Skessuhorn


Skessuhorn - 02.12.2020, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 02.12.2020, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2020 9 Smiðjuvellir 32 - 300 Akranes - Sími 431 5090 - Fax 431 5091 - www.apvest.is Bráðum koma blessuð jólin... Mikið úrval af allskyns gjafavöru Apótek Vesturlands verður með fjölbreytt úrval af allskyns gjafavöru fyrir jólin. Mikið úrval af bað- og ilmvöru auk ýmissa annarra góðra kosta. Komdu og kannaðu úrvalið. Afgreiðslu tími: Virka da ga 9–18 Laugar daga 10–14 Sunnud aga 12–14 FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ www.frumherji. is Búðardalur 2020 Bifreiðaskoðun verður hjá K.M. þjónustunni ehf. Vesturbraut 20 Aðeins fimmtudaginn 3. desember Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00 Tímapantanir í síma 570 – 9090 S K E S S U H O R N 2 02 0 Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, kynnti á mánudaginn frumvarp um sam- þættingu þjónustu í þágu farsæld- ar barna. Frumvarpið er afurð víð- tæks samstarfs fjölda aðila með samþættingu þjónustu í þágu barna að markmiði, sem og að auka sam- vinnu og bæta samfellu þjónustu við börn og að hagsmunir barna skuli ávallt hafðir í fyrirrúmi. „Verkefnið er umfangsmikið og felur sennilega í sér mestu breytingu sem gerð hef- ur verið á umhverfi barna á Íslandi í áratugi,“ sagði ráðherra þegar hann kynnti frumvarpið. Á yfirstandandi kjörtímabili hef- ur verið unnið að undirbúningi lagaumhverfis sem miðar að því að tryggja börnum og aðstandendum þeirra, snemmbæran, samþættan stuðning þvert á kerfi. Vinnan hef- ur verið undir forystu félagsmála- ráðuneytisins en í víðtæku sam- ráði við fjölmarga aðila, svo sem önnur ráðuneyti, þingmannanefnd um málefni barna, félagasamtök og einstaklinga sem hafa lagt hönd á plóg. „Stefnan sem er lögð til í frumvarpinu er að láta mismunandi hluta kerfisins tala betur saman og loka „gráum svæðum“. Þannig er markmiðið að barnið verði hjartað í kerfinu. Frumvarpið tekur til allrar þjónustu sem fer fram innan skóla- kerfisins; í leik-, grunn- og fram- haldsskólum, á frístundaheimilum og í félagsmiðstöðvum. Það tek- ur einnig til þjónustu sem er veitt innan heilbrigðiskerfisins, í heilsu- gæslu, á heilbrigðisstofnunum og sjúkrahúsum og félagsþjónustu sem er veitt innan sveitarfélaga, barna- verndarþjónustu og þjónustu við börn með fatlanir, svo dæmi séu til tekin.“ Þá segir að í frumvarp- inu sé lögð rík áhersla á að börn og foreldrar hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana, ef á þarf að halda. Með breytingunum er leitast við að tryggja að foreldr- ar og barn fái upplýsingar um þjón- ustu í þágu barnsins og þjónustu- veitendur, foreldrar og börn, eftir atvikum, móti í sameiningu mark- mið, úrræði og mat á árangri. „Allt frá því ég tók við ráð- herraembætti hefur forgangsverk- efni mitt verið að bæta enn frekar hvernig við þjónustum börn og fjöl- skyldur þeirra. Í víðtæku samráði og samstarfi fjölmargra aðila, leik- inna, lærðra, innan þings og utan, hefur verið unnið að því í hartnær þrjú ár að smíða undirstöður undir kerfi sem tryggir að börn og fjöl- skyldur þeirra falli ekki á milli kerfa og verði ekki send á eigin ábyrgð milli þjónustuaðila innan sveitarfé- laga og ríkisstofnana. Verkefnið er risavaxið og ég held að það sé óhætt að segja að við séum að horfa upp á stærstu kerfisbreytingu í þessum málaflokki á Íslandi undanfarna áratugi,“ sagði Ásmundur Einar í kynningu sem hann hélt um frum- varpið á mánudag. mm Frumvarp um bættan hag og samþætta þjónustu við börn

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.