Morgunblaðið - 11.06.2020, Side 30
SVIÐSLJÓS
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Geta snjalltækin Fitbit og Apple
Watch flett ofan af kórónuveirunni
og uppgötvað smit af völdum hennar
áður en einkenni sýkingar byrja að
sýna sig? Vísinda- og rannsóknar-
menn eru í vaxandi mæli að skoða
hvort þessi tæki og önnur ígangs-
klæði megi brúka sem eins konar
ratsjár gegn veirunni mannskæðu.
Í nýliðnum maímánuði sögðust
vísindamenn við Rockefeller-
taugavísindadeild Vestur-Virginíu
háskólans í Morgantown hafa skap-
að stafrænan sviðspall sem gæti
greint einkenni kórónuveirunnar allt
að þremur dögum áður en þau birt-
ust. Brúkuðu þeir til þess svo-
nefndan Oura-hring sem dreginn á
fingur skráir hjá sér gögn um lík-
amsæfingar og -heilsurækt viðkom-
andi.
Hópurinn smíðaði smáforrit sem
brúkar gervigreind til að segja fyrir
um einkenni sem tengjast kórónu-
veirunni, svo sem sótthita, hósta,
öndunarerfiðleika og þreytu, með yf-
ir 90% nákvæmni. Segir háskólinn
að búnaðurinn geti sýnt vísbend-
ingar um sýkingu hjá annars ein-
kennalausum einstaklingi. Því gæti
hann komið að góðu gagni við grein-
ingu og aflokun veirufaraldursins.
Þessu til viðbótar hefur rann-
sóknarstofnunin Scripps Research
Institute í San Diego í Kaliforníu
fengið á fjórða tug þúsunda ein-
staklinga til liðs við sig – og hyggst
fjölga þeim enn frekar – í athugun
þar sem ætlað er að beita smátólum
til að finna tvenns konar hópa fólks
sem kann að bera einkennalaust
smit.
Scripps-teymið hefur sýnt fram á
möguleika smátækja til að segja fyr-
ir um flensu, samkvæmt grein um
athuganir þess sem birtist í breska
læknablaðinu Lancet í janúar.
Fyrstu vísbendingar gefa til kynna
að tækin séu mögulega fær um að
greina smitað en einkennalaust fólk,
segir Jennifer Radin, faraldsfræð-
ingur sem stjórnar rannsóknum
Scripps-stofnunarinnar, við AFP.
Leita sjálfboðaliða
Radin sagði að smátæki sem fólk
bæri á sér greindi „daufar breyt-
ingar sem gæfu til kynna að ein-
kennalaus einstaklingur væri við
það að leggjast í rúmið með veiru-
sjúkdóm“. Segjast vísindamenn
Scripps vona að sá dagur komi að
þeir geti sýnt fram á að gögn frá
smátækjunum teljist áreiðanlegri en
hitamælingar.
„40% þeirra sem veikst hafa af
völdum kórónuveirunnar hafa engan
hita haft,“ sagði Radin. Og bætti við
að búnaðinn mætti nota til skimunar
með áreiðanlegri hætti en með hita-
mælingu. Tíðni hjartsláttar væri til
að mynda góð vísbending því hún
væri yfirleitt stöðug fyrir sýkingu og
mætti mæla með nákvæmni með
flestum áfestum mælum. „Við sjáum
að það eiga sér stað breytingar á
hjartslættinum fjórum dögum áður
en einstaklingur fær hita,“ sagði
Radin.
Eric Topol, framkvæmdastjóri
Scripps-stofnunarinnar, sagði hug-
myndina um smátækin heillandi, því
yfir 100 milljónir Bandaríkjamanna
ættu snjallúr eða íþróttaarmband
sem lagt gætu vísindunum til miklar
lykil upplýsingar. Góð niðurstaða
væri undir því komin að fá sem
flesta til að taka þátt í rannsókn-
unum.
Heilsutæknisprotafyrirtækið
Evidation í Kaliforníu hefur hrundið
af stað verkefni sem miðar að því að
framleiða viðvörunaralgrími fyrir
íklæðanleg smátæki sem um 300
manns bera er eiga verulega hættu á
að veikjast af kórónuveirunni. Meðal
þeirra sem fjármagna það viðfangs-
efni eru bandarísk stjórnvöld og
stofnunin Bill & Melinda Gates
Foundation.
Luca Foschini, tölfræðingur og
annar stofnandi Evidation, segir
rannsóknina miða að því að finna
skilvirkari leið til að segja fyrir um
hvar og hvenær fólk gæti sýkst af
COVID-19. Vonast er til að það geti
auðveldað í rauntíma aðgerðir til að
draga úr dreifingu veirunnar og
fylgjast með árangrinum. Sams kon-
ar rannsókn er í gangi í Þýskalandi.
Frá skokki til læknisrannsókna
Þessar nýju rannsóknir varpa
skæru ljósi á hvernig ýmis beranleg
smátæki, sem þróuð voru fyrir lík-
amsrækt og íþróttaþjálfun, má laga
að mikilvægum læknisfræðilegum
rannsóknum.
Apple hefur hafið athuganir á því
hvernig fá megi snjallúrið smart-
watch til að greina vandamál tengd
hjartanu. Þá hefur Fitbit átt í sam-
starfi við um 500 mismunandi rann-
sóknarverkefni sem snúast um
krabbamein, sykursýki, öndunar-
erfiðleika og fleiri læknisfræðileg
vandamál. Vísindamenn segja að
smátækin íveranlegu geti veitt upp-
lýsingar um líkamshita, hjartsláttar-
og öndunartíðni, svefn- og hreyf-
ingamynstur og fleiri breytur sem
nýtast við heilsufarsgreiningu.
Rannsóknarteymi við Stanford-
háskólann í Kaliforníu sagðist í apríl
ætla hefja þátttöku í rannsóknum á
smátækjum gegn kórónuveirunni og
fleiri og fleiri sjúkdómum í samstarfi
við Scripps-stofnunina.
„Smartwatches og önnur beranleg
mælitæki framkvæma urmul mæl-
inga á dag, að minnsta kosti 250.000,
sem gerir þau að svo öflugum eftir-
litstólum,“ segir Michael Snyder, yf-
ir erfðafræðingur læknisfræðideild-
ar Stanford, við AFP. Hann segir
tólin geta aðvarað notendur um
breytingar á hjartsláttartíðni,
líkamshita og fleiri þætti sem gætu
vísað á sýkingu eða annan kvilla.
„Þú gætir spurt: „Er þetta nef-
rennsli vegna ofnæmis eða er ég að
verða veikur“?“ Algrímin gætu auð-
veldað fólki að ákveða hvort það
heldur sig heima við ef líkaminn er
að glíma við sýkingu,“ segir Snyder.
Mæling Snjallúr framkvæma ýmsar mælingar við-
stöðulaust er nýst geta í læknisfræðilegum tilgangi.
Úr Snjallúrið fitbit hefur gagnast við rannsóknir á veirusjúkdómum.
Hringur Oura-hringurinn var þróaður til svefnrannsókna en
hefur einnig getað greint veirusýkingar nokkrum dögum áð-
ur en hinn sýkti sýndi merki þess.
Íverutól til forvarna gegn veirum
Vísindamenn rannsaka möguleika á að nota snjallsíma og önnur smától til að greina kórónuveir-
una nokkrum dögum áður en sjúkdómseinkenni kæmu ella í ljós Notast við gervigreindarforrit
Tækni Lítil snjalltæki nýtast ekki bara við heilsurækt.
30 FRÉTTIRTækni/Vísindi
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2020
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg