Ægir - 2019, Blaðsíða 14
14
„Japanski framleiðandinn Yanmar er
einn af elstu og fremstu framleiðend-
um dísilvéla í skip og báta í heiminum
og þeirra framleiðsla er þekkt fyrir afl
og endingu. Nú erum við að kynna
nýjar vélar frá Yanmar sem draga
umtalsvert úr mengun. Þær koma til
með að halda Yanmar í fremstu röð í
framleiðslu á umhverfisvænni vélum í
skip og báta þar sem ekki er þörf á
sérstökum búnaði til að hreinsa út-
blástur með tilheyrandi aukakostn-
aði,“ segir Hallgrímur Hallgrímsson,
sölustjóri véla hjá Marás í samtali.
Bæði diesel og gas
Á sýningunni í Laugardalshöll mun Ma-
rás m .a . kynna Yanmar 6EY26-8EY26 og
6EY33-8EY33DF . „Þetta eru nýjar vélar
sem ganga á MGO og NLG og eru þannig
hannaðar að hægt er að skipta milli dís-
elolíu og gass án þess að dregið sé úr
álagi á vél . Ekki er verið að blanda gasi
við eldsneytið eða loftinntak vélar,“ seg-
ir Hallgrímur . Hann segir að þessi tækni
dragi úr Nox um 85%, CO2 lækki um 25%
og SOx/PM um heil 99% . „Þess vegna
uppfylla vélarnar IMO Nox Tier3 reglur
og einnig reglur um SOx Emision Control
Areas, ECA,“ segir hann .
Vistvænni tækni
„Þessar vélar eru allt að 5766 Hp sem
framdrifsvél og 4080 kW sem ljósavél .
Vélarnar sem ganga fyrir gasi byggja
ekki á glænýrri tækni að öllu leyti því
þær voru í raun verið til frá 1785 þegar
notað var kolagas . Gasi hefur þannig
verið blandað við annað eldsneyti um
langt árabil með ýmsum aðferðum . Á
þeim árum voru menn ekki að hugsa um
mengunina heldur nýttu menn gasið þar
sem það var ódýrara . Nú er þessi gamla
tækni gengin í endurnýjun lífdaga og
passar vel við áherslur nútímans um
baráttuna gegn gróðurhúsaáhrifum um
leið og hún stuðlar sem fyrr að minni
eldsneytiskostnaði,“ segir Hallgrímur .
Margvíslegur búnaður
Marás er einnig umsvifamikið í sölu
sjálfvirks stjórnbúnaðar fyrir togvindur
frá Scantrol í Noregi . Ennig selur Marás
Ibercisa togspilin frá Spáni en þau hafa
verið lengi um borð í íslenskum skipum
og reynst vel . „Þá má taka fram að dótt-
urfyrirtæki Marás, Friðrik A . Jónsson, er
hér í sama húsi en þeir hafa lengi selt og
þjónustað heimsþekkt merki í hvers kon-
ar rafeindabúnaði fyrir íslenska flotann .
Saman bjóða þessi fyrirtæki því heildar-
lausnir í skipin,“ segir Hallgrímur Hall-
grímsson, sölustjóri véla hjá Marás .
maras .is
■ Hallgrímur Hallgrímsson, sölustjóri véla hjá Marás.
Umhverfisvænni vélar
frá Yanmar
■ Yanmar kynnir nú til sögunnar
aflmiklar og umhverfisvænar vélar.