Ægir

Volume

Ægir - 2019, Page 15

Ægir - 2019, Page 15
15 setja nýjar nætur upp fyrir okkur erlendis, gjarnan í Ind- landi eða Víetnam og í þeim tilfellum fer maður frá okkur út til að fylgja því eftir að varan sé unnin eins og við leggjum upp með. Þegar næt- urnar svo koma hingað heim eru þær nánast tilbúnar til að fara um borð og út á miðin. Í þessu eins og mörgu öðru á iðnaðarsviðinu er erfitt að keppa við ódýrt vinnuafl í þessum verkþáttum,“ segir Birkir. Netagerðarmenn voru eftirsóttir Í fyrri tíð segir Birkir að hafi verið algengt að menn hjá netagerðunum fóru túr og túr til sjós enda eftirsóttir vegna þekkingar sinnar og reynslu í veiðarfæravinnunni. Margir hafi einnig byrjað í netagerð- unum og síðan lagt sjó- mennskuna fyrir sig. „Í dag er þetta nánast búið og eftir því sem skipstjórnar- menn segja þá er erfitt að fá menn á skipin sem hafa þekk- ingu á netavinnu. Í dag er einn nemi í netagerð hjá okk- ur hér í Eyjum og endurnýj- unin þyrfti að vera hraðari í greininni. En þetta er líka starf þar sem stundum koma miklir álagstímar en við hjá Ísfelli höfum leyst það með því að flytja menn milli okkar úti- búa til að mæta hápunktum í verkefnum. Það hefur reynst ágæt leið, sérstaklega þegar er unnið í nótum sem eru það stór veiðarfæri að ekki er hægt að flytja á milli. Í minni veiðarfærum gerum við þetta gjarnan þannig að skipta veiðarfærahlutum milli starfs- stöðvanna og flytja svo á einn stað til samsetningar,“ segir Birkir. Endalaus nýsköpun Birkir segir verkefnasveiflur í netagerðinni algjörlega í takti við sveiflurnar í veiðunum og útgerðinni. Þannig slái allt samfélagið í Eyjum í takti við útveginn. Hann segir mikla breytingu hafa orðið í veið- arfæraþjónutunni hvað varð- ar viðgerðir vegna tjóna. „Það hefur gjörbreyst frá fyrri tíð, bæði vegna framþró- unar í skipunum og tækninni og einnig vegna almennt meiri þekkingar á notkun veiðar- færa. Í dag er algjör undan- tekning ef menn taka t.d. und- irbyrði úr trolli,“ segir Birkir og bætir við að alltaf séu ein- hverjar nýjungar reyndar í veiðarfærauppsetningu og þá gjarnan í nánu samstarfi við skipstjóra. „Í þessu er endalaus ný- sköpun, jafnframt því sem verið er að sníða veiðarfærin að hverju skipi fyrir sig. Það sem gengur vel upp fyrir eitt skip þarf kannski að vera þveröfugt í næsta skipi við hliðina þannig að hér gildir að geta komið með sérlausnir fyrir hvern og einn.“ Aðspurður um hvort að þvernetið sé töfralausn í troll- um, en þá er möskvanum snú- ið í 90 gráður í trollunum, gef- ur Birkir ekki mikið fyrir það og segir að mörg skip sem notað hafi þannig uppsett troll séu hætt með þau í dag og komin í hefðbundin troll. „Þvernetið er gott að nota á ákveðnum stöðum í trollum en alls ekki í öllu trollinu. Það er mun fyrirferðameira og mun dýrara í uppsetningu, menn geta opnað möskvann og létt trollin á mun einfaldari og kostnaðarminni hátt svo sem með léttari og sterkari efnum og eins með því að fella þau á línur. Það höfum við gert hér með mjög góðum árangri.“ Skemmtilegt starf Birkir er fljótur til svars þegar hann er spurður hvort honum þykir starfið skemmtilegt. „Já, það finnst mér. Við byrjuðum sumarið 1974 hjá Netagerðinni Ingólfi, ég og Sigurgeir Sævaldsson vinur minn, sem er núna afleysinga- skipstjóri á Bergi VE. Um haustið fór hann á Berg VE en ég hélt áfram og fór í nám í netagerð. Ingólfur bauð mér betri laun en ég gat haft á sjónum þannig að ég hélt áfram og tók svo við fyrirtæk- inu þegar Ingólfur dó árið 1988. Ferillinn er því orðinn langur.“ ■ Unnið í vetrarloðnunótinni af Huginn VE 55. Veiðarfæri

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.