Skessuhorn - 02.12.2020, Qupperneq 21
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2020 21
Nýfæddir
Vestlendingar
Aukin lífsgæði
með styttri
vinnuviku
25. nóvember. Drengur. Þyngd:
3.928 gr. Lengd: 52 cm. Foreldr-
ar: Rakel Sjöfn Hjartardóttir og
Agnar Þór Helgason, Hafnarfirði.
Ljósmóðir: Ásthildur Gestsdóttir.
27. nóvember. Drengur. Þyngd:
3.186 gr. Lengd: 48 cm. Foreldr-
ar: Andrea Disque og Viktor Sig-
valdi Björgvinsson, Mosfellsbæ.
Ljósmóðir: Hafdís Rúnarsdóttir.
27. nóvember. Stúlka. Þyngd:
3.334 gr. Lengd: 48 cm. Foreldr-
ar: Elísa Guðlaug S. Bjarkadótt-
ir og Ásbjörn Þórarinn Sigurðs-
son, Hafnarfirði. Ljósmóðir: Inga
María Þorsteinsdóttir.
29. nóvember. Stúlka. Þyngd:
3.166 gr. Lengd: 50 cm. Foreldr-
ar: Alexandra Rut Kristinsdóttir
og Brynjar Eiríksson, Reykjavík.
Ljósmóðir: Elísabet Harles.
Pstiill - Geir Konráð Theódórsson
Á sandi byggði heimskur maður hús
syngja krakkarnir, en við þessa línu
ætti kannski að bæta við að úr sandi
byggir mannkynið næstum allt. Ef
þú horfir í kringum þig þá er lík-
legt að eitthvað í umhverfinu þínu
sé búið til úr sandi, kannski glerið í
rúðunni í glugganum eða skjánum í
snjallsímanum, steypan í veggnum
eða malbikið fyrir utan? Svo ótrú-
lega margt í okkar nútíma umhverfi
notast við sand sem grunnhráefni,
en því miður fyrir okkur mannfólk-
ið erum við að verða uppiskroppa
með sand sem nothæft hráefni.
Þú last þetta rétt og kannski rétti-
lega spyrð núna; bíddu er ekki nóg
til af sandi í heiminum, til dæmis í
Sahara eyðimörkinni? Jú, alveg hár-
rétt hjá þér, nóg til af sandi þar. Ég
ætti að vita það eftir að hafa búið
þarna í Níger, en það sem ég vissi
ekki fyrr en nýlega er að sandur er
ekki bara sandur, og að sandkorn-
in í sandinum geta verið mjög mis-
munandi.
Í mjög stuttu máli er sandur jarð-
efni sem kvarnast úr föstu bergi
vegna veðrunar, en getur líka inni-
haldið mulin efni úr lífríkinu eins
og skeljum, og sandkornin í sand-
inum eru venjulega skilgreind
með kornastærð frá 0,06 til 2 mm
að þvermáli. Ég veit að þetta er
ekki það mest spennandi lesefni í
blaðinu, en lykilatriðið sem þú skalt
muna varðandi sand sem hráefni er
að það er ekki stærðin á sandkorn-
unum sem skiptir mestu máli heldur
hvernig þau eru í laginu. Sandurinn
sem hentar best sem grunnhráefni í
okkar nútíma umhverfi, sérstaklega
í byggingariðnaðinum, inniheldur
grófgerð sandkorn. Það er hægt að
hugsa um þau eins og púsl í púslu-
spili, sandkorn sem eru óregluleg
í laginu og með horn og fleti sem
henta vel til að mynda bindingu
hvort við annað og önnur efni.
Góð binding er lykillinn að
góðri steypu og það er fátt sem nú-
tíma samfélagið í dag elskar meira
en góða steypu. Umhverfisstofn-
un Sameinuðu þjóðanna áætlar að
mannkynið noti um 30 milljarða
tonna af steypu á hverju ári, sem
væri nóg til að byggja 27 metra
háan og 27 metra þykkan vegg í
kringum miðbaug - eða ef Trump
fengi að ráða, jafnbreiðan landa-
mæravegg milli Bandaríkjanna og
Mexíkó nema að sá veggur væri
alls staðar um 350 metra hár. Ég
minni lesendur á að Hallgríms-
kirkja er tæplega 75 metrar á hæð.
Sama hvernig ég reyni að ímynda
mér þetta þá er erfitt að gera sér í
hugarlund hversu mikið af steypu,
og þar af leiðandi sandi, mannkynið
er að nota á hverju ári.
Yfir helmingurinn af þessari
steypu fer í uppbyggingu í Kína,
og aftur er erfitt að gera sér grein
fyrir magninu sem um ræðir. New
York Times greinir frá því að á ár-
unum 2011 til 2013 hafi Kína not-
að meiri steypu en Bandaríkin not-
uðu á allri síðustu öld. Þessi hraða
uppbygging er sömuleiðis að gerast
víðar og þar með eykst eftirspurnin
eftir góðum sandi á heimsmarkaðn-
um. Þetta hlýtur að vera alveg frá-
bært fyrir löndin í eyðimörkunum,
eða hvað?
