Skessuhorn


Skessuhorn - 02.12.2020, Blaðsíða 21

Skessuhorn - 02.12.2020, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2020 21 Nýfæddir Vestlendingar Aukin lífsgæði með styttri vinnuviku 25. nóvember. Drengur. Þyngd: 3.928 gr. Lengd: 52 cm. Foreldr- ar: Rakel Sjöfn Hjartardóttir og Agnar Þór Helgason, Hafnarfirði. Ljósmóðir: Ásthildur Gestsdóttir. 27. nóvember. Drengur. Þyngd: 3.186 gr. Lengd: 48 cm. Foreldr- ar: Andrea Disque og Viktor Sig- valdi Björgvinsson, Mosfellsbæ. Ljósmóðir: Hafdís Rúnarsdóttir. 27. nóvember. Stúlka. Þyngd: 3.334 gr. Lengd: 48 cm. Foreldr- ar: Elísa Guðlaug S. Bjarkadótt- ir og Ásbjörn Þórarinn Sigurðs- son, Hafnarfirði. Ljósmóðir: Inga María Þorsteinsdóttir. 29. nóvember. Stúlka. Þyngd: 3.166 gr. Lengd: 50 cm. Foreldr- ar: Alexandra Rut Kristinsdóttir og Brynjar Eiríksson, Reykjavík. Ljósmóðir: Elísabet Harles. Pstiill - Geir Konráð Theódórsson Á sandi byggði heimskur maður hús syngja krakkarnir, en við þessa línu ætti kannski að bæta við að úr sandi byggir mannkynið næstum allt. Ef þú horfir í kringum þig þá er lík- legt að eitthvað í umhverfinu þínu sé búið til úr sandi, kannski glerið í rúðunni í glugganum eða skjánum í snjallsímanum, steypan í veggnum eða malbikið fyrir utan? Svo ótrú- lega margt í okkar nútíma umhverfi notast við sand sem grunnhráefni, en því miður fyrir okkur mannfólk- ið erum við að verða uppiskroppa með sand sem nothæft hráefni. Þú last þetta rétt og kannski rétti- lega spyrð núna; bíddu er ekki nóg til af sandi í heiminum, til dæmis í Sahara eyðimörkinni? Jú, alveg hár- rétt hjá þér, nóg til af sandi þar. Ég ætti að vita það eftir að hafa búið þarna í Níger, en það sem ég vissi ekki fyrr en nýlega er að sandur er ekki bara sandur, og að sandkorn- in í sandinum geta verið mjög mis- munandi. Í mjög stuttu máli er sandur jarð- efni sem kvarnast úr föstu bergi vegna veðrunar, en getur líka inni- haldið mulin efni úr lífríkinu eins og skeljum, og sandkornin í sand- inum eru venjulega skilgreind með kornastærð frá 0,06 til 2 mm að þvermáli. Ég veit að þetta er ekki það mest spennandi lesefni í blaðinu, en lykilatriðið sem þú skalt muna varðandi sand sem hráefni er að það er ekki stærðin á sandkorn- unum sem skiptir mestu máli heldur hvernig þau eru í laginu. Sandurinn sem hentar best sem grunnhráefni í okkar nútíma umhverfi, sérstaklega í byggingariðnaðinum, inniheldur grófgerð sandkorn. Það er hægt að hugsa um þau eins og púsl í púslu- spili, sandkorn sem eru óregluleg í laginu og með horn og fleti sem henta vel til að mynda bindingu hvort við annað og önnur efni. Góð binding er lykillinn að góðri steypu og það er fátt sem nú- tíma samfélagið í dag elskar meira en góða steypu. Umhverfisstofn- un Sameinuðu þjóðanna áætlar að mannkynið noti um 30 milljarða tonna af steypu á hverju ári, sem væri nóg til að byggja 27 metra háan og 27 metra þykkan vegg í kringum miðbaug - eða ef Trump fengi að ráða, jafnbreiðan landa- mæravegg milli Bandaríkjanna og Mexíkó nema að sá veggur væri alls staðar um 350 metra hár. Ég minni lesendur á að Hallgríms- kirkja er tæplega 75 metrar á hæð. Sama hvernig ég reyni að ímynda mér þetta þá er erfitt að gera sér í hugarlund hversu mikið af steypu, og þar af leiðandi sandi, mannkynið er að nota á hverju ári. Yfir helmingurinn af þessari steypu fer í uppbyggingu í Kína, og aftur er erfitt að gera sér grein fyrir magninu sem um ræðir. New York Times greinir frá því að á ár- unum 2011 til 2013 hafi Kína not- að meiri steypu en Bandaríkin not- uðu á allri síðustu öld. Þessi hraða uppbygging er sömuleiðis að gerast víðar og þar með eykst eftirspurnin eftir góðum sandi á heimsmarkaðn- um. Þetta hlýtur að vera alveg frá- bært fyrir löndin í eyðimörkunum, eða hvað? Sameinuðu arabísku furstadæm- in, sem staðsett eru í hinni sandríku Rub’al Khali eyðimörkinni á Ar- abíuskaga, voru í vanda þegar átti að byggja stærsta turn í heimi. Um 330.000 rúmmetrar af steypu fóru í gerð á Burj Khalifa, og eins fárán- lega og það hljómar þá urðu fursta- dæmin að flytja inn sand frá Ástral- íu til að nota í steypuna. Eyðimerk- ursandur er nefnilega oftast veðr- aður af vindi og sú veðrun veld- ur því að sandkornin verða með tímanum vel slípuð og kringlótt, og þar af leiðandi óhentug til að mynda bindingu - eins og púsluspil þar sem öll stykkin væru með sleip- ar og sléttar hliðar. Eyðimerkur- sandurinn hentar þess vegna ekki í steypugerð eða til að búa til malbik, og því miður hentar hann ekki einu sinni til þess að búa til gler. Gler- flöskuverksmiðja í Saudi-Arabíu varð til dæmis að flytja inn sand eftir að það uppgötvaðist að sand- urinn í eyðimörkinni væri með of mikið gifs til að hægt væri að nota hann til að búa til gler. Allt í góðu, sleppum eyðimörk- unum, það er samt nóg til af sandi í sjónum. Hvað með allar strendurn- ar? Já, sumar strendur eru með sand þar sem sandkornin eru með hent- uga lögun sem hægt væri að nota í ákveðinn iðnað, en vandinn er salt- ið. Til að sandurinn verði að hent- ugu hráefni verður að skola saltið úr honum og það getur reynst erf- itt og dýrt. Auk þess hefur stórtæki- leg efnistaka við strendur oft mjög slæm áhrif á lífríkið, ásamt því að sandtaka gerir mörg svæði viðkvæm fyrir hækkandi sjávarmáli og kom- andi eyðingu strandsvæða með tíð- ari stormum. Mörg lönd hafa þess vegna sett ströng lög og bönn á hverskonar sandtöku á þessum við- kvæmum svæðum. Hvar er þá þessi grófgerði púslu- spilssandur sem mannkynið girn- ist svona svakalega fyrir alla þessa uppbyggingu? Besti sandurinn er sandur sem er veðraður af vatni og hann finnst helst í árfarvegum, en í þessu byggingaróhófi síðustu ára- tuga er búið að nota mest af þeim sandi sem auðvelt er að nálgast. Engu að síður er haldið áfram að grafa og flytja burt sand, sérstak- lega í fátækari löndum. Efnistök- ur síðustu ára hafa verið stórtækari og sífellt verri fyrir umhverfið. Ár- bakkar hafa rofnað og aukið hætt- ur á flóðum, mengun hefur aukist í ám og tengdum vatnsbólum og Ph gildi vatns hefur víða breyst með virkilega neikvæðum áhrifum á líf- ríkið. Til dæmis er Mekong áin í Víetnam mjög illa farin eftir ólög- lega sandtöku í gegnum tíðina og í dag sést vel hvernig þetta hefur bitnað á lífríkinu og þeim 20 millj- ón manns sem búa við ána. Því ætti það ekki að koma okkur á óvart að víða um heim er verið að banna og berjast gegn sandtöku úr árfarveg- um, líkt og sandtöku við strendur - en með minnkandi framboði eykst eftirspurnin eftir sandi. Eftirspurnin er orðin svo mikil að núna er hægt að lesa um „sand- mafíur“ í Indlandi, Ítalíu og Mar- okkó þar sem glæpasamtök stór- græða á útflutningi á ólöglegum sandi. Umhverfisstofnun Samein- uðu þjóðanna sem og önnur samtök hafa miklar áhyggjur af sandskorti heimsins og hafa verið að leita leiða til þess að koma til móts við þessa óseðjandi þörf nútímans. Tækni- legar leiðir til að nota eyðimerkur- sand gætu verið mögulegar, hægt er að nota mulningsvélar til að búa til sand og svo hefur sömuleiðis reynst ágætlega að endurvinna steypu og malbik, en allt kostar þetta pen- ing og hingað til telja sérfræðing- ar að hagkvæmast sé að nota sand úr náttúrunni - bara ef það væri nú einhver staður á hnettinum þar sem nóg er til af hágæða sandi, og að sandurinn þar væri ekki samofinn viðkvæmu lífríki. Vísindamenn frá Danmörku og Bandaríkjunum birtu grein í Nat- ure Sustainability í febrúar árið 2019 um kosti þess að stunda efnis- töku á sandi á Grænlandi, því þar væri ógrynni af efni sem kæmi und- an jöklunum sem hopa meira og meira með hverju árinu. Þar greina þeir frá því að grænlenski jöklas- andurinn væri mjög hentugur í margskonar iðnað og gæti skapað árlegar útflutningstekjur upp tæp- lega 300 milljarða íslenskra króna, jafnvel meira ef heimsmarkaðsverð á sandi heldur áfram að hækka. Til samanburðar má hugsa um að áætl- aðar heildartekjur ríkissjóðs á Ís- landi eru um 772 milljarðar króna fyrir árið 2021. Með þetta allt saman í huga tel ég núna líklegt að fjárfestarnir sem keyptu jörðina Hjörleifshöfða í Mýrdalshreppi á Suðurlandi, með þeim yfirlýstu hugmyndum um að nýta þar svæði í efnistöku á vikri og sandi, hafi verið heppnir og einstak- lega klókir með að geta keypt alla þessa 11.500 hektara af sandi á rétt í kringum 500 milljónir króna. Ég legg til að Vestlendingar, með sína góðu útflutningshöfn á Grundar- tanga, horfi í kringum sig og skoði hvort þeir sem byggðu húsin sín á sandi hafi í raun verið eitthvað svo heimskir? Geir Konráð Theódórsson Úr sandi byggja Vestlendingar auð

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.