Morgunblaðið - 11.06.2020, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 11.06.2020, Blaðsíða 53
MINNINGAR 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2020 ✝ Svanfríður Sig-urlaug Ey- vindsdóttir fæddist á Siglufirði 19.4. 1931. Hún lést á Hrafnistu í Hafn- arfirði 16.5. 2020. Foreldrar henn- ar voru Katrín Sig- ríður Jósepsdóttir frá Stóru-Reykjum í Fljótum, f. 26.3. 1894, d. 21.5. 1957, og Eyvindur Nikódemus Júl- íusson frá Gaul í Staðarsveit, f. 3.8. 1898, d. 27.12. 1986. Alsystkin Svanfríðar voru: Sigurgeir, f. 29.12. 1932, d. 25.2. 1933; og Ragna Lísa (Góa), f. 6.3. 1934, d. 25.2.2006. Samfeðra systur hennar voru: Guðbjörg, f. 30.9. 1927, d. 29.3. 2013, og Lauf- ey, f. 23.9. 1928, d. 9.12. 1999. Svanfríður ólst upp á Siglu- firði og eyddi þar líka unglings- árunum meðan síldarævintýrið stóð sem hæst. Þar kynntist Svanfríður barnsföður sínum Einari Péturssyni og eignuðust Gunnar Svanur, f. 1978. Dóttir hans er Ronja Auður. Berglind Fríða, f. 1982. Börn hennar eru Kristófer Breki og Katrín Birta. Þorsteinn Árni, f. 1989. Börn hans eru Anton Logi og Alex- andra Liv. Steinunn Rán, f. 1971. Börn hennar Sædís Rán og Vig- dís Una. Guðfinna Sif, f. 1975. Börn hennar Andri Þór og Ævar Már. Dagný Ösp, f. 1981. Börn hennar Róbert Ingi, Vilhjálmur Thor og Sólrún Zóe. 3) Katrín Gunnarsdóttir Fabbiano, f. 25.5. 1955, gift Louie Fabbiano, f. 17.10. 1946. Barn Katrínar er Jonatan Michael Johnson, f. 1982. Barn hans er Hana Belle. 4) Kolbeinn, f. 19.10. 1956, giftur Önnu Ásdísi Björnsdóttur, f. 17.3. 1957. Börn þeirra eru Heið- ar Ingi, f. 1982. Svanfríður Helga, f. 1986. Börn hennar eru Emeliana Thea, Birgitta Marý og Auður Birta. Gunnar Björn, f. 1988. Barn hans er Rúnar Freyr. 5) Eyvindur, f. 17.12. 1964, giftur Hrafnhildi Jónsdóttur, f. 17.9. 1965. Börn þeirra eru Ragnhild- ur Jóna, f. 1987. Börn hennar eru Embla Björg og Jóel Bessi. Fósturbörn Ásdís María og Aníta Mist. Benedikt Elí, f. 2002. El- ísabet Ósk Thorlacius, f. 1982. Barn hennar er Emil Darri. Svanfríður flutti suður 1951 og réð sig í kaupavinnu í Reykja- vík og fljótlega eftir það giftu Svanfríður og Gunnar sig, á sjó- mannadaginn 12.6. 1954. Þau settust að á Vesturgötu 6 (Bjarna Sívertsen húsi) þar sem hún gætti barna á Svönuróló. Ár- ið 1966 fluttu þau svo í eigin íbúð í Suðurgötu 53 í Hafnarfirði. Svanfríður starfaði einnig við fiskvinnslu og árið 1971 sótti hún námskeið í gæðamati á veg- um sjávarútvegsráðuneytisins þar sem hún ávann sér fulln- aðarréttindi til gæðamats á ferskum og frystum fiski. Hún starfaði eftir það sem eftirlit- skona hjá BÚH um árabil. Hún var einnig virkur félagi í kven- félagi Alþýðuflokksins í Hafn- arfirði um tíma. Svanfríður bjó við Suðurgöt- una þar til hún flutti á Hrafnistu í Hafnarfirði árið 2010. Útförin hefur farið fram að ósk hinnar látnu. þau drenginn 1) Örn Sigurgeir, f. 17.1. 1950. Hann er giftur Jónu Ragn- hildi Stígsdóttur, f. 12.12. 1949. Sonur þeirra er Pétur Ingi, f. 1968. Börn hans eru Jóna Rán, Brynjar Örn og Berglind. Fóst- urbörn Péturs eru Guðrún Bína, Vikt- oría og Ísabella María. Síðar kynntist Svanfríður einnig tilvonandi eiginmanni sín- um, Gunnari Sigurði Ástvalds- syni sjómanni, f. 11.9. 1930, d. 13.7. 1984. Börn þeirra eru: 2) Steindór, f. 14.4. 1954, giftur Þorbjörgu Svanfríði Gísladóttur, f. 27.7. 