Ægir - 2019, Blaðsíða 38
38
„Í mínum huga er alveg ljóst að miklu
fleiri stjórnendur á vinnumarkaðnum
ættu heima í einhverju okkar 11
stjórnendafélaga því þangað er margt
að sækja. Innan vébanda sambandsins
eru nú ríflega 3.600 félagsmenn en
þeir ættu að vera miklu fleiri. Allt of
margir millistjórnendur standa utan
sterkra hagsmunasamtaka og skortir
því þann bakstuðning sem menn
þurfa á að halda ef eitthvað kemur
upp á. Hér er ég sérstaklega að vísa
til Sjúkrasjóðs STF sem er sá allra
sterkasti á landinu en fjölmargt fleira
má nefna,“ segir Skúli Sigurðsson,
forseti Sambands stjórnendafélaga
sem er með kynningarbás á sjávarút-
vegssýningunni.
Frábært stjórnendanám
Fyrstu nemendurnir til að ljúka 5 . og síð-
ustu lotu stjórnendanáms á vegum Sí-
menntunar Háskólans á Akureyri tóku
við skírteinum sínum í síðasta mánuði .
Námið er samstarfsverkefni starfs-
menntasjóðs Sambands stjórnendafélaga
og Samtaka atvinnulífsins en Símenntun
Háskólans á Akureyri sér um að halda
utan um skráningu og kennslu . Um er að
ræða fjarnám sem millistjórnendur í fyr-
irtækjum og stofnunum eiga kost á að
stunda með fullri vinnu .
„Þetta nám er frábært tækifæri fyrir
millistjórnendur að leggja mat á eigin
þekkingu, leikni og hæfni í starfi . Námið
gagnast mjög vel og nemendur eru sam-
mála um að þeir öðlast þekkingu í mann-
auðsstjórnun og leikni til að greina,
bregðast við og meta árangur aðgerða
er varðar undirmenn, aðstæður þeirra
og líðan í starfi . Nemendur geta fengið
styrk úr starfsmenntasjóði STF og SA
sem stendur undir 80% kostnaðar og oft
leggja fyrirtækin til það sem upp á vant-
ar,“ segir Skúli enn fremur .
Öflugasti sjúkrasjóðurinn
Sjúkrasjóður verkstjóra var stofnaður
1974 og hefur hann mjög mikilvægu hlut-
verki að gegna fyrir félagsmenn í aðild-
arfélögum Sambands stjórnendafélaga .
„Ég get fullyrt að sjúkrasjóðurinn okkar
er einn sá albesti á landinu . Hann veitir
mjög góð réttindi til launa og annarrar
aðstoðar í slysa- og veikindatilfellum
auk þess sem hann léttir undir með fjöl-
skyldum félagsmanna þegar andlát ber
að höndum . Þá á sjóðurinn og rekur
sjúkraíbúð í Kópavogi fyrir þá félags-
menn utan af landi sem þurfa að leita
sér lækninga á höfuðborgarsvæðinu .
Stjórn sjóðsins hefur í gegnum árin
reynst ákaflega klók við að tryggja góða
fjárhagsstöðu sjóðsins en jafnframt auk-
ið stöðugt á réttindi félagsmanna til
greiðslna úr sjóðnum . Að þeirri forsjá og
ráðdeild búa félagsmenn stjórnenda-
félaganna svo sannarlega í dag .“
Öflugt kynningarstarf
Skúli segir Samband stjórnendafélaga
standa fyrir öflugu kynningarstarfi og
reyni að nýta sem flest tækifæri til að
kynna aðildarfélögin fyrir millistjórn-
endum . Hann segir starfsmenn sam-
bandsins heimsækja hundruð fyrirtækja
á ári hverju og viðtökur séu almennt
mjög góðar . „Á þessum vinnustaðafund-
um verðum við þess áskynja að allt of
margir stjórnendur, menn sem áður
nefndust verkstjórar, eru ekki með sín
rettindamál í nógu góði horfi og úr því
þarf að bæta . Við bjóðum því alla vel-
komna í básinn okkar á sjávarútvegs-
sýningunni til að fá upplýsingar um allt
það sem félagsaðild í STF hefur upp á að
bjóða . Þar geta menn fræðst um sam-
bandið en einnig einstök aðildarfélög
sem eru vítt og breytt um landið . Við
munum útdeila kynningarefni, hafa heitt
á könnunni og rabba við gesti og gang-
andi . Það verður vel tekið á móti fólki í
básnum okkar,“ segir Skúli að lokum .
stf .is
■ Skúli Sigurðsson, forseti Sambands stjórnendafélaga.
Stjórnendanám og
sterkur sjúkrasjóður
■ Fyrstu nemendurnir til að ljúka fimmtu og síðustu lotu í stjórnendanámi
Símenntunar Háskólans á Akureyri tóku við skírteinum sínum í síðasta mánuði.