar. einn á
verkstæðið og annar í vélsmiðjuna.
Ætlunin var að hafa opið hús síðast-
liðinn mánudag, en vegna aðstæðna
í samfélaginu var fallið frá því. Allir
eru þó velkomnir að skoða en verða
bara að passa upp á sóttvarnir sam-
kvæmt kúnstarinnar reglum.
tfk
Viðbyggingin sem hýsa mun verk-
stæðið.
Viðbygging Vélsmiðju
Grundarfjarðar tekin í notkun
F.v. Jan Ryczkowski vélsmiður, Remeg Bilevicius eigandi og bifvélavirki, Þórður Magnússon eigandi og Adam K. Oleszuk
bifvélavirki.
Starfsmenn Vélsmiðju Grundarfjarðar eru hér að koma bílalyftu fyrir í nýja
hlutanum.
Eigendurnir ásamt Björgu Ágústsdóttur bæjarstjóra.