Skessuhorn - 02.12.2020, Side 17
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2020 17
Breytt útlit
Kolbrún Ingvarsdóttir er módel hjá Önnu Siggu
í Breyttu útliti að þessu sinni. Sjálf notar hún, að
eigin sögn, aldrei neinar förðunarvörur né setur
eitthvað í hárið og því var þetta spennandi áskorun
að fá að hafa hendur í hári hennar. „Að þessu leyti
var Kolla mjög spennandi módel til breytinga fyrir
mig, náttúruleg eins og hún segir. Ég hélt hárinu
ólituðu og ákvað að hafa hana í Pixie stíl sem er
mjög stutt klipping og hefur verið vinsæl í mörg
ár. Förðuninni var haldið í lágmarki; en samt settur
smá farði, kinna- og varalitur, en ég lagði áherslu
á augun þar sem Kolla er með mjög löng augnahár
sem hún notar aldrei maskara á. Þá langaði mig að
leggja áherslu á þau með nóg af maskara og smá
augnskugga. Við vorum alsælar með útkomuna,“
segir Anna Sigga.
Því má bæta við að samstarfsfélagar Kollu til
fjórtán ára þekktu ekki konuna á „eftir“ – ljós-
myndinni þegar myndin barst á ritstjórn, en Kolla
hafði ekki látið þá vita hvað í vændum var. mm
Kolla Ingvars komin í stólinn og væntanleg breyting
framundan.
Kolla Ingvars í extrema breytingu
Samstarfsfélagar hennar þekktu ekki konuna þegar
Anna Sigga sendi ljósmyndina á ritstjórn.
Kveikt var á ljósum jólatrjáa í Snæ-
fellsbæ á mánudagsmorgun. Í ljósi
stöðunnar í samfélaginu var ekki há-
tíðlegur viðburður fyrsta sunnudag í
aðventu eins og vaninn er, þar sem
íbúar koma saman og dansa í kring-
um jólatrén í Ólafsvík og á Hellis-
sandi. Þess í stað tendruðu börn í
leik- og grunnskóla Snæfellsbæjar
ljósin með sínum hópum á skólatíma
að morgni mánudags. En þetta hafði
þó ekki áhrif á börnin sem skemmtu
sér hið besta við að ganga í kringum
jólatréð og syngja með grímuklædd-
um jólasveininum og þiggja nammi-
poka , af
Síðasta sunnudag var upphaf að-
ventunnar og voru margir sem
gerðu sér dagamun þrátt fyrir að
ekki hafi mikið farið fyrir hefð-
bundnum hátíðahöldum. Í Grund-
arfirði féll árlegur aðventumarkað-
ur kvenfélagsins Gleym mér ei nið-
ur með öllum tilheyrandi viðburð-
um. Þó var útdráttur í leikfanga-
happdrætti og tónleikar sendir út
yfir vefinn. Úrslit í ljósmyndasam-
keppni Grundarfjarðarbæjar voru
kunngerð en þar hlutu Olga Sæ-
dís Aðalsteinsdóttir og Salbjörg
Nóadóttir vegleg verðlaun. Þá stóð
Grundarfjarðarbær fyrir ratleik fyr-
ir fjölskyldur bæjarins og heppnað-
ist hann vel. Margir fóru um bæinn
og leystu ýmsar þrautir með snjall-
tæki að vopni. Svo voru það með-
limir í Lionsklúbbi Grundarfjarðar
sem sóttu jólatréð upp í skógrækt
og settu upp á sinn hefðbundna
stað þótt jólasveinarnir hafi ekki
þorað að láta sjá sig enda allir með
hugann við sóttvarnir og að halda
fjarlægð.
