Morgunblaðið - 11.06.2020, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 11.06.2020, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2020 Sími 557 8866 | pantanir@kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími7.30-16.30 Veitingamenn athugið! Við sérhæfum okkur í þjónustu fyrir veitingahús Það fer fram mikil þróun á íslensk- um kjötafurðamarkaði um þessar mundir og ljóst að neytendur eru áhugasamir um þessa þróun ef marka má viðtökurnar sem gallo- way- og limosin-nautakjötið úr Skagafirði fékk við komu í verslanir í síðustu viku. Önnur merkileg nýj- ung sem er í boði er sérvalið nauta- kjöt sem búið er að hægmeyrna í 4-6 vikur en til samanburðar er hefð- bundið nautakjöt látið meyrna í 15 daga. Kjötið er látið hanga á beini í sérhönnuðum kæli í 4-6 vikur við við 2-4°C og gerir sú aðferð það að verk- um að kjötið nær einstakri meyrnun og bragðgæðum. Um komandi helgi verður boðið upp á hægmeyrnaðar rib-eye- steikur í hæsta gæðaflokki í versl- unum Hagkaups en að sögn for- svarsmanna verslunarinnar verður framboð á sérverkuðu rib-eye í meira magni en áður og fáanlegt í öllum verslunum Hagkaups. Það er því ljóst að það er mikil gróska í vinnslu og þróun á íslensku nautakjöti, sem er fagnaðarefni fyrir matgæðinga og íslenskan land- búnað. Hægmeyrnað íslenskt nautakjöt Ljósmynd/VSV Bráðnar í munni Dásemdar-steikarsamloka með grilluðu íslensku hæg- meyrnuðu rib-eye. Uppskriftina er að finna inni á matarvef mbl.is. Þóra Kolbrá Sigurðardóttir thora@mbl.is Mjúk sítrónukaka með glassúr 230 g smjör, mjúkt 2½ dl sykur 4 egg 3½ dl hveiti 1 tsk. matarsódi ½ tsk. salt 1½ tsk. vanilludropar 1 dl og 1 msk. grískt jógúrt frá Örnu mjólkurvörum ½ dl sítrónusafi fínt rifinn börkur af 1 sítrónu (bara guli hlutinn, ekki hvíti) 1½ dl flórsykur U.þ.b. 2 msk. sítrónusafi Sítrónubörkur til að skreyta Aðferð:  Kveikið á ofninum og stillið á 175°C og undir- og yfirhita. Þeytið saman smjör og syk- ur, þegar blandan er orðin létt og ljós setjið þá eggin út í, eitt í einu og hrærið á milli. Setjið hveiti, matarsóda og salt saman í skál og blandið, bætið því svo út í eggja- blönduna og hrærið saman þar til allt hefur blandast saman. Bætið út í vanilludropum, grísku jógúrti, sítrónusafa og sítrónuberki, hrærið þar til allt hefur blandast saman. Smyrjið 23 cm hringform eða sambærilegt vel með smjöri og hellið deiginu í formið, bakið í 1 klst. og 30- 45 mín. eða þar til kakan er bökuð í gegn (stingið hníf í kökuna og ef hann kemur hreinn upp er hún tilbúin). Leyfið kökunni að kólna og takið hana svo úr forminu. Setjið flórsykur í skál og blandið sítrónusafa saman við þar til glassúrinn er þykk- fljótandi, hellið honum yfir kökuna. Rífið sítrónubörk yf- ir kökuna til að skreyta hana. Nákvæmt aðferðarmyndband er að finna á Insta- gram.com/lindaben í „Sí- trónukaka highlights“. Sumarleg sítrónukaka Það er fátt sumarlegra en sítrónukaka. Mjúk sítrónukaka með glassúr er ein af þessum kökum sem alltaf eiga vel við. Í uppskriftinni er grísk jógúrt sem gerir mik- ið fyrir áferðina og bragðið og létt sítrónu- bragðið kemur með ferskleika á móti sæt- unni í kökunni og kreminu. Það er Linda Ben. sem á heiðurinn af kökunni. Hún segir að kakan sé afar mjúk en nokkuð þétt og rakamikil á sama tíma. Kakan sé einföld og allir ættu að ráða við hana. Ljósmynd/Linda Ben. Á alltaf vel við Þessi mjúka sítr- ónukaka er fullkomin hvort sem er í helgarbaksturinn eða til að smella í á virkum degi til að gleðja fólkið í kringum okkur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.