Morgunblaðið - 11.06.2020, Side 65
MENNING 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
EIN BESTA MYND SEM KOMIÐ HEFUR Á ÞESSU ÁRI.
JAMIE FOXX OG MICHAEL B.JORDAN
ERU BÁÐIR HÉR MEÐ FRÁBÆRAN LEIK. MYND SEM ALLIR
KEPPAST VIÐ AÐ HÆLA EFTIR AÐ HAFA SÉÐ MYNDINA.
Líkt og vorboðinn ljúfi mæt-ir Leikhópurinn Lottaávallt til leiks í byrjunsumars með nýja og
metnaðarfulla sýningu til að
skemmta börnum og fjölskyldum
þeirra um land allt. Bak við glensið,
litríku búningana og fjörlegu tónlist-
aratriðin leynist mikilvægt erindi því
leikhópurinn boðar samkennd, um-
burðarlyndi, hugrekki, virðingu og
vináttu. Bakkabræður, sem er sum-
arsýning þessa árs, er þar engin
undantekning.
Mörg síðustu árin hefur Anna
Bergljót Thorarensen sótt efnivið
sinn til evrópskra ævintýra og snúið
upp á þau á óvæntan og skemmti-
legan hátt. Að þessu sinni leitar
Anna Bergljót í íslenska þjóðsagna-
arfinn og lætur stuttar kímnisögur
af bræðrunum frá Bakka veita sér
innblástur með góðum árangri.
Fyrri hluta leikritsins sjáum við
bræðurna Gísla, Eirík og Helga
(Stefán Benedikt Vilhelmsson,
Andrea Ösp Karlsdóttir og Júlí
Heiðar Halldórsson) sömu augum og
þeir birtast í Þjóðsögum Jóns Árna-
sonar. Í frásögnum Gróu læknis
(Andrea Ösp Karlsdóttir) frá bæn-
um Leiti og óðalsbóndans (Sigsteinn
Sigurbergsson) sem finnst fátt
skemmtilegra en að bregða sér í
hlutverk Þórs, föður bræðranna, til
að skemmta dóttur sinni Lilju (Vikt-
oría Sigurðardóttir) með Gróu-
sögum, eru bræðurnir bæði einfaldir
og auðtrúa. Gróa og óðalsbóndinn
segja Lilju meðal annars sögurnar af
því þegar Bakkabræður byrgðu fyrir
alla glugga til að gera hús sitt hlýrra
en lentu þá í vandræðum með skort á
birtu innandyra sem leiddi til þess að
þeir reyndu að bera sólskin inn í hús-
ið í húfum sínum og trogum sam-
tímis því sem þeir báru myrkrið út
úr bænum; söguna af því þegar
bræðurnir drápu hest sinn Brúnku
með því að grafa hana lifandi undir
steinum til að koma í veg fyrir að
hún fyki burt í ofsaroki og söguna af
því þegar þeir slógu sundur kerald
til að eiga auðveldara með að ferja
það heim til sín á Bakka en gleymdu
botninum í Borgarfirði með þeim af-
leiðingum að keraldið lak.
Um miðbik verksins fær Lilja, og
samtímis áhorfendur, hins vegar
óvænt tækifæri til að kynnast
bræðrunum í eigin persónu og þá
kemur í ljós að þeir eru ekki jafn ein-
faldir og henni hefur verið talin trú
um. Fátækt, illt umtal og fordómar
hafa sett mark sitt á bræðurna og í
raun þröngvað þeim inn í ákveðið
hlutverk sem þá langar ekkert endi-
lega til að leika.
Leiksýningar Lottu hafa iðulega
lumað á skemmtilegum vísunum í
samtímann en aldrei jafnmikið og í
sumarsýningu ársins. Sögusvið
Bakkabræðra er Ísland fyrri tíma
þegar berklar geisuðu landsmönnum
til skelfingar. Það er því persónum
leiksins jafn eðlilegt og nútímafólki á
tímum kórónuveirufaraldurs að fara
í sýnatöku til að athuga með smit,
heilsa engum með handabandi eða
faðmlagi, fara í sóttkví, virða ýmsar
samkomutakmarkanir til að hefta
útbreiðslu og ruglast á orðunum
samkomubanni og samgöngubanni.
Anna Bergljót gerir sér mikinn og
skemmtilegan mat úr þessum hlið-
stæðum. Á sama tíma býr hún einnig
til áhugaverða hliðstæðu milli
slúðursagna fyrri tíma og fals-
fréttanna sem tröllríða nútímanum
með neikvæðum afleiðingum. Boð-
skapur sýningarinnar er skýr: við
ein berum ábyrgð á orðum okkar og
höfum ávallt val um það hvort við
veljum að bera áfram slúður og fara
með fals. En þótt skilaboðin séu skýr
er þeim blessunarlega ekki miðlað
með predikunar- eða umvöndunar-
tóni.