1950. Börn þeirra eru Vignir, f. 1976. Börn hans eru Vignir Ómar, Arnór Elí, Eyþór Arnar og fósturdóttir, Gréta Guðný, þar er eitt barnabarna- barnabarn. Margrét Ósk, f. 1977. Börn hennar eru Isak Örn, Odin Örn, Thor Örn og Aron Örn. Það er erfitt fyrir okkur, börn, tengdabörn og afkomendur, að horfa á eftir móður okkar. Miklar tilfinningar brjótast fram, tilfinn- ingar sem tengjast öllum minning- unum sem við eigum úr æsku og uppvexti – og allt fram á síðasta dag. Þessar minningar eru okkur dýrmætar. Þær eru okkur huggun núna og þær koma til með að verða það um ókomin ár. Við eig- um ekkert nema góðar og fallegar minningar um samskiptin við mömmu og tilfinningarnar tengj- ast allar því jákvæða sem hún skil- ur eftir sig. Það er bæði gott og gaman að rifja þær upp. Með sínu stóra hjarta hélt hún þétt utan um barnahópinn sinn og vildi gera allt sem hún gat til að hjálpa til þegar erfiðleikar eða vandamál komu upp. Við, börnin hennar, tengdabörn og barna- börn, leituðum alla tíð mikið til hennar og barnabörnin vildu oft fá að vera hjá henni. Það var alltaf opið hús hjá henni, hvenær sem var. Hún hafði yndi af því að vera í eldhúsinu, að elda og bera fram mat og meðlæti fyrir gestina. Allir fóru saddir og sælir frá Svönu. En mamma hlúði ekki bara að sínum eigin börnum. Við hittum oft enn þann dag í dag fólk sem talar um Svönu á róló frá þeim tíma sem hún sá um róluvöllinn á bak við Vesturgötu 6. Þetta er þá annaðhvort fólk sem treysti henni fyrir börnunum sínum, eða þá börnin sjálf – sem nú eru orðin fullorðin – sem rifja upp góðar minningar um það hvernig Svana hélt utan um starfið þar. Það var alltaf verulega gest- kvæmt á heimili hennar að Suð- urgötu 53. Vinir og vandamenn komu við og fengu sér kaffisopa í leiðinni í eða úr Mánabúð sem var á neðri hæð hússins. Þarna voru öll vandamál heimsins leyst við eld- húsborðið, sérstaklega á meðan Gunnars, eiginmanns hennar, naut við en hann lést 1984. Þó svo mamma væri gestrisin með afbrigðum var hún ekki mikið fyrir að fara sjálf í heimsóknir. Hún vildi frekar fá fólk í heimsókn. Þegar hún fór í heimsóknir var hún samt ánægð með að hafa drifið sig og þakklát fyrir móttökurnar. Á kveðjustund er gott að rifja það upp að þú naust þess síðustu rúmu 10 árin að vera á Hrafnistu í Hafnarfirði. Þar leið þér alla tíð vel, fékkst frábæra umönnun. Við erum starfsfólkinu sem sinnti þér á Ægishrauni afar þakklát. Núna ferðu á annað tilverustig og hittir þitt fólk, sem þú hefur ekki hitt lengi og átt góðar stundir með því. Elsku mamma! Þú ert okkur áfram stoð og stytta í lífinu, vegna þess að þú kenndir okkur svo margt með æðruleysinu og rólegri og yfirvegaðri framkomu við alla. Kolbeinn og Anna Ásdís. Elsku tengdamamma, nú ertu búin að kveðja okkur. Þegar ég kynntist Eyvindi voru tveir mánuðir frá því Gunnar þinn dó, 1984, svo ég fékk ekki að kynn- ast honum. Ég átti dóttur fyrir sem var rúmlega tveggja ára og þegar ég kynnti hana fyrir þér tókstu í höndina á henni og sagðir: „Sæl, ég heiti amma Svana“ og þannig var það, þú varst orðin amma hennar. Síðar, 1987, kaupum við Eyvindur hús á Hringbrautinni og eignumst síðan Ragnhildi Jónu, þá var gott að búa svona stutt frá þér. Ég var dugleg að koma til þín þeg- ar hún var í vagni/kerru og við fengum okkur göngutúr í bæinn enda stutt að fara. Við kíktum í búðir og hittum margt fólk sem þú þekktir til að spjalla við, það fannst þér gaman. Elsku Svana, þú kenndir mér svo margt! Það sem stendur upp úr minningunum hjá mér er til dæmis