Ægir

Árgangur

Ægir - 2019, Síða 10

Ægir - 2019, Síða 10
„Áhersla okkar er fyrst og fremst á þjónustu við fiskeldisfyrirtæki. Við erum með breiða línu tækjabúnaðar og tæknilausna fyrir fiskeldið, þ.e. hugbúnað, stjórnkerfi, dælur og raf- búnað sem á þarf að halda og bjóðum bæði sölu og uppsetningu á búnaðin- um,“ segir Karl Eiríkur Hrólfsson, raf- virkjameistari og einn eigenda fyrir- tækisins Maris. Bakgrunn starfsem- innar má rekja aftur til ársins 2006 þegar Gunnlaugur Hólm Torfason stofnaði fyrirtækið Dæluhúðun í kringum dæluviðgerðir og húðun á ýmsum hlutum. Árið 2012 keypti Karl Eiríkur fjórðungshlut í fyrirtækinu sem í dag heitir Maris. Báðir starfa þeir Karl og Gunnlaugur Hólm hjá Maris í dag ásamt öðrum sérhæfðum starfsmönnum í iðn- og tæknilausn- um. Bjóða grunnbúnað fiskeldisins Markmið Maris er að bjóða tæknilausnir sem hámarka nýtingu auðlinda og að tryggja viðskiptavinum bestu mögulegu þjónustu. Í þessu felst að bjóða heild- stæðan búnað til fiskeldis sem stýrir lyk- ilþáttum í starfseminni, þ.e. fóðrun, súr- efni, seltu og vatnsflæði ásamt öllu sem snýr að rafmagni og dælum. Þetta eru þeir þættir sem vega hvað þyngst í rekstri fiskeldisfyrirtækja. Maris stýri- kerfið heldur utan um þessa þætti heild- stætt með virku eftirliti frá skynjurum og gagnaskráningum sem eru vistaðar á miðlægum gagnagrunni eða skýi. Með þessu móti er því hægt að hafa góða yf- irsýn yfir það sem er að gerast í eldinu hverju sinni. Fyrirtækið hannaði búnað- Maris ehf. Sérhæfing í þjónustu við fiskeldisfyrirtæki ■ Karl Eiríkur Hrólfsson, rafvirkjameistari og einn eigenda Maris ehf. sem þjónustar fiskeldisfyrirtækin. Hann segir mikla breytingu hafa orðið á atvinnugreininni hér á landi síðustu sjö ár og fyrirsjáanlega verði hún áfram í vexti og framþróun. 10

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.