Ægir - 2019, Blaðsíða 112
112
„Ísland er okkar heimamarkaður en
við horfum til mikilla tækifæra í auk-
inni sölu á erlendum mörkuðum enda
hefur viðskiptavinum okkar erlendis
fjölgað mikið. Náið samstarf sjávarút-
vegs- og tæknifyrirtækja hefur gert
íslenskan sjávarútveg að þeim
fremsta í heiminum. Það er því engin
tilviljun að horft sé til Íslands þegar
leitað er að besta búnaðinum,“ segir
Björg Finnbogadóttir, verkefnastýra
hjá fyrirtækinu Vélfagi ehf. Fram-
leiðsla og samsetning fiskvinnsluvéla
fyrirtækisins er í Ólafsfirði en skrif-
stofur og þróunarsetur á Akureyri
þar sem Vélfag hefur nýverið fjárfest
í stærra húsnæði til að mæta fyrirætl-
unum um vöxt í starfseminni og fjölg-
un spennandi tæknistarfa fyrir bæði
iðn- og háskólamenntað fólk.
Áhersla á framleiðslu og sölu
Auk flökunarvéla framleiðir Vélfag haus-
ara og roðdráttarvélar fyrir bolfisk,
bæði tölvustýrðar og mekanískar . Þá
hefur fyrirtækið þróað og afhent á þessu
ári hina nýju M521 hausara/klumbu-
skurðarvél sem er þróuð til að taka haus
og/eða klumbu af bolfiski fyrir flökun .
Á síðustu árum hefur fyrirtækið þró-
að tölvustýrða TakeControl gæða- og
stjórnkerfið fyrir sínar vélar og er þeim
stjórnað með snertiskjá . Hægt að kalla
fram og vinna með upplýsingar og still-
ingar með einföldum hætti . Með betri yf-
irsýn á ástand vélbúnaðarins er fyrir-
byggjandi viðhald einnig tryggt, lengri
uppitími og betri nýting . Með TakeCont-
rol er einnig hægt að fjartengjast vélun-
um hvar sem er í heiminum og veita
þjónustu við þær yfir netið .
„Nú er komið að því að fjölga spenn-
andi, fjölbreyttum störfum í fyrirtækinu
og leggja enn meiri áherslu á framleiðslu
og sölu á okkar búnaði jafnt í heildar-
lausnum sem stökum vélum, eftir því
sem við á . Aðal áherslan verður sem fyrr
í hjarta framleiðslunnar og tæknilegri
þróun vélanna enda mörg spennandi
þróunarverkefni framundan,“ segir
Björg .
Fyrsta stóra heildarlausnin afhent
til Rússlands
Á þessu ári afhenti Vélfag sína fyrstu
stóru heildarlausn í Rússlandi, sem er
hluti af stórum samningi sem íslenska
fyrirtækið Valka ehf . var með fyrir bún-
að í nýja fiskvinnslu . Vélfag ehf . sá um
vélbúnað fyrir innmötun, hausun, flök-
un og roðdrátt . TakeControl stýrikerfið
var aðlagað fyrir þessa heildarlausn og
sérhannað palla- og færibandakerfi
tryggir bæði aðgengi að vélum og flutn-
ing fisksins innan línunar með sem
minnstu hnjaski .
„Vélfag hefur náð góðum árangri í
markaðssetningu hér heima á síðustu
árum, fyrst á sjó og svo í landvinnslum
en vaxtartækifæri okkar felast í útflutn-
ingi . Eins og staðan er núna finnum við
fyrir mikilli eftirspurn frá Austur-Evr-
ópu og ekki síst Rússlandi þar sem er
metnaður og fjármagn til að byggja
tæknivæddar landvinnslur á borð við
nýjustu vinnslurnar hér á landi . Það eru
gífurlega spennandi tímar framundan á
hinum alþjóðlega sjávarútvegsmarkaði .
Við sjáum aukna áherslu á bæði nýtingu
og gæði á því dýrmæta hráefni sem fisk-
ur er . Á sama tíma er mikil vöntun á sér-
hæfðu starfsfólki hvert sem litið er og
aukin þörf á sjálfvirkni . Aðstæður fyrir
fyrirtæki eins og Vélfag gætu hreinlega
ekki verið meira spennandi,“ segir Björg .
velfag .com
■ Vélfag stefnir að vexti og fjölgun starfa á næstu misserum. Hér eru Björg Finnbogadóttir, verkefnastýra (lengst til vinstri)
og eigendur fyrirtækisins, þau Ólöf Ýr Lárusdóttir og Bjarmi Sigurgarðarsson, við nýja starfsstöð Vélfags á Akureyri en þar
verða skrifstofur og öflug þróunardeild.
Vélfag stefnir á vöxt með stóraukn-
um útflutningi fiskvinnsluvéla