Ægir - 2019, Page 15
15
Hlíðarenda / 602 Akureyri
S: 462 3700 / baldurhalldorsson.is
Vörur, vélbúnaður og
þjónusta fyrir
minni fiskibáta
Plastviðgerðir – Rafgeymar – Dælur – Varahlutir
Sem fyrr segir verður C6000i útgáfan
áfram framleidd hjá DNG auk þess sem
fyrirtækið hefur boðið viðskiptavinum
sínum upp á að uppfæra eldri vindur,
mála þær upp á nýtt og gera fínar. Tals-
vert hefur verið að gera í slíkum verk-
efnum í vetur.
Fjölbreyttir markaðir og verkefni
Í mörg horn er því að líta hjá starfs-
mönnum DNG þessa dagana enda háönn
smábátaútgerðarinnar að hefjast. Krist-
ján Björn Garðarsson, rekstrarstjóri,
segir að sem fyrr horfi fyrirtækið til
markaðssetningar nýju vindunnar á
mörgum mörkuðum, auk Íslands.
„Aðrir stórir markaðir okkar eru hér í
kringum okkur; Grænland, Færeyjar,
Noregur, Danmörk og Skotland, auk
Frakklands og Kanada sem er markaður
sem við fylgjumst náið með hvernig þró-
ast. Þar er sjávarútvegurinn að byggjast
upp á nýjan leik eftir hrunið sem varð í
þorskstofninum á sínum tíma. Fram-
leiðsla á færavindunum og þjónusta við
notendur þeirra er grunnur okkar starf-
semi en þess utan erum við einnig í öðr-
um rafeindatengdum verkefnum, t.d.
framleiðslu fyrir fiskeldiskerfi Vaka, svo
dæmi sé nefnt,“ segir Kristján Björn.
■ Nýja C7000i vindan frá DNG. Fyrstu vindurnar þessarar
gerðar verða teknar í notkun í handfærabátum hér á
landi í sumar.
■ Það eru mörg handtökin að setja saman eina færavindu.
Sigurbjörn Gunnarsson, rafeindavirki hjá DNG raðar
íhlutunum í hús vindunnar.
Smábátar