tfk
Miklar framkvæmdir hafa verið í
Sjómannagarðinum í Ólafsvík á
þessu ári og því síðasta, en verkið
hófst haustið 2018. Í stuttu spjalli
við Pétur Steinar Jóhannsson, sem
situr í sjómannadagsráði Ólafsvíkur
ásamt þeim Birni E Jónassyni, Jón-
asi Gunnarssyni, Illuga Jónassyni
og Jens Brynjólfssyni, kemur fram
að í haust hafi verið unnið að frá-
gangi á ljósum í stéttinni sem ligg-
ur upp að styttunni af sjómannin-
um. Einnig var komið fyrir ljósum
á þrjá fallega steina sem settir voru
í stéttina fyrir framan hliðið. Fund-
ust þeir í fjörunni eftir talsverða
leit. „Þessir steinar eru sérstakir
að lögun og með fallegu mynstri
sem hægt er að lesa í. Í stýrishjól-
inu kringum styttuna eru ljós sem
lýsa beint upp í loftið en í stéttinni
eru ljós sem vísa bæði fram og aft-
ur og mynda mjög fallega lýsingu,“
segir Pétur. Hann segir að fjármagn
til verksins hafi fengist með fram-
lögum frá útgerðarmönnum og að-
ilum utan sem innan bæjarins. Þá
hefur Snæfellsbær einnig lagt sitt
lóð á vogarskálina til að af þessu
gæti orðið.
Allar framkvæmdir í garðinum
voru unnar af aðilum í Snæfellsbæ
sem allir hafa lagt metnað sinn í
að vinna verkið sem best. „Öllum
þessum aðilum vill Sjómannadags-
ráð Ólafsvíkur þakka kærlega fyr-
ir,“ segir Pétur. „Eins og áður hef-
ur komið fram þá er unnið eftir
glæsilegum teikningum Valgerðar
Kristmannsdóttur í Ólafsvík sem
hún færði sjómönnum að gjöf árið
2011. Framundan er svo að laga
fyrir framan aðalhliðið og er ætl-
unin einnig að endurgera göngu-
stíginn frá Kaldalæk og út á Mýr-
arholt. Einnig er í skoðun að gera
betri aðstöðu í garðinum. Hann er
vel staðsettur í hjarta bæjarins og
gæti tekið við stærri hátíðum eins
og sjómannadeginum og Ólafsvík-
urgleðinni eins og dæmin sanni,“
segir Pétur. þa
Verslunin Bjarg á Akranesi hefur
opnað vefverslun; versluninbjarg.
is. Bjarg er til húsa við Stillholt á
Akranesi en þar er hægt að versla
föt, snyrtivörur og ýmsa fylgihluti
fyrir bæði dömur og herra. Það er
Bára Ármannsdóttir sem stendur
að vefversluninni. „Það hefur leng-
ið lengi í loftinu hjá okkur að opna
vefverslun og við ákváðum bara að
ráðast í þetta núna,“ segir Bára í
samtali við Skessuhorn. „Covid ýtti
á okkur, enda höfum við fundið að
fólk vill hafa kost á því að panta og
fá sent heim á þessum Covid tím-
um. Það hefur aukist að haft sé
samband við okkur í gegnum Fa-
cebook og við beðnar um að senda
vörur,“ segir hún.
Vöruúrvalið í vefversluninni mun
aukast hægt og rólega. „Við ákváð-
um að koma síðunni í loftið núna
með áherslu á snyrtivörupakkn-
ingar fyrir jólin. En þetta er bara
byrjunin og það munu fleiri vörur
koma á síðuna. Við erum með mjög
breitt vöruúrval og þetta tekur bara
tíma,“ segir hún. arg
Skjáskot af nýju vefversluninni.
Verslunin Bjarg
komin á netið
Allt að
verða klárt
og góðu
dagsverki
að ljúka.
Fyrsti sunnudagur í
aðventu í Grundarfirði
Vinkonurnar Telma og Ellen voru mjög ánægðar með ratleikinn og skemmtu sér
konunglega.
Þorkell Gunnar Þorkelsson flytur jólatréð niður eftir Hrannarstíg frá skógræktinni
að miðbænum.
Sjómannagarðurinn fallega upplýstur
Börnin tendruðu ljósin á trjánum í Snæfellsbæ