Skessuhorn


Skessuhorn - 02.12.2020, Side 1

Skessuhorn - 02.12.2020, Side 1
Ert Þú í áskrift? Sími 433 5500 www.skessuhorn.is FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 49. tbl. 23. árg. 2. desember 2020 - kr. 950 í lausasölu AÐEINS 1.390 KR. HEIMSENDINGARGJALD GREIÐIST AÐEINS EINU SINNI FYRIR HVERJA PÖNTUN Um og eftir liðna helgi voru ljósin kveikt á jólatrjám víðsvegar um Vesturland enda aðventan gengin í garð. Yfirleitt voru þessar samkomur lágstemmdar, enda óæskilegt að margmenni kæmi saman eins og venjan er á þessum árstíma. Á meðfylgjandi mynd eru börn úr Grunnskólanum í Stykkishólmi ásamt bæjarstjóra sínum og rauðklæddum gestum. Í fyrsta skipti var tréð ekki frá Drammen, vinabæ Stykkishólms, heldur úr Sauraskógi í Helgafellsveit. Íbúar kusu um hvaða tré yrði valið og varð fimmtíu ára gamalt sitkagreni fyrir valinu. Nánar um lágstemmdar hátíðir í blaðinu í dag. Ljósm. sá. Bæjarstjórn Akraness skoraði í mars á heilbrigðisyfirvöld að setja upp blóðskilunarvél á sjúkrahúsinu á Akranesi. Í áskoruninni var bent á að sjúklingar á Akranesi sem þurfa á blóðskilun að halda eru háðir að- stoð því meðferð af þessu tagi get- ur tekið allt að 6 til 7 klukkustundir í senn í nokkur skipti í viku hverri. Jafnframt að eðli málsins sam- kvæmt eigi viðkomandi sjúklingar ekki kost á að nýta almenningssam- göngur né að keyra eigin bíl. Jafnframt sagði í áskoruninni frá því í mars: „Allar forsendur eru til staðar við HVE á Akranesi til að taka upp þessa þjónustu og sem kunnugt er býr stofnunin yfir mikl- um mannauði og vilja og hefur veitt öfluga heilbrigðisþjónustu á öllu Vesturlandi. HVE er tilbúið að taka við auknum verkefnum og áskor- unum eins og raun ber vitni með tilvísun í samþykkt heilbrigðisráð- herra frá því í október 2019 um að gera sjúkrahúsið á Akranesi að mið- stöð liðskiptaaðgerða á mjöðmum og hnjám.“ Nú hefur heilbrigðisráðuneytið svarað erindi Akraneskaupstaðar og skemmst er frá því að segja að erindinu er synjað. Í svarinu segir að ráðuneytið hafi skoðað málið og m.a. fengið álit Landspítala sem hefur yfirumsjón og yfirsýn með allri blóðskilunarmeðferð sem veitt er á landsvísu. Helstu rökin fyr- ir synjunni eru að skilunareining- ar séu á Neskaupsstað, á Selfossi, á Akureyri og á Ísafirði vegna ferða- lengdar sjúklings og erfiðrar færð- ar um fjallvegi og tíðra lokana yfir vetrartímann. Slíkt eigi ekki við um Akranes. Það sé því mat ráðuneytis- ins í ljósi vegalenda og ástands vega sem um ræðir að ekki sé tilefni til að setja á fót blóðskilunareiningu við Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Í fundargerð Velferðar- og mann- réttindaráðs Akraneskaupstaðar frá 18. nóvember, þar sem málið var tekið fyrir, er niðurstaðan hörmuð og sviðsstjóra falið að vinna málið áfram í samráði við bæjarstjóra. frg Ráðuneytið hafnar beiðni um blóðskilunarmeðferð á Akranesi Peppercorn cheeseburger 1.795 kr. Tilboð gildir út desember 2020 Gos úr vél frá CCEP fylgir meðBorgarnes: Akranes: Gosflaska frá CCEP fylgir með Gjafakort Arion banka er alltaf rétta gjöfin. Nú geta viðskiptavinir pantað gjafakort á netinu og fengið þau send heim. Gjöf sem gleður alla arionbanki.is

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.