þegar þú sagðir mér að nú ætluðum við að taka slátur saman, því allir taka slátur, sagðir þú. Ekki gat ég verið minni en allir og svo auðvitað sló ég til. En það gekk ekki svo vel þar sem ég er mjög klígjugjörn og eyddi sennilega meiri tíma á salerninu heldur en í sláturgerðinni. Ekki fékk ég aftur boð. Við nutum þess að fara í ferða- lög með þér vestur í Ólafsvík til Laufeyjar systur þinnar og fjöl- skyldu. Allar góðu stundirnar við eldhúsborðið á Suðurgötunni voru mér einnig kærar. Ég gat alltaf leitað til þín með hvað sem var og alltaf varstu til staðar fyrir okkur. Stelpurnar okkar nutu þess að vera hjá þér á Suðurgötunni og þar eiga þær margar minningar um þig. Síðan fæddist Benedikt Elí 2002, þá varstu orðin mjög slæm í fótunum en við fórum þá bara meira á bílnum í styttri ferð- ir. Hann kynntist þér ekki eins og eldri barnabörnin, en hann minn- ist þín sem góðrar ömmu, alltaf brosandi og vildir allt fyrir hann gera. Með þakklæti kveð ég þig. Takk fyrir allt. Guð blessi þig. Þín Hrafnhildur. Svanfríður Eyvindsdóttir ✝ Ingibjörg EddaBjörgvinsdóttir fæddist í Dufþaks- holti, Rangár- vallasýslu 20. mars 1947. Hún lést á líknardeild Land- spítalans 20. maí 2020. Foreldrar Ingi- bjargar voru Ragn- heiður Jóhanna Ólafsdóttir, f. 28.10. 1915, d. 26.1. 1998, og Björgvin Kristinn Guðjónsson, f. 26.12. 1910, d. 16.10. 2003. Systkini: Hörður Björgvinsson, f. 25.6. 1940, maki Guðbjörg Karlotta Hjörleifsdóttir, f. 23.8. 1940, Guð- björg Björgvinsdóttir, f. 7.2. 1945, maki Magnús Helgi Sigurðsson, f. 23.7. 1942, Katrín Jónína Björg- vinsdóttir, f. 4.8. 1954. Hálfsystir Hallfríður Helga Dagbjartsdóttir, f. 8.9. 1930, d. 10.9. 2007 maki Guðjón Ólafsson, f. 22.9. 1924. Ingibjörg Edda giftist Gísla Sveinssyni, f. 15.1. 1943, d. 16.5. 1970. Foreldrar Gísla voru Sveinn Aðalsteinn Gíslason, f. 11.9. 1914, d. 19.5. 1982, og Guðbjörg Hulda Guðmundsdóttir, f. 22.10. 1914, d. 2.2. 1998. Ingibjörg og Gísli eignuðust tvær dætur: 1) Kolbrún Gísla- dóttir, f. 29.3. 1966, maki Baldur Þór Davíðsson, f. 19.4. 1963, börn: Birta Baldursdóttir, f. 22.11. 1992, sambýlismaður Tryggvi Hrannar Jónsson, f. 11.8. 1990, börn Trausti Steinn, f. 20.7. 2014, og Þórdís Alba, f. 2.9. 2018, Númi Steinn Baldursson, f. 11.6. 1996, Diljá Baldursdóttir f. 20.11. 1998. 2) Hulda Gísladóttir, f. 23.8. 1967, maki Bjarnfreður Heiðar Ólafsson, f. 17.11. 1967. Börn: Auður Lára Bjarnfreðsdóttir, f. 25.2. 1999, Agnes Edda Bjarn- freðsdóttir, f. 22.12.2000, Guðrún Halla Bjarnfreðsdóttir, f. 30.9. 2009. Útför hennar fór fram í kyrr- þey 29. maí 2020. Það var einstaklega gott að um- gangast Ingu tengdamóður mína enda lagði hún sig fram um að öll- um liði vel í kringum hana. Hvort sem maður deildi með Ingu heim- ili, var í heimsókn hjá henni eða ferðaðist með henni erlendis þá voru samverustundirnar með henni sannkallaðar gæðastundir. Inga var dugleg og hamhleypa til verka þegar hún var upp á sitt besta. Hin síðari ár hafði hún þó minni þrótt til verka og hreyfði sig ekki mikið úti við. En ef einhver í fjölskyldunni bað hana um ráð, hjálp eða viðvik þá rauk hún sam- stundis til aðstoðar. Þannig var hún alltaf boðin og búin ef á þurfti að halda. Barnabörnin leituðu mikið til hennar með stórt og smátt og áttu þar ávallt hauk í horni. Hún var amma eins og þær gerast bestar. Stundum vorum við Inga ósam- mála um dægurmálin. Umræðu- efnið var þá yfirleitt lagt til hliðar og tekið