Ægir - 2019, Page 31
31
Á nýafstaðinni sjávarútvegssýningu í
Brussel skrifuðu Skaginn 3X og út-
gerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Vís-
ir hf. í Grindavík undir samning um
vinnslubúnað í nýtt línuskip Vísis, Pál
Jónsson GK 7, sem væntanlegt er til
landsins í haust. Verðmæti samnings-
ins hleypur á tugum milljóna en bún-
aðnum er ætlað að bæta aflameð-
höndlun og snýr hann að blæðingu
fisksins, kælingu, flokkun og frágangi
í lest. Verkefnið er að hluta unnið
með Marel sem hefur með höndum
flokkunarbúnað og fleira í verkefn-
inu.
„Skaginn 3X hefur unnið með Vísi að
mörgum verkefnum í gegnum tíðina og
komið að endurnýjun og þróun nýrra
lausna í fiskiskip félagsins undanfarin
ár,” segir Freysteinn Nonni Mánason,
sölustjóri hjá Skaganum 3X. „Í þessu
verkefni er enn bætt við nýjungum og
meðal annars verður ný hönnun á
skrúfum í RoteXTM lausn skipsins, sem
bæta mun blæðingu enn frekar,“ bætir
hann við.
Vísir hefur lagt mikla áherslu á
ábyrgar veiðar, hátæknivinnslu og vöru-
gæði. Fyrirtækið býr nú þegar yfir góð-
um skipaflota til línuveiða og nýja skipið
mun enn frekar styðja við stefnu félags-
ins um að veiða, vinna og framleiða af-
urðir úr fyrsta flokks hráefni fyrir breið-
an hóp kröfuharðra viðskiptavina vítt
og breitt um heiminn.
„Lausnin um borð í Páli Jónssyni hefur
verið unnin í nánu og góðu samstarfi við
sérfræðinga Skagans 3X og stuðlar að
áframhaldandi framleiðslu á framúrskar-
andi matvælaafurðum,” segir Pétur Haf-
steinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis.
Nýja skipið Páll Jónsson verður 45
metra langt og 10,5 metra breitt en það
er í smíðum skipasmíðastöðinni Alkor í
Póllandi. Skipið er hannað af skipaverk-
fræðistofunni NAVIS í samstarfi við Vísi.
Skipamíðastöðin í Póllandi lauk á síðasta
ári endurbyggingu línuskips sem fékk
nafnið Sighvatur GK 57 og kom í stað
eldra skips með sama nafni í fiskiskipa-
flota Vísis hf. Þar á undan lauk hún end-
urbótum á Fjölni GK fyrir Vísi og er því
Páll Jónsson GK 7 þriðja en jafnframt
stærsta verkefni stöðvarinnar á stuttum
tíma fyrir fyrirtækið. Smíðasamningur
skipsins hljóðar upp á um 7,5 milljónir
evra.
Fréttir
■ Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis og Freysteinn Nonni Mánason, sölustjóri Skagans 3X við undirritun
samningsins um smíði vinnslubúnaðarins í nýja línuskipið Pál Jónsson.
Sjávarútvegssýningin í Brussel
Skaginn 3X smíðar vinnslu-
búnað í Pál Jónsson GK
■ Páll Jónsson GK er 45 metra langt
sérútbúið línuskip sem hannað er
af NAVIS í samstarfi við útgerðina.