Undir styrkri stjórn Þórunnar
Lárusdóttur blómstrar persónugall-
erí verksins. Óðalsfeðginin sem Sig-
steinn Sigurbergsson og Viktoría
Sigurðardóttir túlka fara í lengsta
þroskaferðalagið þegar þeim lærist
að slúður er ekki bara ábyrgðarlaust
grín heldur getur verið verulega
meiðandi. Samleikur Viktoríu og
Júlís Heiðars Halldórssonar í hlut-
verki Helga, þegar hún áttar sig á
því að allt er ekki sem sýnist og hann
á því hvaða augum samsveitungar
hans líta íbúa Bakka, var áhrifaríkur
og flutningur þeirra á laginu „Hvað
er að mér?“ kröftugur. Sem fyrr
leikur tónlistin stórt hlutverk í því að
miðla upplifunum persóna. Af-
bragðslög úr smiðju þeirra Baldurs
Ragnarssonar, Rósu Ásgeirsdóttur
og Þórðar Gunnars Þorvaldssonar
munu án vafa óma í spilaranum
næstu vikur og mánuði, því líkt og
síðustu sumur stendur leikhúsáhorf-
endum til boða að eignast hljóð-
upptöku af sýningunni sem njóta má
heima.
Andrea Ösp Karlsdóttir dró Gróu
skýrum dráttum í stuttum inn-
komum sínum og fór skemmtilega
með hlutverk Eiríks. Stefán Bene-
dikt Vilhelmsson fór vel með hlut-
verk Gísla og tókst líkt og Andreu og
Júlí að búa til skýra aðgreiningu á
sýnd og reynd í tilviki bræðranna
þriggja. Huld Óskarsdóttir var
yndisleg í hlutverki Freyju, ömmu
bræðranna, og framkallaði ásamt
bræðrunum auðveldlega samúðartár
með söng sínum í „Þór kveður“.
Leikmynd Andreu og Sigsteins er
þénug og býr til skýra sjónræna að-
greiningu milli heimilanna tveggja
þar sem annað einkennist af vellyst-
ingum og hitt af skorti. Á sama tíma
býður leikmyndin upp á snögg skipti
milli staða sem nýtist vel þegar
óðalsbóndinn stekkur fyrirhafnar-
lítið yfir í hlutverk Þórs í frásögnum
sínum. Sérstök ástæða er til að hrósa
skemmtilegri útfærslu á veiðiferð-
inni. Búningar Kristínu R. Berman
þjónuðu persónum vel og útfærslan
á hestinum Brúnku var flott. Dans-
arnir úr smiðju Viktoríu Sigurð-
ardóttur virkuðu vel og gæddu söng-
atriðin góðu lífi.
Enn einu sinni hefur Leikhópur-
inn Lotta skapað leiksýningu sem
óhætt er að mæla með. Sýningu sem
gleður augað, hreyfir við hjartanu,
kitlar hláturtaugarnar og fær áhorf-
endur jafnframt til að velta hlut-
unum fyrir sér með gagnrýnum
huga. Það er varla hægt að hugsa sér
betri uppskrift. Vonandi gefst sem
flestum leikhúsgestum færi á að sjá
sýninguna á ferð hennar um landið í
sumar, þótt kórónuveirufaraldurinn
með tilheyrandi samkomutakmörk-
unum hafi leitt til þess að færri kom-
ast að á hverri sýningu en í venju-
legu ári.
Sannleikurinn er sagna bestur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Góð uppskrift „Enn einu sinni hefur Leikhópurinn Lotta skapað leiksýningu sem óhætt er að mæla með. Sýningu
sem gleður augað, hreyfir við hjartanu, kitlar hláturtaugarnar og fær áhorfendur jafnframt til að velta hlutunum
fyrir sér með gagnrýnum huga. Það er varla hægt að hugsa sér betri uppskrift,“ segir í rýni um Bakkabræður.
Elliðaárdalur og víðar um land
Bakkabræður bbbbn
Eftir Önnu Bergljótu Thorarensen. Leik-
stjórn: Þórunn Lárusdóttir. Höfundar
tónlistar: Baldur Ragnarsson, Rósa
Ásgeirsdóttir og Þórður Gunnar Þor-
valdsson. Höfundar lagatexta: Anna
Bergljót Thorarensen og Baldur Ragn-
arsson. Hljóðhönnun og útsetningar:
Þórður Gunnar Þorvaldsson. Búninga-
hönnun: Kristína R. Berman. Danshöf-
undur: Viktoría Sigurðardóttir: Leik-
myndahönnun: Andrea Ösp Karlsdóttir
og Sigsteinn Sigurbergsson. Leikmunir:
Hópurinn. Leikarar Andrea Ösp Karls-
dóttir, Huld Óskarsdóttir, Júlí Heiðar
Halldórsson, Sigsteinn Sigurbergsson,
Stefán Benedikt Vilhelmsson og Vikt-
oría Sigurðardóttir. Leikhópurinn Lotta
frumsýndi á Lottutúni í Elliðaárdalnum
miðvikudaginn 3. júní 2020.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST