Morgunblaðið - 11.06.2020, Side 14

Morgunblaðið - 11.06.2020, Side 14
Hlaupagikkur Margrét Erla Maack hér í nýjum bol Kvennahlaupsins. Hægt verður að taka á rás á meira en 80 stöðum á landinu í Sjóvár- kvennahlaupi ÍSÍ nk. laugardag, 13. júní. Allir geta verið með óháð aldri, þjóðerni eða kyni. Fjölmennustu hlaupin fara fram í Garðabæ og Mos- fellsbæ, en hvarvetna þar sem hlaupið verður gilda reglur um hámarksfjölda fólks á staðnum og annað sem máli skiptir viðvíkjandi kórónuveirunni. Sjóvár-kvennahlaup ÍSÍ 2020 er nú þreytt í 30. sinn. Árið 1990 var mark- miðið að hvetja konur til hreyfingar og almennrar þátttöku í íþróttastarfi og óhætt að segja að það hafi tekist, seg- ir í tilkynningu. Er þar vísað til þess að nú eigi Ísland afrekskonur á öllum sviðum íþrótta og almenn hreyfing með besta móti. Árið 2020 er mark- mið hlaupsins að hvetja konur til þess að gera hlutina á eigin forsendum og nær sú hugsun langt út fyrir hlaupið og líkamsrækt. Kvennahlaup nú- tímans snýst um hreyfingu sem hent- ar hverjum og einum, samveru kyn- slóðanna, líkamsvirðingu, sanngirni, umhverfismeðvitund og valdeflingu. Einkunnarorði nú eru: Hlaupum sam- an! Nýr og endurhugsaður kvenna- hlaupsbolur var afhjúpaður á dög- unum. Bolurinn er tákn nýrra tíma, hugsaður frá grunni og slær tóninn fyrir nýja hugsun, segir í fréttatilkynn- ingu. Linda Árnadóttir, lektor í fata- hönnun við Listaháskóla Íslands og eigandi Scintilla, hannaði bolinn. Flík- in, sem er úr bómull, er falleg og hag- nýt og sögð henta vel vel við alla íþróttaiðkun. Nánari upplýsingar um hlaupastaði og tímasetningar birtast á næstu dög- um á www.kvennahlaup.is. Hlaupum saman laugardaginn 13. júní. Miðasala fyrir hlaupið sem og forsala bola er hafin á www.tix.is. Kvennahlaup Sjóvár og ÍSÍ er á laugardaginn Hlaupið verður nú í 30. sinn á meira en 80 stöðum á landinu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sprettur Kvennahlaupið virkjar kraftinn og hreyfing er öllum mikilvæg. 14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2020 100% Merino ull Flott og þægileg ullarnærföt við allar aðstæður Frábært verð Stærðir: S – XXL Ullarnærföt í útivistina Sölustaðir: Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar Heimkaup • Verslunin Bjarg, Akranesi • JMJ, Akureyri Lífland, Hvolsvelli og Blönduósi Verslunin Blossi, Grundafirði Efnalaug Vopnafjarðar • Kaupfélag Skagfirðinga • Smart, Vestmannaeyjum • Verslun Grétars Þórarinnssonar, Vestmannaeyjum • Kaupfélag V-Húnvetninga • Borgarsport, Borgarnesi • Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík Verslun Dóru, Hornafirði • Þernan, Dalvík • Siglósport, Siglufirði • Vaskur, Egilsstöðum Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi OLYMPIA Öll höfum við með einum eðaöðrum hætti upplifaðálagstíma undanfarnarvikur og mánuði. Kór- ónuveirufaraldur hefur herjað á okk- ur en við höfum verið svo lánsöm með samstilltu átaki okkar allra að hafa náð góðum tökum á þessum ófögnuði sem veiran svo sannarlega er. Þó með vissum fórnarkostnaði. Þunglyndi þrátt fyrir hækkandi sól Álagstímar eru nú að baki í bili hvað faraldurinn áhrærir en óvissu- tímar eru fram undan. Auknu álagi getur fylgt kvíði, vanlíðan og jafnvel depurð og þunglyndi þrátt fyrir hækkandi sól. Heimilislæknar mæta fólki á velli lífsins, svo að segja á öllum stigum. Margir eru eðlilega hikandi að ræða þá hluti sem hvað þyngst vega og tíma getur tekið að ávinna sér trún- aðartraust þess sem maður ræðir við hverju sinni. Einna erfiðast getur verið að ræða andlega vanlíðan og þá tilfinningu að ráða ekki við hversdag- inn. Við eigum ekki að standa uppi ein í slíkum aðstæðum, maðurinn er ekki eyland. Mikil þekking hefur áunnist á eðli og meðferð þunglyndis og svokallaðra kvíðaraskana og hvernig hægt er að berjast til sigurs. Upplifa aukna vellíðan á ný og betra líf. Við greiningu á þeirri vanlíðan sem þunglyndi og kvíði veldur