Morgunblaðið - 11.06.2020, Side 43

Morgunblaðið - 11.06.2020, Side 43
43 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2020 Hraðfrystihús Hellissands – stoltur þátttakandi í atvinnulífi Snæfellsbæjar Þegar Lilja Hrund Jóhannsdóttir út- skrifaðist sem matreiðslumeistari árið 2017 hefði hún hæglega getað fundið sér gott og vel launað starf í Reykjavík enda var þá mikill upp- gangur í veitingastaðasenu höfuð- borgarsvæðisins, m.a. vegna fjölg- unar erlendra ferðamanna. Hún vildi samt miklu frekar snúa aftur heim á Snæfellsnesið. „Ég er bara þannig að mér finnst best að vera á skrilljón og hafa brjálað að gera. Að reka veitingastað í Ólafsvík hefur verið heilmikið ævintýri og mikil vinna en það hefur líka verið gef- andi að byggja upp eigin rekstur og gott að búa á þessu svæði,“ segir Lilja en hún á og rekur í dag veit- ingastaðinn Sker við Ólafsvíkur- höfn í húsi þar sem Sparisjóður Ólafsvíkur var áður til húsa. Foreldrar og bróðir Lilju hjálp- uðu henni að gera drauminn að veruleika. Þau keyptu húsið haustið 2017 og tók þá við langt og strembið framkvæmdatímabil þar sem sparisjóðsútibúið umbreyttist í huggulegan og rúmgóðan veitinga- stað. „Við þurftum til dæmis að koma bankahvelfingunni út úr hús- inu og tók tvær vikur að brjóta henni leið. Einnig gerðum við gat á bakhlið hússins, sem snýr að höfn- inni, og komum þar fyrir stórum glugga svo gestir geti notið út- sýnisins.“ Metnaður í matseldinni Gaman er að upplýsa að heima- menn eru mjög duglegir að sækja veitingastaðinn. „Á sumrin er rekst- urinn einkum borinn uppi af er- lendum og innlendum ferðamönn- um en á veturna eru íbúar Ólafsvíkur og nærsveita bestu viðskiptavinir okkar og leggjum við okkur fram við að koma til móts við þau með góðum tilboðum og mat- seðli sem endurspeglar óskir heima- manna.“ Þannig ákvað Lilja, að áeggjan bróður síns, að bjóða upp á pítsur og hamborgara í bland við sjávarrétti sem jafnast á við það fínasta sem finna má á veitingastöðum í Reykja- vík. „Í fyrstu þótti mér það af og frá að baka pítsur, verandi nýkomin úr matreiðslunámi, en fyrst vöntun var á góðum pítsum á svæðinu ákvað ég að við skyldum þá bjóða upp á allra bestu pítsur sem völ væri á,“ segir Lilja sem greip m.a. til þess ráðs í kórónuveirufaraldrinum að bregða á leik með hamborgaramatseðilinn. „Við útbjuggum sérstakan matseðil og buðum upp á ólíka borgara sem nefndir eru eftir bátunum hér í höfninni. Svo fylgdumst við vel með hver yrði „aflahæstur“ og fór fram óformleg keppni um hvaða borg- arar seldust best. Vinsælustu borg- ararnir hafa núna fengið sitt pláss á matseðlinum til frambúðar og munu áfram bera nöfn báta sem má sjá út um glugga veitingastaðarins.“ Pítsurnar og hamborgararnir á Skeri eru herramannsmatur en Lilja leggur alveg sérstakan metnað í fiskréttina. Gott sjávarfang er henni mikið hjartans mál enda kom- in af sjómönnum og gerir fjöl- skyldan út lítinn línubát. „Ég rak mig á það að þrátt fyrir blómlega útgerð á svæðinu var lítið annað í boði en frosinn fiskur og þurfti að gera sérstakar ráðstafanir svo að bjóða mætti matargestum okkar upp á fiskrétti úr fersku hráefni ár- ið um kring.“ ai@mbl.is Gerir sælkerarétti í sparisjóðshúsinu  Á veitingastaðnum Skeri í Ólafsvík er hlustað á óskir heimamanna  Nöfnin á hamborgurunum voru fengin að láni frá bátunum í höfninni Vandað Lilja þykir sýna mjög mikinn metnað í eldhúsinu. Þægindi Sker rúmar fjölda gesta. Framboð Lilja þurfti að gera sérstakar ráðstafanir svo að bjóða mætti matargestum upp á fiskrétti úr fersku hráefni árið um kring. MVið elskum Ísland »47 Menn og tröll Þeir sem heimsækja þjóðgarðinn ættu endilega að lesa sér til um nátt- úruna sem þar er að finna, og heim- sækja gestastofuna á Malarrifi. Sak- ar heldur ekki að þekkja sögu byggðarinnar á svæðinu og stendur þar upp úr Bárðar saga Snæfellsáss. Bárður átti mennska móður en hálf- tröll fyrir föður og segir sagan að hann hafi numið land í Djúpalóni og hafa ótal sögur spunnist um Bárð og hans ætt. „Ein sagan segir að nafn Dritvíkur komi til af því að þegar Bárður og félagar lögðu skipum sín- um utan við Snæfellsnes gengu þeir örna sinna út fyrir borðstokkinn. Næsta dag ganga þeir á land í vík- inni og þurfa þá að vaða í gegnum það sem þeir skiluðu í hafið daginn áður, og kölluðu svæðið því Dritvík en sú vík átti síðar eftir að skipa stóran sess í útróðrarsögu þjóð- arinnar,“ segir Jón. „Það er líka ein sérstaða Bárðar sögu að hún hefur haldist lifandi allt fram til okkar daga og eru nýjar sögur enn að verða til, enda Bárður n.k. heitguð heimamanna.“ Ljósmynd / Snæfellsbær Útsýni Aðeins ætti að ganga á jökulinn með vönu fólki.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.