Ægir - 2019, Síða 14
14
Fjölskylduhátíðin Sjóarinn síkáti hefur
veirð haldin um árabil um sjómanna-
dagshelgina í Grindavík og verður
umfangsmeiri og fjölbreyttari með
hverju árinu sem líður. Hátíðin
stendur frá því síðdegis föstudaginn
31. maí og fram á kvöld á sjómanna-
daginn en þá er hápunktur í gleði
sjómanna með hátíðarkvöldverði
Verkalýðs- og sjómannafélags Grinda-
víkur sem stýrt verður í ár af Þórhalli
Sigurðssyni, Ladda.
Viðamikil fjölskyldudagskrá
Dagskrárliðir Sjóarans síkáta skipta tug-
um en íbúar Grindavíkur taka virkan
þátt í gleðinni með skreytingum í götum,
götugrillum og litaskrúðgöngu úr hverf-
unum sem er á föstudagskvöld og er
orðin nokkurs konar einkennisatriði há-
tíðarinnar. Að lokinni skrúðgöngunni
verður bryggjusöngur á hátíðarsviðinu
á föstudagskvöld og bryggjuball í beinu
framhaldi þar sem Páll Óskar mætir í öllu
sínu veldi en hljómsveitin Bandmenn sér
um að kitla dansfætur gesta.
Hver viðburðurinn rekur svo annan
á laugardeginum. Fótboltamót UMFG fyr-
ir 6. flokk hefst kl. 10 og á hádegi verður
boðið upp á skemmtisiglingu fyrir alla
fjölskylduna en þess má geta að Bylgju-
lestin verður í beinni útsendingu frá
Grindavík þennan dag.
Á sjálfu hátíðarsviðinu hefst dagskrá-
in kl. 13 og stendur fram undir kvöld.
Við sögu koma Sirkus Íslands, Solla
stirða og Halla hrekkjusvín úr Latabæ,
Regína og Selma, Gunni og Felix og Leik-
hópurinn Lotta, svo fátt eitt sé nefnt.
Tívolí verður á hafnarsvæðinu, andlits-
málun í boði fyrir börnin, veltibíll, sjó-
pylsa í höfninni, hópkeyrsla bifhjóla og
margt fleira. Um kvöldið keyrir svo Páll
Óskar stemninguna í nýjar hæðir á balli í
Íþróttahúsinu.
Hátíðarbragur og skemmtun í
bland á sunnudeginum
Dagskráin á sjálfum sjómannadeginum
hefst með því að fánar verða dregnir að
húni kl. 8 og kl. 12:30 verður hátíðar-
messa í Grindavíkurkirkju. Síðan verður
fjölbreytt skemmtidagskrá til kvölds;
tívo líið á svæðinu, andlitsmálun í boði,
veltibíllinn á sínum stað, hátíðardagskrá
við Kvikuna þar sem Eliza Reid, forseta-
frú, flytur ávarp. Fiskasafn verður á
hafnarsvæðinu, hreystimenni og konur
takast á í alvöru koddaslag, flekahlaupi
og kararóðri, sjómannadagskaffi í Gjánni
og tveggja tíma skemmtidagskrá á hátíð-
arsviðinu.
Sem fyrr segir verður hátíðarkvöld-
verður Verkalýðs- og sjómannafélags
Grindavíkur í Sjómannastofunni Vör kl.
20 að kvöldi sjómannadagsins. Honum
stýrir sá landsþekkti skemmtikraftur
Þórhallur Sigurðsson, Laddi en söngkon-
an Sigríður Thorlacius kemur einnig
fram á þessari samkomu.
Fjölbreytt dagskrá á
Sjóaranum síkáta
■ Leikhópurinn Lotta er meðal
fjölmarga listamanna sem skemmta
á hátíðinni.
■ Það er mikið um dýrðir á Sjóaranum
síkáta og óhætt að segja að allir geti
fundið eitthvað við sitt hæfi í
dagskránni.
■ Eliza Reid, forsetafrú, ávarpar bæjarbúa og gesti á sjómannadaginn.
■ Páll Óskar skemmtir á hafnarsvæð-
inu og blæs síðan til mikillar hátíðar
í íþróttahúsinu að kvöldi laugar-
dagsins.