Morgunblaðið - 11.06.2020, Side 62

Morgunblaðið - 11.06.2020, Side 62
Breiðablik hefur styrkinn og hópinn til þess að gera tilkall til titilsins á nýjan leik. Það fer ekki á milli mála. Líf eftir Margréti Láru? Valskonur töpuðu ekki leik í fyrra og unnu langþráðan meistaratitil eftir mikið einvígi við Breiðablik þar sem tvö stig skildu liðin að. Valur virðist vera með enn sterkari leik- mannahóp í ár eftir að hafa fengið þrjá bráðefnilega leikmenn til liðs við sig í vetur. En á móti kemur að eini fastamaðurinn sem er horfinn á braut skilur eftir sig gríðarstórt skarð. Margrét Lára Viðarsdóttir, sem skoraði eða lagði upp 23 af mörkum liðsins í fyrra, lagði skóna á hilluna í vetur. Spurningin verður því fyrst og fremst hvernig Pétur Pétursson lagar lið sitt að brotthvarfi hennar, þótt vissulega séu nægilegir hæfi- leikar í leikmannahópnum til að halda sínu striki. Þær Elín Metta Jensen og Hlín Eiríksdóttir skoruðu 16 mörk hvor í deildinni í fyrra og Valsliðið er einfaldlega með svo mikla reynslu og hæfileika í leik- mannahópi sínum að það ætti að eiga góða möguleika á að halda Ís- landsbikarnum á Hlíðarenda. Þó að Margrét Lára sé hætt. Skýr skilaboð á Selfossi Eru Selfyssingar tilbúnir í slaginn um Íslandsmeistaratitilinn og geta þeir ógnað Breiðabliki og Val? Liðið sendi skýr skilaboð með sigrinum á Val í Meistarakeppni KSÍ á dög- unum og eftir að hafa unnið fyrsta stóra titilinn á síðasta ári, þar sem Selfoss lagði KR í úrslitaleik bikar- keppninnar, er mikill hugur í leik- mönnum og forráðamönnum liðsins. Selfoss jafnaði besta árangur sinn í fyrra með því að ná þriðja sætinu, en það verður ekki auðvelt fyrir Al- freð Elías Jóhannsson og hans kon- ur að taka næsta skref. Verkefnið er að ryðja stórveldunum Val og Breiðabliki úr vegi. Landsliðskonurnar Dagný Brynj- arsdóttir og Anna Björk Kristjáns- dóttir eru liðinu gríðarlegur liðs- styrkur og Hólmfríður Magnús- dóttir virðist koma frísk til leiks á 21. tímabili sínu í meistaraflokki. Ef þessar þrjár ná að sýna bestu hliðar sínar í búningi Selfyssinga er ým- islegt hægt. Þá er framherjinn Tiffany McCarty greinilega öflugur liðsauki og markvörðurinn Kaylan Marckese lofar góðu. Eyjastúlkan unga Clara Sigurðardóttir styrkir líka liðið og fyrir eru öflugar heimastúlkur með Barbáru Sól Gísladóttur, fyrirliðann Önnu Maríu Friðgeirsdóttur og vinnuþjarkinn Karitas Tómasdóttur fremstar í flokki. Það er spennandi tímabil fram undan á Selfossi. Verður þetta besta ár Fylkis? Fylkir hefur aldrei komist ofar en í fimmta sætið á Íslandsmótinu en gangi spáin eftir nær Árbæjarliðið besta árangri sínum í sumar. Fylkir hefur á bestu árum sínum verið um miðja deildina en oftar þurft að berjast fyrir lífi sínu. Nú virðast bjartir tímar fram undan í Árbænum en liðið stóð sig vel sem nýliði í fyrra, endaði í sjötta sæti, og virðist í ár hafa alla burði til að bæta ofan á þann árangur því hópurinn hjá Kjartani Stefánssyni er orðinn mun sterkari. Ungir leikmenn sem hafa sannað sig með öðrum liðum og leikið með yngri landsliðum Íslands hafa bæst við, svo sem systurnar og varnar- mennirnir Katla María og Íris Una frá Keflavík, og þá er María Eva Eyjólfsdóttir líka styrkur fyrir varnarleik liðsins. Sólveig Larsen kemur frá Breiðabliki og hin þraut- reynda Vesna Elísa Smiljkovic, fyrr- verandi landsliðsfyrirliði Serbíu, kemur með gríðarlega reynslu inn í liðið, enda með langan og glæsilegan feril að baki. Tveir erlendir leikmenn eru farn- ir, sem og systurnar Ída Marín og Thelma Lóa Hermannsdætur sem fóru í Val og KR. Ída var marka- hæsti leikmaður Fylkis í fyrra og nú verður helsta spurningin hver eigi að skora mörkin. Þar þarf Marija