Ægir - 2019, Side 29
29
nú þegar er komin reynsla á svona troll
um borð í Fagraberginu frá Færeyjum.
Þetta gengur þannig fyrir sig að trollin
koma tilbúin frá verksmiðju Fisheries
Service í Rússlandi en við önnumst síðan
alla viðhaldsþjónustu og höfum helstu
íhluti á lager ef á þarf að halda,“ segir
Jónas Þór.
Fiski- og rækjutroll eru alfarið sett
upp hér á landi fyrir viðskiptavini Ísfells
og segir Jónas Þór að efni í þau sé að
mestu keypt frá Garvare í Indlandi.
„Áhersluefnið í allri veiðarfæraþróun
undangenginna ára hefur snúist um að
reyna eftir megni að létta veiðarfærin
og spara með því olíu en jafnframt að
veiðarfærin séu sterkari og endingar-
betri á sama tíma. Þróunin er ör, alltaf
einhverjar nýjungar sem menn eru að
reyna og mikil og góð samkeppni.“
Togvírar frá Bridon
Togvírar eru mikilvægur hluti veiðar-
færa togskipa og á tímabili var mikið
rætt um að Dyneema togtaugar kæmu til
með að víkja togvírum til hliðar. Sú hef-
ur ekki orðið raunin, að sögn Jónasar
Þórs.
„Nokkur skip hér á landi skiptu tog-
vírunum út en raunin er sú að nánast
allir hafa skipt aftur yfir í vírana og það
best ég veit eru aðeins tvö skip sem eru
enn að nota Dyneema-taugarnar hér á
landi í dag. Í þessu felast bæði kostir og
gallar. Þegar verið er að fiska í yfirborð-
inu getur verið kostur að hafa þessar
léttu taugar en aftur á móti galli þegar
veitt er á miklu dýpi. Við erum umboðs-
menn fyrir Bridon togvíra hér á landi
sem eru alfarið framleiddir í Bretlandi og
úr hráefni sem allt kemur frá Bretlandi.
Þetta eru vírar sem skiptjórnarmenn
þekkja mjög vel og hefur verið sá vír
sem hefur haft yfirburðamarkaðshlut-
deild á Íslandi í gegnum árin og áratugi.
Bridon vírinn er þekktur fyrir að vera
endingargóður og traustur.“
Mun betri ending veiðarfæra
síðari ár
Ending veiðarfæra og togvíra segir Jón-
as Þór að sé mjög mismunandi og fari
mest eftir þeim veiðiskap sem er verið
að stunda hverju sinni. Togvíra þurfi að
endurnýja hraðar á grálúðuveiðum á
miklu dýpi en þegar dregið er uppsjávar-
troll, svo dæmi sé tekið. „Á undangengn-
um árum höfum við ekki síst séð end-
ingu aukast, sér í lagi í botntrollunum.
Efnin eru betri en stór áhrifavaldur er
einfaldlega að fiskiríið hefur verið gott
og þá er áníðslan á veiðarfærinu mun
minni en ella væri. Aukin tækni í skipun-
um hlífir veiðarfærunum líka þannig að
segja má að margir samverkandi þættir
stuðli að betri endingu,“ segir Jónas Þór.
Hann segir að það gefi auga leið að góð-
ur árangur í veiðum byggist að stórum
hluta á góðum veiðarfærum.
„Samt er þetta liður sem í heildar-
mynd útgerðar fiskiskips er ekki stór, lit-
ið til olíukostnaðar, launa og fleiri þátta.
En veiðarfæraþátturinn er gríðarlega
mikilvægur og okkar keppikefli er að
bjóða útgerðunum hverju sinni sem best
veiðarfæri og sem besta þjónustu.“
■ Jónas Þór Friðriksson.
■ Ísfell er með allt í togveiðarnar, línu- og netaveiðar, býður
t.d. Mustad beitningarvélakerfi en slík eru í um 70
fiskiskipum hér á landi.
■ Ísfell er með net átta starfsstöðva á landinu, þ.e. í Hafnar-
firði, Vestmannaeyjum, Þorlákshöfn, á Flateyri, Sauðár-
króki, Akureyri, Húsavík og í Ólafsfirði. Jónas Þór segir
þessa nálægð við viðskiptavini mikilvæga.
Veiðarfæri