Skessuhorn


Skessuhorn - 02.12.2020, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 02.12.2020, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 202010 Dýpkunarskipið Dísa hefur und- anfarið verið við dýpkunarfram- kvæmdir í Ólafsvíkurhöfn. Var í heildina dælt upp á milli 40 og 50 þúsund rúmmetrum. 12 þúsund af þessum rúmmetrum voru nýttir til landfyllingar á plani. Um síðustu helgi var svo klárað að keyra efni ofan á planið og var það B. Vigfús- son sem sá um það. Keyrðu starfs- menn fyrirtækisins á milli 6 og 7 hundruð rúmmetrum af efni í plan- ið. Er ráðgert að þarna verði bygg- ingarlóð fyrir atvinnuhúsnæði næst þegar farið verður í skipulagsvinnu. Þangað til nýtist planið til ýmissa hluta enda stórt, eða um 2000 fer- metrar að stærð. Verður hægt að geyma þar vagna og báta ásamt ýmsu öðru og fer það nánast strax í notkun. Von er á nýju stálþili sem koma mun um eða eftir áramótin, að sögn starfsmanna hafnarsjóðs. Verður þilið geymt á planinu þang- að til það verður rekið niður næsta sumar. þa Umhleypingar hafa einkennt veðr- áttuna undanfarið; suðlægar áttir ríkjandi með tilheyrandi gulum og appelsínugulum viðvörunum veð- urfræðinga á víxl. Þessi vika er þar engin undantekning. Meðfylgjandi mynd var tekin í síðustu viku í vatnsveðri sem þá gekk yfir vestanvert landið. Höfðu niðurföllin á Ólafsbraut í Ólafs- vík ekki undan og náði vatnið frá gatnamótum við Grundarbraut og nánast alla leið að hafnarvoginni. Var vatnsmagnið svo mikið um tíma að varhugavert var fyrir litla bíla að vera þarna á ferðinni. þa Kristján Þór Júlíusson, sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra, hef- ur lagt fram á Alþingi frumvarp til breytingar á lögum um lax- og sil- ungsveiði. Miða þær einkum að því að styrkja minnihlutavernd í veiði- félagi með sérstökum reglum um atkvæðavægi á fundum. Á síðasta löggjafarþingi var lagt fram frum- varp sem stefndi að sömu mark- miðum, en það varð ekki að lögum. Unnið hefur verið með þær athuga- semdir og tillögur sem fram komu við meðferð málsins á Alþingi og er frumvarpið afrakstur þeirrar vinnu. Með frumvarpinu er lagt til að komi fram tillaga á félagsfundi veiðifélags um að ráðstafa rétti til stangveiði til félagsmanns í veiði- félaginu eða til aðila sem tengjast honum þarf samþykki hið minnsta 2/3 hluta atkvæða. Þetta gildir þó aðeins ef hlutaðeigandi félagsmaður eða aðilar sem tengjast honum fara að lágmarki með 30% atkvæða. Þá er einnig lagt til að sama aukinn meirihluta þurfi til að draga úr veiði frá því sem tíðkast hafi á viðkoman- di veiðisvæði, nema breytingar séu óverulegar. Þá eru með frumvarpinu lagðar til fernar aðrar breytingar. Í fyrsta lagi breytingar sem skerpa á úr- ræðum Fiskistofu, m.a. vegna ólög- mætra framkvæmda. Í öðru lagi breytingar sem auðvelda sameigen- dum að taka þátt í atkvæðagreiðs- lum innan veiðifélaga. Í þriðja lagi breyting á kostnaðarfyrirkomulagi vegna starfa matsnefndar skv. VII. kafla laganna. Loks í fjórða lagi breyting á skipan matsnefndar. mm Fagráð í hrossarækt hefur valið þau hrossaræktarbú sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands sem Rækt- unarbú ársins. Valið stóð á milli 50 búa sem náð höfðu athyglisverð- um árangri á árinu. Reglur fagráðs um ræktunarbú ársins má finna inn á heimasíðu Félags hrossabænda, fhb.is. Tilnefnd eru tólf efstu bú ársins að loknum útreikningi. Í ár voru þrjú bú jöfn í tólfta sæti og eru búin því þrettán í ár. Tilnefnd bú hljóta viðurkenningu á ráðstefn- unni Hrossarækt 2020 sem haldin verður rafrænt að þessu sinni laug- ardaginn 12. desember næstkom- andi. Eitt bú á Vesturlandi er í hópi tilefndra búa; Skipaskagi, bú Sigur- veigar Stefánsdóttur og Jóns Árna- sonar á Litlu-Fellsöxl. Í stafrófsröð eru tilnefnd bú: Efri-Fitjar, Gréta Brimrún Karls- dóttir, Gunnar Þorgeirsson og Tryggvi Björnsson Efsta-Sel, Daníel Jónsson og Hilmar Sæmundsson Fet, Karl Wernersson Flagbjarnarholt, Bragi Guð- mundsson, Valgerður Þorvalds- dóttir, Sveinbjörn Bragason, Þór- unn Hannesdóttir og fjölskylda Garðshorn á Þelamörk, Agnar Þór Magnússon og Birna Tryggva- dóttir Thorlacius Hjarðartún, Óskar Eyjólfsson Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar, Bergur Jónsson og Olil Amble Prestsbær, Inga og Ingar Jensen Ragnheiðarstaðir, Helgi Jón Harð- arson og fjölskylda Skagaströnd, Þorlákur Sigurður Sveinsson og Sveinn Ingi Gríms- son Skipaskagi, Jón Árnason og Sigur- veig Stefánsdóttir Torfunes, Baldvin Kr. Baldvinsson Þúfur, Mette Mannseth og Gísli Gíslason. mm Ný athafnalóð verður til með efni úr höfninni Lax reynir uppgöngu í Glanna í Norðurá. Vill styrkja minnihlutavernd í veiðifélögum Umhleypingar í veðrinu Leifur Gunnarsson situr hér stóðhestinn Skagann frá Skipaskaga. Þetta er í átt- unda sinn sem Skipaskagi fær tilnefningu sem hrossaræktarbú landsins. Þrettán hrossaræktarbú tilnefnd til verðlauna

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.