Ægir - 2019, Blaðsíða 74
74
„Framkvæmdir við Háabakka eru
komnar á lokastig og það er einnig
verið að leggja lokahönd á nýtt
rammaskipulag fyrir allt hafnarsvæð-
ið við Óseyri og Flensborgarhöfn. Við
sjáum fram á mikla og áhugaverða
uppbyggingu á þessu svæði á næstu
árum“, segir Lúðvík Geirsson hafnar-
stjóri í Hafnarfirði.
Hafrannsóknastofnun er að flytja
höfuðstöðvar sínar til Hafnarfjarðar nú í
lok október og verður jafnframt með við-
legu fyrir rannsóknarskip sín á nýjum
hafnarbakka, svonefndum Háabakka
beint fyrir framan höfuðstöðvarnar sem
eru í reisulegri nýbyggingu við Fornu-
búðir .
„Þetta er áhugaverð viðbót við starf-
semina hér á hafnarsvæðinu og mun ef-
laust styrkja og efla frekari þróunar- og
tæknistarfsemi á svæðinu . Það er verið
að horfa til endurnýjunar og uppbygg-
ingar hér við Fornubúðir og á Óseyrar-
svæðinu, auk þess sem mjög spennandi
tillögur liggja nú fyrir um stækkun smá-
báta- og skemmtibátahafnar út fyrir
slippsvæðið í átt að miðbæ Hafnarfjarð-
ar .“
Tillögur um nýtt rammaskipulag fyrir
svæðið eru nú til yfirferðar og afgreiðslu
hjá hafnarstjórn og bæjaryfirvöldum og
er stefnt að því að fyrstu framkvæmdir
við uppbyggingu á svæðinu geti hafist á
næsta ári . Þá er ljóst að bruninn í Fisk-
markaðshúsinu á nýliðinu sumri mun
ýta á eftir enduruppbyggingu á svæðinu
við Fornubúðir og eru ýmsir kostir þar
til skoðunar en nýtt skipulag gerir ráð
fyrir markvissari nýtingu á þessu land-
svæði .
Mikill vöxtur síðustu ár
Að sögn Lúðvíks, sem tók við sem hafn-
arstjóri í maí 2016, hefur verið töluverð-
ur vöxtur í starfseminni á síðustu árum .
Hátt í 400 skip, bæði togarar og flutn-
ingaskip, fara um Suðurhöfnina og
Straumsvíkurhöfn ár hvert og umfang í
löndun á freðfiski og gáma- og lausa-
vöru fer vaxandi . Jafnframt er útflutn-
ingur freðfisks að aukast . Tekjur aukast
og verða hátt í sjöhundruð milljónir á yf-
irstandandi ári . Samhliða þessum vexti í
starfsemi hafnarinnar hefur rekstraraf-
koman farið batnandi . Hann segir að
aukna umferð og tekjuflæði megi ekki
síst rekja til aukinna aflagjalda síðustu
ár og einnig hafi orðið töluverð aukning
í vörugjöldum með auknum inn- og út-
flutningi um höfnina .
Öflug þjónusta við sjávarútveginn
„Hér eru gamalgróin fyrirtæki fyrir sem
sum eru að stækka við sig og einnig eru
að koma ný fyrirtæki inn á hafnarsvæð-
ið . Hér er fjöldi öflugra þjónustufyrir-
tækja við sjávarútveginn, s .s . varðandi
viðgerðir og veiðarfæraþjónustu, flutn-
ingaþjónustu, frystigeymslur, skipasmíði
og fleira . Þetta er okkar styrkur og hefur
skipað Hafnarfjarðarhöfn í fremstu röð
og tryggt að við erum í dag stærsta
þjónustuhöfn landsins fyrir úthafstog-
araflotann . Hingað koma í auknum mæli
til löndunar bæði rússneskir togarar af
Reykjaneshryggnum og grænlenskir tog-
arar . Þetta eru mikilvægir viðskiptavinir
og hér fá þeir alla þá þjónustu sem þeir
hafa þörf fyrir enda erum við með harð-
snúið lið starfsfólks, bæði hjá höfninni
og öðrum þeim fyrirtækjum sem eru að
veita sína þjónustu hér á hafnarsvæð-
inu .“
hafnarfjardarhofn .is
Hafnarfjarðarhöfn
Mikil uppbygging framundan
■ Nú er unnið við frágang á nýjum hafnarbakka fyrir framan væntanlegar höfuðstöðvar Hafró við Fornubúðir í Hafnarfirði.
■ Þessa dagana er verið að leggja
lokahönd á nýtt rammaskipulag
fyrir Flensborgarhöfn og Óseyrar-
svæðið í Hafnarfirði.