Skessuhorn - 02.12.2020, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 20202
Nú er ljóst að í ár verða jólin frá-
brugðin því sem flestir eiga að
venjast þar sem minna verður
um samverustundir í fjölmenn-
um hópum. Nú er því tíminn til
að læra á fjarfundabúnað og hin
ýmsu forrit sem hægt er að nota
til að „hitta“ fólk rafrænt. Njótum
rafrænna samverustunda í að-
draganda jóla.
Á morgun, fimmtudag, er spáð
norðanátt 15-23 m/s en 20-28
m/s suðaustanlands. Snjókoma
eða él verður á Norður- og Aust-
urlandi. Frost 2-9 stig. Á föstu-
dag er útlit fyrir norðan 13-20
m/s með éljagangi norðan- og
austantil á landinu en bjartviðri
sunnan- og vestantil. Lægir og
styttir upp síðdegis, fyrst vest-
ast á landinu. Herðir á frosti. Á
laugardag og sunnudag er út-
lit fyrir hæga breytilega átt og
víða bjartviðri, en suðvestan 3-8
m/s og dálítil él á Vestfjörðum.
Frost 5-18 stig. Á mánudag eru
líkur á suðaustanátt með hlýn-
andi veðri.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns: „Færð þú daga-
tal til að telja niður í jólin?“ Mik-
ill meirihluti lesenda, eða 82%, fá
ekkert dagatal í aðdraganda jóla.
4% fá bjórdagatal, 4% fá nammi-
dagatal, 4% fá snyrtivörudagatal
og önnur 4% fá öðruvísi daga-
tal en talin voru upp í svarmögu-
leikunum. Þá fengu aðrir daga-
talssvarmöguleikar 1%.
Í næstu viku er spurt:
Ætlar þú að senda
jólakort í ár?
Eigendur GRun í Grundarfirði
hafa gefið tæp þrjú tonn af ýsu
til Fjölskylduhjálpar Íslands og
leggja þannig til mat í níu þús-
und máltíðir. Þeir eru Vestlend-
ingar vikunnar að þessu sinni.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Síðastliðinn mánudag sendi útgerð-
ar- og fiskvinnslufyrirtækið G.Run
hf. í Grundarfirði frá sér tæp þrjú
tonn af ýsu. Fiskurinn er sendur að
gjöf til Fjölskylduhjálpar Íslands.
Flutningafyrirtækið Ragnar og Ás-
geir ehf. sá svo um að koma farm-
inum frítt suður. Eigendur GRun
vona að gjöfin komi að góðu not-
um, en áætla má að þarna sé um að
ræða um níu þúsund máltíðir.
mm
Heilbrigðisráðherra hefur stað-
fest reglugerð um forgangsröðun
við bólusetningu vegna Covid-19.
Tilgangur reglugerðarinnar er að
ákveða forgangsröðunina á grund-
velli málefnalegra sjónarmiða og
með eins miklum fyrirsjáanleika
og mögulegt er. Við smíði reglu-
gerðarinnar var horft til leiðbein-
Útgáfan út árið
VESTURLAND: Skessuhorn
mun koma út samkvæmt venju
næstu tvo miðvikudaga; 9. og
Jólablaðið 2020 kemur svo út
miðvikudaginn 16. desember.
Það verður stærsta blað ársins
og jafnframt það síðasta. Fyrsta
blað nýs árs kemur svo út 6.
janúar. Til að koma á framfæri
efni og auglýsingum í Jólablað-
ið er áhugasömum bent á frest
sem rennur út föstudaginn 11.
desember. Auglýsingapantanir
þurfa að berast sem fyrst á net-
fangið auglysingar@skessuhorn.
is og beiðni um birtingu efn-
is og tilkynninga á skessuhorn@
skessuhorn.is. -mm
Ekki spilað meira
á árinu
KARFAN: „Í ljósi ákvörðun-
ar heilbrigðisráðherra um fram-
lengingu sóttvarnarráðstafana til
9. desember er öruggt að ekki
verður keppt frekar í körfubolta
2020,“ segir í tilkynningu frá
KKÍ. „Vonir standa til að keppni
geti hafist snemma í janúar, en
framhaldið ræðst algjörlega af
stöðu faraldursins og þeim tak-
mörkunum sem gilda hverju
sinni. Skrifstofa KKÍ vinnur að
breyttu leikjadagatali, sem verð-
ur kynnt félögunum seinna í des-
ember.“ -mm
Átján greindir
með veiruna í gær
LANDIÐ: Átján innanlands-
smit kórónuveirunnar greind-
ust á mánudag skv. uppfærð-
um tölum á covid.is, og þar af
voru ellefu í sóttkví. Á þriðjudag
voru 199 í einangrun á landinu
vegna veirunnar og 689 í sóttkví.
