Mosfellingur - 27.08.2020, Page 16

Mosfellingur - 27.08.2020, Page 16
 - Bókasafnsfréttir, matur og vín16 Sumarlesturinn tókst með af- brigðum vel í ár og voru þátt- takendur 258 talsins. Í sumar var börnunum boðið upp á að skila inn bókaumsögnum fyrir bækurnar sem þau lásu í átakinu. Í lok hverrar viku var svo dregið úr innsendum umsögn- um og fékk heppinn þátttak- andi bókaverðlaun. Hugmynd- in með bókaumsögnunum var sú að hvetja börnin til að tala um bækur og hugsa um þær á gagnrýninn hátt. Þegar einungis nokkrir dagar eru eftir af sumarlestrinum hafa borist yfir 330 um- sagnir. Síðasti útdráttur sumarsins fer fram 28. ágúst og fer því hver að verða síðastur að skila inn umsögn. Á meðan á sumarlestrinum stóð gafst gestum safnsins einnig kostur á að taka þátt í ratleik þar sem sjávardýr af öllum stærðum og gerðum voru falin í safninu. Þeir sem kláruðu ratleikinn og fundu lausnarorðið fengu að launum viðurkenningu í formi myndar sem hægt var að festa í net í barnadeild safnsins. Í ljósi aðstæðna verður því miður ekki hægt að bjóða upp á hefð- bundna uppskeruhátíð að svo stöddu en í staðinn bjóðum við þátttakendum í kolkrabbaleit á safninu frá 31. ágúst til 10. september og verða heppnir kolkrabba- fangarar verðlaunaðir. Sumarlestur í bókasafninu Bókasafn Mosfellsbæjar Nú stendur yfir sýningin BÓK – list og leikur í Listasal Mos- fellsbæjar. Þar sýna hjónin og Mosfellingarnir Guðlaug Friðriks- dóttir og Ragnar G. Einarsson fjölbreytt verk en þau eru bæði lærðir bókbindarar. Á sýningunni má sjá bækur bundnar inn á óvenju- legan og frumlegan hátt þannig að úr verða þrívíðir listmunir. Einnig eru á sýningunni grafíkverk, dúkristur, málverk og fleira en Guðlaug og Ragnar eru jafnvíg á bókband og ýmsa miðla myndlistarinnar. Síðasti sýningardagur er laugardagurinn 5. september. Bók - list og leikur Listasalur Mosfellsbæjar guðlaug og ragnar einn vinningshafa Á grillinu heima • Lykilatriði að hita grillið vel áður • Vínið best borið fram við 16-18°C Grillum og gleðjumst HEIMA Matarhorn Mosfellings Lambainnralæri • Langskorið í u.þ.b. 1 cm sneiðar • Hreinsa og þrífa grillið vel. Það minnk- ar líkur verulega á að það kvikni eldur. • Hita grillið í botn að lágmarki í 15 mínútur. • Krydda kjötið með góðu lambakjöts- kryddi. • Grillað á hæsta hita í 1 mín á hvorri hlið og síðan tekið af grillinu. • Kjötið er látið standa í 5-8 mín á borðinu áður en það er borðað. Þrátt fyrir að bæjarhátíðin hafi verið blásin af er um að gera að grilla í heimahúsum og gera sér glaðan dag. Enn eigum við þónokkra góða daga eftir af sumrinu. Hér eru grillleiðbeiningar frá Geira í Kjötbúðinni og að sjálfsögðu rautt við hæfi. Nautakjöt á grillið • Miðum við við að nautakjötið sé fitusprengt og skorið í 3 cm þykkar sneiðar. • Krydda nautakjötið með grófu salti og grófum pipar (meira af salti) láta standa í 3 tíma í stofuhita. • Grillið á hæsta hita í 3 mín. á hvorri hlið og lækkið svo hitann, gott er að slökkva á brennara. • Setjið kjarnhitamæli í steikina og bíðið eftir að steikin nái 52-57° eftir hve mikið þú vilt hana eldaða. Mælum með 55° sem er medium. • Kjötið er tekið af grillinu og látið standa í 10-12 mín. áður en það er borðið Gott er að setja trufflu- olíu á kjötið á meðan það hvílir. nautið skal látið standa í 10-12 mínútur eftir eldun lambalæri í undirbúningi Við mælum með: Beringer Cabernet Sauvignon Létt og ferskt vín sem er best borið fram við 16-18°C. Kirsuberjarautt. Meðalfylling, ósætt, mild sýra, miðlungstannín. Dökk ber, lyng, eik. Við mælum með: Piccini Collezione Oro Riserva Bragðmikið vín sem hentar vel með lamb- inu. Kirsuberjarautt. Meðalfylling, ósætt, fersk sýra, miðlungs- tannín. Súr kirsuber, trönuber, lyng.

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.