Morgunblaðið - 11.06.2020, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2020
Safnahús Borgarfjarðar stendur
fyrir sýningu á ljósmyndum sem
Helgi Bjarnason blaðamaður tók í
Borgarnesi á fyrrihluta níunda ára-
tugarins. Helgi var þá fréttaritari
fyrir Morgunblaðið á staðnum.
Sendi hann blaðinu fréttir og myndir
af ýmsum fréttaatburðum og sam-
komum og úr starfsemi fyrirtækja
og tók sjálfstæð viðtöl af ýmsu til-
efni.
Sýningin nefnist „353 andlit“ og
verður opnuð í dag í Hallsteinssal í
safnahúsinu.
Fleiri fái að njóta
„Ég tók mikið af myndum á
fréttaritaraárunum í Borgarnesi og
raunar einnig í héraðinu öllu og víð-
ar vegna þess að ég var sendur um
allt land til fréttaöflunar eftir að ég
hóf að starfa sem blaðamaður við
Morgunblaðið á árinu 1982,“ segir
Helgi. Hann segist hafa verið að
skanna inn myndir af þessum gömlu
filmum á síðustu árum og haft áhuga
á að fleiri fengju að njóta þeirra. Því
hafi verið kærkomið að fá að vera
með sumarsýningu Safnahússins.
Á sýninguna hefur Helgi valið
ljósmyndir af fólki og mannlífi í
Borgarnesi, aðallega frá árunum
1981 til 1984. Það eru ekki eingöngu
myndir sem birst hafa í Morgun-
blaðinu eða öðrum blöðum heldur
ekki síður myndir sem ekki hentuðu
til birtingar með fréttum, eins og
fram kemur í tilkynningu frá Safna-
húsi Borgarfjarðar.
Helgi var oft með myndavélina á
öxlinni, fangaði á filmu fólk og
stemningar og elti eigin áhugamál.
Sumar þessara mynda rata inn á
sýninguna.
Á fjórða hundrað andlit sjást á
þessum myndum og vísar yfirskrift
sýningarinnar til þess. Allmargir
sem sjást á myndunum eru látnir.
Sýningin er tileinkuð minningu
þeirra.
Sem fyrr segir verður sýningin
opnuð í dag og stendur síðan fram
eftir sumri. Stéttarfélag Vestur-
lands styrkir framtakið en Heiður
Hörn Hjartardóttir hannaði sýn-
inguna. bjb@mbl.is
Mannlíf í
myndum frá
Borgarnesi
Ljósmyndasýning verður opnuð
í dag í Safnahúsi Borgarfjarðar
Ljósmyndir/Helgi Bjarnason
Verkamenn Starfsmenn í áhaldahúsi Borgarneshrepps stilla sér upp við dráttarvél með loftpressu við eitthvert
tækifæri. Þór Daníelsson, Sigurþór Helgason, Bragi Óskarsson, Guðmundur Ólafsson, Stefán Bragason, Þröstur
Þór Ólafsson og Guðmundur Finnsson. Margt var skrafað á kaffistofunni hjá þessum mönnum.
Skemmt Skátar héldu uppi stemningunni á hátíðinni í Skallagrímsgarði 17. júní 1983, eins og ávallt á þjóðhátíðar-
daginn. Jónína Erna Arnardóttir og Hólmfríður Sveindóttir leiddu söng.
TRÉSMÍÐAVÉLAR
Vélar fyrir
atvinnumenn
og
handverksfólk
Yfir 40 ára frábær
reynsla á Íslandi
Rennibekkur
Lata
Verð 158.300
Opið virka daga 9-18
laugardaga 10-16
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is
Spónsuga 2 stærðir
Verð frá 89.800
Slípivél BTS800
Verð 49.470Smergill BG150
Verð 21.460
Rennibekkur DMT 460
Verð 70.700
Bandsög
2 stærðir
Verð frá 59.960
Slípivél
OSM100
Verð 45.630
Tifsög 2 stærðir
Verð frá 22.620Borðsög HS80
Verð frá 34.210
Þyktarhefill /
afréttari
Verð 110.390
Bútsög HM80L
Verð 22.620
Súluborvél
DP16SL
Verð 60.900
Súluborvél
DP18VARIO
Verð 93.660
Slípivél
OSM600
Verð 58.150
Erum með þúsundir
vörunúmera inn á vefverslun
okkar brynja.is