Morgunblaðið - 11.06.2020, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 11.06.2020, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2020 Breska dagblaðið The Guardianhefur neitað að verða við kröf- um um að fjarlægja mynd eftir teiknara sinn af vefnum, en sumum var ofboðið þegar blaðið birti mynd af Priti Patel innanrík- isráðherra og Boris Johnson forsætisráð- herra í líki naut- gripa. Patel sagði í breska þinginu að myndin væri ekki að- eins til marks um kynþáttahatur held- ur líka móðgandi, bæði menningar- og trúarlega, en Patel er hindúi.    Starfsmenn blaðsins hafa ekkimisst vinnuna vegna þessa og hægt er að velta því fyrir sér hvort það stafar af því að Patel er hægra megin við miðju stjórnmálanna en The Guardian vinstra megin. Það er að minnsta kosti umhugsunarvert að skömmu áður varð mikil ólga innan- húss á dagblaðinu The New York Times í Bandaríkjunum, sem er til vinstri, en þar hafði greinadeild blaðsins leyft birtingu á grein eftir öldungadeildarþingmann, Tom Cot- ton, sem er repúblikani. Svo mikið gekk á innanhúss hjá NYT að yfir- maður greinadeildar, James Bennet, neyddist til að segja af sér og næst- ráðandinn var færður til í starfi.    Bennet hafði, sem von er, variðbirtingu greinarinnar þar sem sjónarmið Cottons væru innlegg í umræðuna þó að Bennet sjálfur væri alfarið ósammála þeim, sem er allt annað mál.    Það er sorglegt að þetta skynsam-lega viðhorf Bennets til umræð- unnar skuli hafa orðið til þess að hann var hrakinn úr starfi og hlýtur að vekja spurningar um trúverðug- leika NYT, einkum þegar kemur að umfjöllun um bandarísk stjórnmál. Priti Patel Eru ólík viðhorf óæskileg? STAKSTEINAR Tom Cotton Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Frá og með 1. janúar næstkomandi verður æðstu stjórnendum ríkisins og aðstoðarmönnum ráðherra gert skylt að tilkynna um tiltekna hags- muni sína á borð við eignir og skuldir auk sömu upplýsinga um maka sína og ólögráða börn á framfæri sínu. Þá er þeim gert að tilkynna um gjafir yfir tiltekinni fjárhæð sem þeir þiggja í tengslum við starf. Þetta kemur fram í frumvarpi Katrínar Jakobsdóttur forsætisráð- herra um varnir gegn hagsmuna- árekstrum í Stjórnarráði Íslands sem var samþykkt á Alþingi á þriðju- dag. Halda skrá vegna ráðherra Þá verður forsætisráðuneytinu gert að halda skrá yfir og birta upp- lýsingar sem varða ráðherra, ráðu- neytisstjóra og aðstoðarmenn ráð- herra. Ráðherra getur ákveðið að birta upplýsingar úr skránni sem varða hagsmuni skrifstofustjóra og sendiherra þegar almannahags- munir krefjast þess. Lögin hafa einnig að geyma regl- ur um takmarkanir á starfsvali að opinberum störfum loknum þannig að æðstu stjórnendum verður bannað að gerast hagsmunaverðir í tiltekinn tíma. ragnhildur@mbl.is Gert að tilkynna um hagsmuni sína  Lög um varnir gegn hagsmuna- árekstrum samþykkt á Alþingi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Reglur Eftirlit og ákvarðanataka verður undir forsætisráðuneytinu. Nemendum sem sóttu um í Vinnu- skóla Reykjavíkurborgar fjölgaði mikið á milli ára, að sögn Magn- úsar Arnars Sveinbjörnssonar, skólastjóra vinnuskólans, en vinnuskólinn hóf störf síðastliðinn þriðjudag. Þannig hafa 3.200 sótt um í vinnuskólanum hingað til en 2.300 sóttu um í fyrra, og er fjölgun um- sókna því tæp 40%. Í fyrra var fjölgun á milli ára um 15%. „Við tökum við öllum og bjóðum störf á einhverju af þremur starfs- tímabilum sumarsins,“ segir Magnús í skriflegu svari við fyr- irspurn Morgunblaðsins. Vinna í 50 til 140 stundir Sömu sögu er að segja af eftir- spurn í Vinnuskóla Garðabæjar en í ár eru 700 nemendur skráðir þar en 500 voru skráðir í vinnuskólann í fyrra. Fjölgunin þar er því einn- ig 40%. Allir sem sóttu um starf hjá Vinnuskóla Garðabæjar og uppfylla starfsskilyrði fá starf, samkvæmt upplýsingum frá Huldu Hauksdóttur, upplýsingastjóra Garðabæjar. Til þess að anna eft- irspurn er Reykjavíkurborg í sam- starfi við starfsstaði borgarinnar og eins frístundaheimili, leikskóla, íþróttafélög og skáta til þess að bjóða upp á fjölbreyttari störf fyr- ir elstu nemendur. „Við höfum fjölgað þeim störf- um auk þess að fjölga í okkar hefðbundna hópastarfi,“ segir Magnús. Áttundubekkingar fá 52,5 klukkustunda starf, níundubekk- ingar 105 klukkustunda starf og tíundubekkingar 140 klukkustunda starf. ragnhildur@mbl.is 40% fjölgun um- sókna í vinnuskóla  Mikil fjölgun í vinnuskólum Reykja- víkur og Garðabæjar Morgunblaðið/Árni Sæberg Vinna Starfsemi Vinnuskólans í Reykjavík hófst í vikunni í bleytu. Afmælistilboð Fríform fagnar 20 ára afmæli sínu í ár. Við bjóðum viðskiptavinum okkar 20% afslátt af öllum innréttingum í júní. Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is. Mán. – Föst. 10–17 Laugardaga LOKAÐ 2 0 0 0 — 2 0 2 0
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.