Ægir - 2019, Blaðsíða 68
68
IP Containers er stofnað af
IP Inc, kanadísku fyrir-
tæki sem hefur langa
sögu á alþjóðlegum mark-
aði. IP Containers sér-
hæfir sig í framleiðslu á
fiskikörum, sambæri-
legum þeim, sem fram-
leidd eru hér á landi.
Framleiðslan byggist upp
á tveim vörulínum, ker
sem eru hönnuð og sér-
hæfð fyrir Norður-Amer-
íku annars vegar og hins
vegar körum, sem eru
sömu gerðar og þau sem
notuð eru á Íslandi og í Evr-
ópu.
Framleiðslan í Kína
Unnið hefur verið að undirbúningi á
framleiðslu IP Containers seinustu tvö
árin . Kerin eru framleidd í Kína, við
Ningbo, eina stærstu gámahöfn í heimi
og var verksmiðjunni valinn staður
með tilliti til þess, sem og aðgangs að
hráefni . IP Containers er að auki með
starfstöðvar í Kanada, á Spáni og á Ís-
landi . Óli Björn Ólafsson er markaðs-
stjóri fyrir Evrópu . „Við leggjum megin-
áherslu á Austur-Evrópu og þá sérstak-
lega Rússland,“ segir Óli Björn, en hann
talar reiprennandi rússnesku . Hann
bendir á að gríðarlegur uppgangur sé í
rússneskum sjávarútvegi þessa dagana .
„Við sáum möguleika á að koma
þarna inn, enda erum við með sambæri-
lega vöru, bæði hvað varðar gæði, útlit
og stærð karanna . Þar af leiðandi er
hægt að stafla körunum frá okkur með
íslensku körunum, sem er mjög mikil-
vægt ef menn vilja kaupa ný kör frá
okkur . Þá þurfa þeir ekki að skipta út
þeim íslensku, ef þeir eiga fyrir . Við höf-
um farið með körin í styrkleikaprófun og
mat á einangrun, sem hvort tveggja
kemur mjög vel út . Við höfum þegar selt
nokkuð af körum til Rússlands og þar
hafa þau verið notuð með góðum ár-
angri . Sömu sögu er að segja af körum
sem hafa farið til Norður-Ameríku .“
Eru á erlendum mörkuðum
Óli Björn segir að þrátt fyrir þessa kosti
sé það ekki stefnan að fara inn á ís-
lenska markaðinn . Þátttakan í sjávarút-
vegssýningunni nú sé fyrst og fremst til
að kynna fyrirtækið, enda sé sýning-
in alþjóðleg . Þeir muni líka nota tæki-
færið til að kynna kælibox sem fyrir-
tækið framleiði, en þau henti vel í úti-
legur til kælingar á drykkjum og mat-
vælum . Gríðarlega mikill markaður
sé fyrir kælibox um allan heim . Þá
sé verið að bæta við plastpallettum,
svokölluðum Euro-brettum
eða iðnaðarbrettum við
framleiðsluna og þar sjái
fyrirtækið mikla mögu-
leika líka .
„Við erum með sam-
starfsaðila okkar á sýn-
ingunni, sem er danskt
fyrirtæki, Semistaal, sem
selur karaþvottavélar, sér-
hannaðar vélar til að þvo
körin eftir notkun . SemiStaal
og IP deila bás á sýningunni .“
15-20% meiri
varmaheldni
Eigandi IP Containers er Jón Ós-
mann Arason og var hann staddur í
Kína, þegar rætt var við hann . „MIkil
undirbúningsvinna síðustu árin er að
skila sér í frábærri vöru sem við teljum
eiga fullt erindi á markaðinn . Við undir-
búning að stofnun fyrirtækisins tókum
við alla grundvallarþætti inn í þá jöfnu
til að besta gæði og lækka kostnað .
Við höfum fjárfest í nýjustu framleiðslu-
tækjum og notum alltaf bestu mögulegu
hráefni . Þetta hefur skilað okkur betri
kerum, bæði hvað varðar styrk og svo
varmaheldni en við höfum mælt 15-20%
betri varmaheldni í okkar körum en er
hjá samkeppnisaðilum,“ segir Jón Ós-
mann .
ip-containers .com
IP Containers kynnir
ný fiskikör
Kerin frá IP Containers eru með
15-20% meiri varmaheldni en önnur
ker á markaðnum.
Kæliboxin frá IP Containers henta vel í útilegur til
kælingar á drykkjum og matvælum.