Skessuhorn - 02.12.2020, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 20208
Símasambands-
laust á Bröttu-
brekku
VESTURLAND: Ökumað-
ur flutningabifreiðar festi
bifreiðina í djúpum snjó á
Bröttubrekku aðfararnótt
fimmtudags. Ekkert símasam-
band er á staðnum og þurfti
ökumaður að ganga hálfan
kílómetra til þess að komast í
samband til þess að tilkynna
um óhappið. Á vef Vegagerð-
arinnar var eingöngu skráð
hálka á Bröttubrekku en ekki
hinn djúpi snjór sem bifreiðin
festist í. Að sögn lögreglu er of
mikið um símasambandslausa
kafla á þjóðvegum vestanlands
og er ljóst að það gæti haft al-
varlegar afleiðingar ef t.a.m.
slasað fólk getur ekki tilkynnt
um slys símleiðis. -frg
Ferðamaður í
vanda við
Kirkjufell
GRUNDARFJ: Síðdegis á
fimmtudag barst Neyðarlínu
tilkynning um óhapp á bíla-
plani við Kirkjufell. Erlend-
ur ferðamaður hafði ætlað
að gista í bifreið sinni á bíla-
planinu en eitthvað hafði fok-
ið á bifreiðina og brotið rúðu.
Haft var samband við bílaleig-
una og gekk hún í málið. Að
sögn lögreglu var brjálað veð-
ur á svæðinu þegar þetta gerð-
ist. -frg
Fékk á sig snjó-
skafl af
flutningabíl
VESTURLAND: Að morgni
fimmtudags barst Neyðarlínu
tilkynning um bílveltu á Vest-
urlandsvegi við gatnamótin að
Hvalfjarðarvegi. Ökumaður
var á leið frá Akranesi í Borg-
arnes þegar hann fékk á sig
snjóskafl af flutningabíl sem
hann mætti. Við þetta missti
hann stjórn á bílnum, ók út af
og valt. Ökumaður slasaðist
ekki en fjarlægja þurfti bifreið-
ina af vettvangi með kranabíl.
-frg
Árekstur á
Vesturlandsvegi
VESTURLAND: Síðdeg-
is á laugardag barst Neyðar-
línu tilkynning um árekstur
tveggja bifreiða á gatnamót-
um Vesturlandsvegar og Akra-
fjallsvegar. Þar hafði bifreið
verið ekið af Akrafjallsvegi
í veg fyrir bifreið á Vestur-
landsvegi. Einn hlaut andlits-
áverka í slysinu og var fluttur
á sjúkrahúsið á Akranesi. Fjar-
lægja þurfti ökutæki af slysstað
með kranabíl. -frg
Heimilisofbeldi
VESTURLAND: Að sögn
lögreglu er nokkuð um mál
er varða heimilisofbeldi. Að
minnsta kosti tvö slík mál eru
til meðferðar hjá lögreglu,
annað í Borgarnesi og hitt á
Akranesi. Ekki fengust nánari
upplýsingar um málin en að
sögn lögreglu eru þau í hefð-
bundnu ferli. -frg
Bílvelta við sum-
arbústaðahverfi
VESTURLAND: Snemma á
mánudagsmorgun barst Neyð-
arlínu tilkynning um bílveltu
við sumarbústaðahverfi í Borg-
arbyggð. Engin slys urðu á fólki
og aðstoðaði bóndinn á næsta
bæ, eins og bænda á næsta bæ
er von og vísa, við að ná bifreið-
inni upp á veg. Talsvert er um
að fólk dvelji í sumarbústöðum
á Covid tímum og skapar það
aukið álag á viðbragðsaðila víða
á Vesturlandi. -frg
Framlengja
ferðagjöf
LANDIÐ: Þórdís Kolbrún R
Gylfadóttir, ferðamálamála-
ráðherra hefur kynnt í rík-
isstjórn frumvarp um fram-
lengingu á lögum um ferða-
gjöf. Með breytingunni verð-
ur gildistími þeirra ferðagjafa
sem ekki hafa verið nýttar eða
ekki nýttar til fulls framlengdur
til 31. maí 2021, eða um fimm
mánuði. Einstaklingar með ís-
lenska kennitölu og skráð lög-
heimili á Íslandi, fæddir 2002
og fyrr, fengu Ferðagjöf að and-
virði 5000 kr. í júní. Gjöfin er
liður í því að styðja við bakið á
íslenskri ferðaþjónustu í kjöl-
far heimsfaraldurs kórónuveiru.
-mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
21.-27. nóvember
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes: 3 bátar.
Heildarlöndun: 8.624 kg.
Mestur afli: Ísak AK-67: 7.042
kg. í fjórum löndunum.
Arnarstapi: 3 bátar.
Heildarlöndun: 34.343 kg.
Mestur afli: Kvika SH-23:
27.649 kg. í fjórum löndunum.
Grundarfjörður: 6 bátar.
Heildarlöndun: 272.100 kg.
Mestur afli: Sigurborg SH-12:
72.638 kg. í einni löndun.
Ólafsvík: 16 bátar.
Heildarlöndun: 199.030 kg.
Mestur afli: Óli G GK-50:
33.384 kg. í fimm löndunum.
Rif: 10 bátar.
Heildarlöndun: 144.844 kg.
Mestur afli: Hamar SH-224:
42.455 kg. í einni löndun.
Stykkishólmur: 5 bátar.
Heildarlöndun: 74.252 kg.
Mestur afli: Bára SH-27: 4.584
kg. í þremur löndunum.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Sigurborg SH - 12 - GRU:
72.638 kg. 23. nóv.
2. Farsæll SH – 30 - GRU:
67.788 kg. 24. nóv.
3. Hringur SH - 153 - GRU:
64.952 kg. 25. nóv.
4. Runólfur SH - 135 - GRU:
64.201 kg. 23. nóv.
5. Þórsnes SH - 109: STY:
58.937 kg. 25. nóv.
-frg
Á fundi bæjarráðs Akraneskaup-
staðar í síðustu viku voru kynntar
stjórnkerfisbreytingar sem stefnt
er að taki gildi um áramótin næstu.
Tildrög þeirrar vinnu má rekja til
samþykktar bæjarráðs Akraness
27. febrúar sl. um að ráðast í um-
bótavinnu á rekstri og innra vinnu-
lagi kaupstaðarins. „Markmið þess
verkefnis var að ná fram aukinni
skilvirkni í starfsemi stjórnsýslu
sveitarfélagsins með breytingum á
stjórnun, verkferlum og samstarfi,“
segir í fundargerð bæjarráðs. Bæj-
arráð samþykkti drög að breyting-
unum fyrir sitt leyti með atkvæð-
um fulltrúa meirihlutans, en Rak-
el Óskarsdóttir fulltrúi Sjálfstæðis-
flokks í bæjarráði, greiddi atkvæði á
móti. Í bókun sagði hún tillögurnar
hafa í för með sér kostnaðarauka á
stærsta útgjaldalið sveitarfélagsins,
launum og launatengdum gjöldum,
á sama tíma og kreppi að og sveitar-
félagið þurfi að horfa til verulegrar
hagræðingar í rekstri. Málsmeðferð
við afgreiðslu breytinganna verð-
ur flýtt, þannig að það verður tek-
ið fyrir í bæjarstjórn 1. og 15. des-
ember.
Í nýju skipuriti felst m.a. að ný
eining verður stofnuð undir heit-
inu „Skrifstofa bæjarstjóra“. Undir
hana fellur m.a. þjónusta og staf-
ræn þróun, tölvu- og kerfismál,
verkefnastofa, atvinnuþróun, mark-
aðsmál, ferðamál og menningar-
og safnamál. Sædís Alexía Sigur-
mundsdóttir tekur við því starfi. Þá
verður ráðið í nýja stöðu verkefna-
stjóra yfir verkefnastofu og tekur
Ella María Gunnarsdóttir við því
starfi. Starf forstöðumanns menn-
ingar- og safnamála er því lagt nið-
ur. Þær Ella María og Sædís Alexía
hafa báðar verið starfandi hjá kaup-
staðnum og færast því til í starfi. Þá
verður starf skjalastjóra / persónu-
verndarfulltrúa auglýst á nýju ári.
Núverandi verkefnastjóra skjala-
mála hefur verið boðið nýtt starf
sem felst í 50% vinnu í þjónustu-
veri og 50% til aðstoðar á skipu-
lags- og umhverfissviði. Rekstur
Guðlaugar við Langasand verð-
ur í umsjón skrifstofustjóra. Þá er
ákveðið að rekstrarumhverfi Akra-
nesvita/ upplýsingamiðstöðvar
verði breytt og starfsmanni boð-
ið að vinna í 20% starfi í móttöku
hópa í vitanum og 80% stöðu í
Guðlaugu og/eða innan íþrótta-
mannvirkja. Ágústu Andrésdóttur
forstöðumanni íþróttamannvirkja
verður boðið að snúa aftur til starfa
í fullu stöðugildi, en hún hefur ver-
ið í 30% starfi undanfarna fimm
mánuði. Ásamt því verður gerð
breyting innan íþróttamannvirkja
til þess að styrkja starfsemina og
verða vaktstjórar á vöktum.
Þá verða nýráðningar mann-
auðsstjóra og skipulagsfulltrúa
hluti af heildarbreytingarferlinu.
Breyting verður gerð á Héraðs-
skjalasafninu þar sem lagt verður
niður 50% staða í hagræðingar-
skyni og hefur Erlu Dís Sigurjóns-
dóttur verið boðin 100% staða
héraðsskjalavarðar til eins árs en til
skoðunar er fyrirkomulag safnsins
til framtíðar. Breyting verður gerð
innan fjármáladeildar þar sem inn-
kaupa- og greiningarfulltrúi verð-
ur ráðinn til þess að ná fram betri
og markvissari innkaupum til þess
að stýra betur stórum útgjalda-
liðum í rekstri Akraneskaupstað-
ar. Starf fjármálastjóra verður lagt
niður og mun sviðsstjóri stjórn-
sýslu- og fjármálasviðs ásamt verk-
efnastjóra í fjármáladeild vera fal-
ið að taka við aukninni ábyrgð og
verkefnum. Einnig verða gerð-
ar breytingar innan velferðar- og
mannréttindasviðs. Ráðinn verður
verkefnastjóri tímabundið í inn-
leiðingu barnvæns samfélags og
snemmtæka íhlutun og auk þess
ráðinn forstöðumaður yfir nýrri
búsetueiningu á Beykiskógum.
Vegna aukins álags í barnavernd
verður ráðinn inn starfsmaður
tímabundið. Heimild er í tillög-
unum að áframhaldandi stöðu-
hlutfalli ráðgjafa í málefnum fatl-
aðs fólks í hálft ár.
mm
Akraneskaupstaður innleiðir nýtt
skipurit og stjórnkerfisbreytingar
Nýtt skipurit Akraneskaupstaðar.
Í sumar fékk Borgnesingurinn Ester
Alda Hrafnhildar Bragadóttir, nemi
við Háskólann í Groningen í Hol-
landi, styrk frá Nýsköpunarsjóði
námsmanna til að gera drög að sjálf-
bærnistefnu fyrir Borgarbyggð og í
beinu framhaldi að vinna aðgerða-
áætlun fyrir umrædda stefnu. Est-
er stundar nám í Global Respon-
sibility and Leadership, eða hnatt-
rænni ábyrgð og leiðtogahæfni líkt
og það útleggst á íslensku.
„Sjálfbærnistefna byggist á heims-
markmiðum Sameinuðu þjóðanna
og það gerir einnig námið henn-
ar. Ester hafði því góðan grunn til
þess að leggja af stað í þessa vegferð
með sveitarfélaginu. Við vinnslu
verkefnisins voru heimsmarkmið-
in grandskoðuð og sérstök áhersla
lögð á þá þætti sem Borgarbyggð á
lengst í land með að uppfylla. Auk
þess skoðaði Ester Alda sambæri-
legar stefnur annarra sveitarfélaga
sem og núverandi stefnur Borgar-
byggðar sem gætu tengst heims-
markmiðunum. Út frá fyrirliggj-
andi gögnum gerði Ester Alda um-
rædd drög sem voru kynnt fyrir
byggðarráði í september,“ segir í
tilkynningu frá Borgarbyggð.
Það kom Ester Öldu á óvart
hversu mikinn meðbyr hún fékk
við vinnslu verkefnisins. Þeir aðil-
ar sem hún ræddi við voru afar já-
kvæðir og spenntir fyrir drögunum
og að sama skapi var ánægjulegt
að sjá hversu góð viðbrögðin voru
við niðurstöðum verkefnisins. Hún
vonar að jákvæðnin verði til þess
að verkefnið komist í réttan farveg
innan sveitarfélagsins, segir í til-
kynningu.
mm
Ester Alda Hrafnhildar Bragadóttir. Ljósm. borgarbyggd.is
Innleiða sjálfbærnistefnu fyrir Borgarbyggð