40 liggja á sjúkrahúsi og þar af
tveir á gjörgæslu. Einn lést síð-
asta sólarhringinn vegna Covid
og hafa nú 27 látist hér á landi
vegna veirunnar. Nýgengi inn-
anlandssmita er nú komið í 41,5
sem er hækkun frá því á mánu-
dag þegar það var 38,5. -arg
Hækka
tómstundastyrk
HVALFJ.SV: Sveitarstjórn
Hvalfjarðarsveitar samþykkti á
fundi þriðjudaginn 24. nóvem-
ber að hækka árlegan tóm-
stundastyrk úr 60 þúsund krón-
um í 70 þúsund krónur á ári frá
1. janúar næstkomandi. Styrkur-
inn er ætlaður börnum og ung-
mennum að 18 ára aldri með
lögheimili í sveitarfélaginu. -arg
Ákveða forgangsröðun vegna bólusetningar
inga Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unarinnar um forgangsröðun við
bólusetningu vegna Covid-19 og
sjónarmiða sem fram hafa komið í
sambærilegri vinnu hjá nágranna-
þjóðum.
Líklegt er að notuð verði fleiri
en ein tegund bóluefna hér á landi.
Gera má ráð fyrir að bóluefnin
kunni að henta ólíkum hópum með
mismunandi hætti sem getur haft
áhrif á forgangsröðunina. Sótt-
varnalæknir ber ábyrgð á skipu-
lagningu og samræmingu bólu-
setningar, svo sem hvaða bóluefni
er notað og fyrir hvaða hópa og
er einnig heimilt að víkja frá for-
gangsröðun reglugerðarinnar ef
nauðsyn ber til.
Lögð verður sérstök áhersla á að
bólusetja fyrst þá einstaklinga sem
eru í framlínunni í baráttunni við
sjúkdóminn. Þetta á við um heil-
brigðisstarfsfólk og annað starfs-
fólk sem starfar á bráðamóttökum
og gjörgæsludeildum sjúkrahúsa,
á Covid-19 göngudeild og legu-
deildum fyrir sjúklinga sem smit-
ast hafa af Covid-19, heilbrigðis-
starfsmenn sem framkvæmda sýna-
tökur vegna gruns um Covid-19
og starfsfólk hjúkrunar- og dvalar-
heimila. Bólusetning einstaklinga
sem dvelja á hjúkrunar- og dval-
arheimilum og öldrunardeildum
sjúkrahúsa verður einnig í miklum
forgangi.
Í reglugerðinni eru skilgreind-
ir tíu forgangshópar. Í mestum
forgangi eru tiltölulega fámennir
hópar en áætlað er að að í fyrstu
fimm forgangshópunum séu rúm-
lega 20.000 einstaklingar. Í sjötta
hópnum fjölgar hins vegar um-
talsvert því þar er forgangsrað-
að þeim sem eru 60 ára og eldri. Í
sjöunda hópnum eru einstaklingar
með undirliggjandi langvinna sjúk-
dóma, í áttunda hópnum starfsfólk
leik,- grunn- og framhaldsskóla og
tiltekið starfsfólk félags- og vel-
ferðarþjónustu, í níunda hópnum
einstaklingar sem eru í viðkvæmri
stöðu vegna félagslegra- og efna-
hagslegra aðstæðna og loks eru í tí-
unda hópnum allir aðrir sem óska
bólusetningar, eftir því sem sótt-
varnalæknir ákveður.
Ekki er gert ráð fyrir í reglugerð-
inni að börnum fæddum 2006 og
síðar verði boðin bólusetning gegn
Covid-19 nema þau hafi undirliggj-
andi langvinna sjúkdóma og séu í
sérstökum áhættuhópi. Reglugerð-
in hefur verið send Stjórnartíðind-
um og öðlast gildi við birtingu.
mm/ Ljósm. LHS/Þorkell.
Höfuðstöðvar G.Run
í Grundarfirði.
Ljósm. tfk.
GRun lætur gott af sér
leiða fyrir hátíðirnar
Ýsa á brettum á leið til Fjölskyldu-
hjálpar Íslands.
Ljósm. GRun á Facebook.