þarf að skoða hvernig og hversu lengi þessi vanlíðan hefur staðið yfir. Það er eðli- legt að finna á tímabilum fyrir kvíða, jafnvel hræðslu og depurðareinkenn- um. En ef þessi einkenni verða við- varandi og ráðandi í lífinu og eru jafn- vel farin að stjórna því hvernig við bregðumst við og hegðum okkur, jafnvel þvert gegn betri vitund okkar, er tími til kominn að setjast niður, ræða málin og leita sér aðstoðar. Ef til dæmis kvíði hefur verið viðvarandi lengur en í sex mánuði, þessi tilfinn- ing að vera stöðugt eins og „hengdur upp á þráð“, er ástæða til að staldra við. Einkenni kvíðans geta verið eirð- arleysi, að finna fljótt fyrir þreytu, einbeitingarskortur, aukin vöðva- spenna, spenna í líkamanum og svo svefntruflanir – erfitt að festa svefn, laus svefn og lélegur svefn. Missa gleðitilfinninguna Einkenni þunglyndis geta verið misalvarleg, allt frá vægari einkenn- um upp í svæsnari. Við greiningu á erfiðari vanda skiptir tíminn sem van- líðanin hefur staðið yfir einnig máli. Sú vanlíðan sem hvað mest einkennir þunglyndið er depurð, vonleysi og þessi tilfinning að hafa misst gleði- tilfinninguna úr lífinu. Þunglyndi er viðvarandi vanlíðan sem getur hvolfst yfir eins og skuggi úr skúmaskoti jafnvel án þess að sá sem fyrir því verður taki vel eftir því. Aðstand- endur, fjölskylda og vinir eru þeir sem hvað mest taka eftir þeirri breyt- ingu sem verður þá á maka, mömmu, pabba, góðum vini eða vinnufélaga. Markmið góðrar heilsugæslu er að vera sá viðkomustaður sem fólk getur leitað til í vanda, bæði andlegum og líkamlegum, en mjög oft fer þetta saman. Þar er fagfólk til staðar sem getur hjálpað þegar vandi steðjar að. Ég vil nota tækifærið og benda á heilsuvera.is til að finna gagnlegar upplýsingar um hvernig bæta má líð- an og hvert má leita. Maður er manns gaman Kórónuveirufaraldur var nefndur hér í byrjun, vonandi mun við sem þjóð bera gæfu til að takast samhent á við þann vágest áfram. Í Hávamálum segir að maður sé manns gaman. Njótum samvista hvert annars, hlú- um hvert að öðru bæði í starfi og leik. Þannig mun okkur farnast vel. Álag og andleg líðan Morgunblaðið/Eggert Sund Lífsgæðin eru í laugunum. Ef þungur vandi steðjar að er mikilvægt að leita ráða fagfólks því góð andleg líðan er undirstaða alls í daglegu lífi. Heilsuráð Guðmundur Karl Sigurðsson, heimilislæknir fagstjóri lækninga Heilsugæslunni Árbæ. Unnið í samstarfið við Heilsu- gæslu höfuðborgarsvæðisins. „Málefnið er brýnt og brennur á fólki hér um slóðir. Þetta verður því öðrum þræði áróðurssöngur,“ segir Guð- björg Garðarsdóttir í Kvennakór Hornafjarðar. Þrátt fyrir samkomu- bann hefur eitt og annað verið í gangi meðal kórkvenna. Undir leiðsögn Heiðars Sigurðssonar kórstjóra tók kórinn upp þrjú lög í samkomubanns- útgáfu þar sem hver og ein kórkona tók upp eigin söng á myndbandi sem síðan var klippt saman og birt á sam- félagsmiðlum. Ekki var hægt að halda hefðbundna tónleika og því ákváðu kvennakórskonur að gleðja Hafnar- búa með því að keyra syngjandi um bæinn á glæstum söngpalli. Nú ætlar kórinn að slá botninn í söngárið með því að syngja á öllum einbreiðu brúnum í Austur-Skafta- fellssýslu. Mikið hefur áunnist í því að útrýma þeim en þrátt fyrir það eru enn 17 slíkar brýr í sýslunni, sem nær frá Hvalnesskriðum út á Skeiðarár- sand. Þrýst er á um úrbætur og því ákváðu kvennakórskonur að vekja at- hygli á þessu málefni á menningar- legan hátt. Byrjað verður að syngja við Hval- dalsá í Lóni, austustu brú sýslunnar, kl. 9.25 á laugardagsmorgun. Síðan munu konur syngja sig í vesturátt og enda á vestustu brúnni í Öræfum við Skaftafellsá. Við Jökulsá á Breiða- merkursandi verða kórkonur kl. 16:00 og taka þar lagið – hátt og snjallt! Kvennakór Hornafjarðar í víking um helgina Sungið á brúnum sautján Söngur Kvennakórinn og fremst á myndinni er Heiðar Sigurðsson stjórnandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.