Radojicic, landsliðskona Serbíu, að taka meiri ábyrgð en hún gerði þó sex mörk í fyrra. Lendir Stjarnan í vandræðum? Stjarnan er að hefja 29. tímabil sitt í röð í deildinni og félagið vann sjö stóra titla á árunum 2011 til 2016. Í fyrra urðu mikil umskipti á leik- mannahópnum, segja má að liðið hafi gert vel að halda fimmta sætinu, en viðbúið er að það verði enn erfið- ara í ár. Fjórir leikmenn sem spiluðu mik- ið í fyrra hafa lagt skóna á hilluna eða farið í barneignarfrí, þar á meðal Sóley Guðmundsdóttir fyrirliði og Sigrún Ella Einarsdóttir, en á móti kemur að miðjumennirnir Betsy Hassett frá KR og Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir frá ÍBV eru komnar í staðinn. Betsy á eflaust eftir að reynast liðinu vel, enda með gríðar- lega reynslu sem leikmaður á þrem- ur heimsmeistaramótum og á tvenn- um Ólympíuleikum og með á annað hundrað landsleiki fyrir Nýja- Sjáland. Nái Kristján Guðmundsson að halda Stjörnunni á lygnum sjó um miðja deild verður það líklega enn betri árangur en í fyrra, miðað við hópinn. Það má ekki mikið út af bregða til að Garðabæjarliðið lendi í vandræðum í neðri hluta deildar- innar í ár. Ógnar Sel- foss stór- veldunum?  Öflugur liðsauki fyrir austan fjall en dugar það til að skáka firnasterkum liðum Breiðabliks og Vals? Morgunblaðið/Sigurður Uppleið Selfoss byrjaði tímabilið vel með því að sigra Val í Meistarakeppni KSÍ. Getur liðið veitt Val og Breiðabliki keppni um Íslandsmeistaratitilinn? KONURNAR 2020 Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Heyja Valur og Breiðablik annað einvígi um Íslandsmeistaratitil kvenna í fótbolta eða er breiddin í Pepsi Max-deildinni orðin meiri þannig að fleiri lið blandi sér í bar- áttuna? Stórveldin tvö eru eftir sem áður líkleg til að skipa sér í tvö efstu sæt- in og þar settu sérfræðingar Morgunblaðsins þau í spánni sem birt var á þriðjudaginn. Samkvæmt henni verða Breiðablik, Valur, Sel- foss, Fylkir og Stjarnan í fimm efstu sætum deildarinnar í ár. Í fyrra skildu fjórtán stig að Breiðablik og Selfoss í öðru og þriðja sætinu, þannig að bilið sem þarf að brúa er stórt. Meistaraefni í Kópavogi Breiðablik missti af meistaratitl- inum til Vals með minnsta mun í fyrra og varð að sætta sig við silfrið þrátt fyrir að hafa ekki tapað leik á Íslandsmótinu. Sérfræðingar Árvakurs spá Kópa- vogsliðinu titlinum í ár og það fer ekki á milli mála að Þorsteinn Hall- dórsson gæti hæglega náð þriðja meistaratitli sínum sem þjálfari liðs- ins á sex árum. Rakel Hönnudóttir er komin aftur í Kópavoginn eftir atvinnumennsku erlendis og Sveindís Jane Jóns- dóttir, einn besti leikmaður Íslands- mótsins í fyrra, er komin frá Kefla- vík. Með Berglindi Björgu Þorvaldsdóttur, Öglu Maríu Al- bertsdóttur, Alexöndru Jóhanns- dóttur, Hildi Antonsdóttur og Karól- ínu Leu Vilhjálmsdóttur einnig framarlega á vellinum er Breiða- bliksliðið einfaldlega ógnvænlega sterkt. Varnarmennirnir Kristín Dís Árnadóttir, Heiðdís Lillýjardóttir og Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir voru meðal þeirra bestu í sínum stöðum í deildinni í fyrra og Sonný Lára Þráinsdóttir hefur verið einn traustasti markvörður landsins undanfarin ár. Ásta Eir Árnadóttir og Fjolla Shala eru í barneignarfríi og Selma Sól Magnúsdóttir er að jafna sig af alvarlegum meiðslum og það munar vissulega um þessar þrjár. En 62 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2020 Þýskaland Bikarkeppni kvenna, undanúrslit: Wolfsburg – Arminia Bielefeld.............. 0:5  Sara Björk Gunnarsdóttir kom inn á hjá Wolfsburg á 74. mínútu og skoraði fimmta markið á 88. mínútu. Leverkusen – Essen ................................ 1:3  Sandra María Jessen lék allan leikinn með Leverkusen.  