Sameinuðu arabísku furstadæm-
in, sem staðsett eru í hinni sandríku
Rub’al Khali eyðimörkinni á Ar-
abíuskaga, voru í vanda þegar átti
að byggja stærsta turn í heimi. Um
330.000 rúmmetrar af steypu fóru í
gerð á Burj Khalifa, og eins fárán-
lega og það hljómar þá urðu fursta-
dæmin að flytja inn sand frá Ástral-
íu til að nota í steypuna. Eyðimerk-
ursandur er nefnilega oftast veðr-
aður af vindi og sú veðrun veld-
ur því að sandkornin verða með
tímanum vel slípuð og kringlótt,
og þar af leiðandi óhentug til að
mynda bindingu - eins og púsluspil
þar sem öll stykkin væru með sleip-
ar og sléttar hliðar. Eyðimerkur-
sandurinn hentar þess vegna ekki í
steypugerð eða til að búa til malbik,
og því miður hentar hann ekki einu
sinni til þess að búa til gler. Gler-
flöskuverksmiðja í Saudi-Arabíu
varð til dæmis að flytja inn sand
eftir að það uppgötvaðist að sand-
urinn í eyðimörkinni væri með of
mikið gifs til að hægt væri að nota
hann til að búa til gler.
Allt í góðu, sleppum eyðimörk-
unum, það er samt nóg til af sandi í
sjónum. Hvað með allar strendurn-
ar? Já, sumar strendur eru með sand
þar sem sandkornin eru með hent-
uga lögun sem hægt væri að nota í
ákveðinn iðnað, en vandinn er salt-
ið. Til að sandurinn verði að hent-
ugu hráefni verður að skola saltið
úr honum og það getur reynst erf-
itt og dýrt. Auk þess hefur stórtæki-
leg efnistaka við strendur oft mjög
slæm áhrif á lífríkið, ásamt því að
sandtaka gerir mörg svæði viðkvæm
fyrir hækkandi sjávarmáli og kom-
andi eyðingu strandsvæða með tíð-
ari stormum. Mörg lönd hafa þess
vegna sett ströng lög og bönn á
hverskonar sandtöku á þessum við-
kvæmum svæðum.
Hvar er þá þessi grófgerði púslu-
spilssandur sem mannkynið girn-
ist svona svakalega fyrir alla þessa
uppbyggingu? Besti sandurinn er
sandur sem er veðraður af vatni og
hann finnst helst í árfarvegum, en
í þessu byggingaróhófi síðustu ára-
tuga er búið að nota mest af þeim
sandi sem auðvelt er að nálgast.
Engu að síður er haldið áfram að
grafa og flytja burt sand, sérstak-
lega í fátækari löndum. Efnistök-
ur síðustu ára hafa verið stórtækari
og sífellt verri fyrir umhverfið. Ár-
bakkar hafa rofnað og aukið hætt-
ur á flóðum, mengun hefur aukist í
ám og tengdum vatnsbólum og Ph
gildi vatns hefur víða breyst með
virkilega neikvæðum áhrifum á líf-
ríkið. Til dæmis er Mekong áin í
Víetnam mjög illa farin eftir ólög-
lega sandtöku í gegnum tíðina og
í dag sést vel hvernig þetta hefur
bitnað á lífríkinu og þeim 20 millj-
ón manns sem búa við ána. Því ætti
það ekki að koma okkur á óvart að
víða um heim er verið að banna og
berjast gegn sandtöku úr árfarveg-
um, líkt og sandtöku við strendur -
en með minnkandi framboði eykst
eftirspurnin eftir sandi.
Eftirspurnin er orðin svo mikil
að núna er hægt að lesa um „sand-
mafíur“ í Indlandi, Ítalíu og Mar-
okkó þar sem glæpasamtök stór-
græða á útflutningi á ólöglegum
sandi. Umhverfisstofnun Samein-
uðu þjóðanna sem og önnur samtök
hafa miklar áhyggjur af sandskorti
heimsins og hafa verið að leita leiða
til þess að koma til móts við þessa
óseðjandi þörf nútímans. Tækni-
legar leiðir til að nota eyðimerkur-
sand gætu verið mögulegar, hægt er
að nota mulningsvélar til að búa til
sand og svo hefur sömuleiðis reynst
ágætlega að endurvinna steypu og
malbik, en allt kostar þetta pen-
ing og hingað til telja sérfræðing-
ar að hagkvæmast sé að nota sand
úr náttúrunni - bara ef það væri nú
einhver staður á hnettinum þar sem
nóg er til af hágæða sandi, og að
sandurinn þar væri ekki samofinn
viðkvæmu lífríki.
Vísindamenn frá Danmörku og
Bandaríkjunum birtu grein í Nat-
ure Sustainability í febrúar árið
2019 um kosti þess að stunda efnis-
töku á sandi á Grænlandi, því þar
væri ógrynni af efni sem kæmi und-
an jöklunum sem hopa meira og
meira með hverju árinu. Þar greina
þeir frá því að grænlenski jöklas-
andurinn væri mjög hentugur í
margskonar iðnað og gæti skapað
árlegar útflutningstekjur upp tæp-
lega 300 milljarða íslenskra króna,
jafnvel meira ef heimsmarkaðsverð
á sandi heldur áfram að hækka. Til
samanburðar má hugsa um að áætl-
aðar heildartekjur ríkissjóðs á Ís-
landi eru um 772 milljarðar króna
fyrir árið 2021.
Með þetta allt saman í huga tel
ég núna líklegt að fjárfestarnir sem
keyptu jörðina Hjörleifshöfða í
Mýrdalshreppi á Suðurlandi, með
þeim yfirlýstu hugmyndum um að
nýta þar svæði í efnistöku á vikri og
sandi, hafi verið heppnir og einstak-
lega klókir með að geta keypt alla
þessa 11.500 hektara af sandi á rétt
í kringum 500 milljónir króna. Ég
legg til að Vestlendingar, með sína
góðu útflutningshöfn á Grundar-
tanga, horfi í kringum sig og skoði
hvort þeir sem byggðu húsin sín á
sandi hafi í raun verið eitthvað svo
heimskir?
Geir Konráð Theódórsson
Úr sandi byggja
Vestlendingar auð