Ægir - 2019, Blaðsíða 78
78
Í síðasta mánuði tók gildi nýr alþjóð-
legur staðall varðandi prófanir og
virkni björgunar- og öryggisbúnaðar
sem ætlaður er til að bjarga fólki úr
sjó um borð í skip. Þann 1. júlí 2014
tók gildi alþjóðasamþykkt í SOLAS, þar
sem þess er krafist að öll skip sem
hafa undirgengist SOLAS sáttmálann
um öryggi á heimshöfunum, geti sýnt
fram á að þau hafi björgunaráætlun
og búnað til að bjarga fólki úr sjó sem
tekur mið af tegund skips, fjölda í
áhöfn og því hafsvæði sem skipið sigl-
ir á. Byggir þessi nýi staðall á ára-
tugalöngu frumkvöðlastarfi Péturs
Th. Péturssonar, framkvæmdastjóra
Markus Lifenet ehf. í Hafnarfirði en
hann hefur allt frá árinu 2009 verið
ráðgjafi um gerð og framkvæmd SOL-
AS reglunnar og leitt gerð staðalsins
á vegum tækninefndar Alþjóða staðla-
samtakann, ISO. Þessi nýi staðall er
nefndur ISO: 19898-2019 Means of
recovery of person from water.
Löng og ströng barátta
„Það hefur tekið langan tíma að fá þenn-
an staðal samþykktan en ástæðan er að
mínu mati grimm hagsmunagæsla
margra aðila sem koma að þessu starfi .
Þessi nýi staðall er auðvitað mikil viður-
kenning fyrir okkur sem höfum lengi
barist fyrir bættum öryggisbúnaði um
borð í skipunum . Þar höfum við byggt á
hugsjónabaráttu Markúsar B . Þorgeirs-
sonar sem kom fram með frumhugmynd-
ina að björgunarneti árið 1980 sem síðan
hefur breiðst út um heiminn allan .“
Markúsarnetið hefur gegnt þýðingar-
miklu hlutverki í að auka öryggi sjó-
manna og hefur það margsinnis verið
notað við björgun mannslífa við erfiðar
aðstæður á sjó og í höfnum . Allt frá ár-
inu 1985 hafa þær reglur gilt hér á landi
að slíkur búnaður sé staðsettur á hverju
dekkskipi á Íslandi, sem er 15 metrar eða
lengri . „Við höfum alltaf gert okkur grein
fyrir því að framleiðsla okkar yrði að
standast alþjóðlegar kröfur . Þannig náð-
ist stór áfangi þegar við fengum ISO
9001:2015 gæðavottun frá Lloyd´s Regist-
er Quality Assurance í Svíþjóð til hönn-
unar og framleiðslu á björgunarbúnaði
fyrir hafnir og fley á sjó og vötnum . Þar
með uppfylltum við grunnkröfur sem
gerðar eru til slíks búnaðar samkvæmt
SOLAS, alþjóðasamþykktinni um öryggi á
heimshöfunum og reglum einstakra að-
ildarríkja IMO, Alþjóða siglingamála-
stofnunarinnar . Nýi staðallinn markar
algjör tímamót og næsta skref er að fá
samþykktan staðal sem gerir grein fyrir
því hvaða reglur eigi að gilda þegar
skipsstjórnandi þarf að senda mann fyr-
ir borð til að bjarga félaga sínum, en
þessa tækni kynnti Markús sjómönnum
hér á landi árið 1982 .“
Búnaður í stöðugri þróun
„Við Íslendingar getum verið stoltir af
framlagi okkar til björgunar manna úr
sjó og við höfum lengi verið í forystu á
alþjóða vettvangi hvað varðar aukið ör-
yggi um borð í skipunum . Í þessu sam-
hengi má nefna að Slysavarnaskóli sjó-
manna er sá fyrsti í heiminum fyrir al-
menna sjómenn og það starf hefur skilað
því að alvarleg slys og dauðsföll á sjó
heyra næstum því sögunni til . Við höfum
átt gott samstarf við Slysavarnaskólann,
Landhelgisgæsluna og sjómenn um þró-
unina því það er okkur, sem þróum ör-
yggisbúnaðinn, afar mikilvægt að eiga
samvinnu við þá sem eiga líf sitt og limi
undir búnaðinum þegar í harðbakkann
slær . Í þessum efnum gildir nefnilega að
læra alltaf meira og meira og betrum-
bæta það góða sem fyrir er . Þannig
náum við að halda okkur í fremstu röð
og tryggja sem allra best öryggi sjó-
manna og annarra sem lenda í háska við
sjó og vötn,“ segir Pétur .
Markúsarnetið er framleitt í mismun-
andi útfærslum eftir borðhæð skipa, allt
frá 1 m upp í 30 m . Allar útfærslurnar
byggja á sama netstykki og kastlínubún-
aði, en eru með mismunandi löngum lín-
um til að dekka borðhæð skips . Núver-
andi útgáfa netsins var fullþróuð 1998 .
Pétur hefur þróað samhliða fram-
leiðslu á Markúsarnetum, Markus Neyð-
arstigann 1986, Markus Veltinet fyrir
slöngubáta, farþegabáta og sérstök
björgunarskip 2000, Markus Lyftinet fyr-
ir fraktskip 2010 og vinnuskip ýmiskonar
og nú síðast Markus Flóttanet 2017 fyrir
risastóra fljótandi olíuvinnslu stjórn-
stöðvar FSPO Egina og FSPO Usan . Þess-
ar lausnir sem allar byrjuðu með Mark-
úsarnetinu og byggja í grunninn á
Neyðarstiganum sem klifurnet, bjóða
upp margvíslegar sértækar lausnir til að
bjarga fólki úr sjó eða flýja í skyndi frá
brennandi skipi . Neyðarstiginn (Self
rescue MOB ladder) hefur t .d . verið gerð-
ur í sérstakri útgáfu fyrir flotbryggjur,
lokuð rými, s .s . fiskeldistanka og sem
flóttastigi í hús .
Mikilvægt að þekkja alþjóðareglur
„Strangt gæðaeftirlit og alþjóðlegi stað-
allinn ISO 19898-2019 gerir okkur kleift
að selja okkar vörur um allan heim, vera
í fararbroddi á heimsvísu á okkar sviði
og votta skoðun á okkar búnað hvar sem
er í heiminum þegar þess er óskað af
eigendum búnaðarins eða þess krafist af
skipaeftirliti (flokkunarfélagi) viðkom-
andi skips,“ segir Pétur Th . að lokum .
Hann býður alla velkomna í B3 bás
Markus Lifenet á sjávarútvegssýning-
unni .
markusnet .com
Nýr alþjóðlegur staðall byggir á
íslensku frumkvæði og hugviti
■ Pétur Th. Pétursson, framkvæmdastjóri Markus Lifenet ehf. í Hafnarfirði.
„Þetta er búin að vera löng og ströng barátta en þrautseigjan hefur skilað
árangri.“