Wolfsburg og Essen mætast í úrslitaleik keppninnar 4. júlí. Bikarkeppni karla, undanúrslit: Bayern München – Eintracht Fr............ 2:1  Bayern mætir Leverkusen í úrslitaleik keppninnar 3. júlí. C-deild: Kaiserslautern – Duisburg..................... 1:3  Andri Rúnar Bjarnason lék ekki með Kaiserslautern vegna meiðsla. Danmörk Bikarkeppnin, undanúrslit: SönderjyskE – Horsens .......................... 2:1  Eggert Gunnþór Jónsson kom inn á hjá SönderjyskE á 73. mínútu en Ísak Óli Ólafsson var ekki í leikmannahópnum. AaB – AGF................................................ 3:2  Jón Dagur Þorsteinsson lék síðari hálf- leikinn og lagði upp seinna mark AGF.  AaB og SönderjyskE mætast í úrslitaleik keppninnar. Pólland LKS Lódz – Jagiellonia........................... 0:3  Böðvar Böðvarsson var ekki í leik- mannahópi Jagiellonia. KNATTSPYRNA  Knattspyrnukonan Thelma Lóa Her- mannsdóttir er gengin til liðs við KR, en hún kemur til félagsins frá uppeldisfélagi sínu Fylki. Thelma Lóa er tvítug en hún á að baki 34 leiki í efstu deild þar sem hún hefur skorað tvö mörk. Hefur hún stundað háskóla- nám í Bandaríkjunum undanfarin ár og kom því aðeins við sögu í sex leikjum með Fylki í efstu deild síðasta sumar. Ragna Lóa Stefánsdóttir, móðir Thelmu, er aðstoðarþjálfari KR. Thelma á að baki sjö landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.  Knattspyrnumaðurinn Ari Sigur- pálsson er á leið til ítalska A-deildar- félagsins Bologna samkvæmt heim- ildum mbl.is. Kaupin eru ekki gengin í gegn en vonast er til þess að mál Ara verði klárað í vikunni. Þessi 17 ára gamli sóknarmaður fór á láni til Bo- logna síðasta vetur og hrifust for- ráðamenn félagsins af frammistöðu hans. Ari mun hins vegar spila með HK í sumar í úrvalsdeildinni, Pepsi Max- deildinni, þar sem Bologna ætlar að lána hann aftur í Kópavoginn.  Roger Federer, sá sigursælasti í einliðaleik karla á risamótunum í tenn- is frá upphafi, er úr leik vegna meiðsla og missir af næstu tveimur risa- mótum. Federer fór í aðgerð í febrúar og talið var að hann yrði búinn að ná sér í sumar en það hefur ekki gengið eftir. Hann segist nú setja stefnuna á að verða leikfær í upphafi næsta árs, en eitt risa- mótanna Opna ástralska meist- aramótið fer iðulega fram í jan- úar. Áætl- að er að Opna banda- ríska meist- aramótið og Opna franska meist- aramótið verði þegar líður á sumarið. Eitt ogannað Tveimur leikjum í fyrstu umferð Pepsi Max-deildar karla í knatt- spyrnu hefur verið frestað, öðrum um sólarhring en hinum um nokkra klukkutíma. KSÍ greindi frá því í gær að ósk Víkinga í Reykjavík um sólarhrings frestun á leik þeira við Fjölni hefði verið samþykkt. Því verður leikið á Víkingsvellinum kl. 18 á mánudaginn, en leika átti á sama tíma á sunnudaginn. Í fram- haldinu var leik HK og FH í Kórn- um á sunnudag seinkað um nokkra klukkutíma og hann hefst kl. 18 í staðinn fyrir 13.30. Tilfærslur í fyrstu umferðinni Morgunblaðið/Íris Meistarakeppni Frá leik KR og Víkings á dögunum. Þrír fengu afhent gullmerki ÍSÍ fyrir störf sín í þágu íþróttahreyf- ingarinnar á ársþingi HSÍ í gær. Voru það Einar Þorvarðarson, Vig- fús Þorsteinsson og Þorbergur Aðalsteinsson. Forysta HSÍ er óbreytt en endur- kjörin í stjórn voru: Arnar Þorkels- son, Reynir Stefánsson, Kristín Þórðardóttir og Guðríður Guðjóns- dóttir en fyrir í stjórn eru þau Guð- mundur B. Ólafsson formaður, Dav- íð B. Gíslason varaformaður, Jón Viðar Stefánsson, Magnús Karl Daníelsson og Páll Þórólfsson. Þrír fengu gullmerki ÍSÍ Morgunblaðið/Golli HSÍ Einar Þorvarðarson hlaut gull- merki ÍSÍ á ársþingi HSÍ í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.