upp léttara hjal. Ég lærði það fljótt að Ingu varð sjaldan snúið með rökum einum saman en réttlæti og sanngirni var það sem skipti hana hjartans máli. Með þessum fáu orðum vil ég þakka Ingu samfylgdina í gegnum áratugina. Hvíl í friði. Bjarnfreður Ólafsson. Elsku amma var alveg hreint mögnuð kona. Góðhjartaðri, sterkari og skemmtilegri konu var vart að finna. Amma var mín besta vinkona. Við hana var hægt að tala um allt, bæði gott og slæmt, og alltaf stóð hún með mér, gaf mér knús og lét mér líða vel. Það er erfitt að lýsa því með orðum hvað ég er þakklát fyrir allt sem þessi magnaða kona gaf mér. Fyrir próf sagðist amma ætla að hugsa til mín og hún hringdi alltaf í mig daginn eftir prófið og spurði Ingibjörg Edda Björgvinsdóttir hvernig gekk. Ég á endalaust af góðum minningum um hana ömmu mína en þær sem mér finnst vænst um eru öll góðu sam- tölin okkar. Henni ömmu sagði ég frá öllu sem gerðist í lífi mínu og hringdi hún oft í mig og spurði út í það sem ég hafði sagt. Við gátum skrafað um málin enda fannst okkur fátt skemmtilegra en að spjalla saman. Það sem mér fannst vænst um við þessi samtöl er að amma sagði mér líka frá sínu lífi og hvernig henni leið. Amma var annars frekar lokuð og því var ég mikið þakklát fyrir að hún gat líka talað við mig um sín mál. Amma var með mikla samúðar- kennd enda hélt hún alltaf með lið- inu sem tapaði því hún vorkenndi því. Elsku amma var gullfalleg að utan sem innan, hún hafði frá mörgum skemmtilegum sögum að segja enda eldklár og alltaf var stutt í hláturinn. Ég er stolt að fá að bera millinafnið hennar, Edda, og mun hún amma alltaf vera mín helsta fyrirmynd. Agnes Edda Bjarnfreðsdóttir. Endurminningin merlar æ í mánasilfri hvað sem var, yfir hið liðna bregður blæ blikandi fjarlægðar, gleðina jafnar, sefar sorg; svipþyrping sækir þing í sinnis hljóðri borg. (Grímur Thomsen) Andartakið sem er að líða er það sem við eigum og á ör- skammri stundu er það horfið út í eilífðina. En minningin lifir. Í fyrrasumar áttum við systur sam- an góða stund í Lundinum þar sem við eigum gróðurreit og griðastað. Hún gekk þar um og skoðaði gróðurinn ótrúlega styrk þótt hún væri svo til nýrisin upp eftir stóra aðgerð vegna meinsins sem svo lagði hana að velli. Það er minningin sem ég ætla að setja fremst í minningabókina okkar. Inga missti mann sinn Gísla Sveinsson er hún var aðeins 23 ára gömul en hann fórst í hörmulegu sjóslysi úti fyrir Sandgerði hinn 16. maí 1970. Eftir stóð hún með tvær kornungar dætur sem hún kom til manns og oft á tíðum var lífsbaráttan erfið. Dæturnar eru vel gerðar og mætar manneskjur sem hafa hlúð að mömmu sinni alla tíð. Hún var stolt af þeim og fjölskyldum þeirra og hafði oft orð á því við mig undir það síðasta. Hún var mér næst í fimm systkina hópi og reyndist mér góð stóra systir þegar ég var barn. Við uxum upp saman, tvær ólíkar rós- ir í sama beði. Við hjálpuðumst að með börnin okkar meðan þau voru ung. Hugsanlega hefðum við illa komist af án hvor annarrar meðan á því stóð. Fyrir þann stuðning verð ég eilíflega þakklát. Það einkenndi hana að hún var iðulega að drífa sig, sama átti við er hún stóð frammi fyrir því sem ekkert okkar sleppur við – að deyja. Þegar svo illa var komið að enga lækningu var að fá tók hún þá ákvörðun að ekkert yrði að gert til að lengja lífið. Rétt eftir jólin sagði hún: „Og nú hefst líknar- gangan.“ Sú ganga varði í fimm mánuði og furðaði hún sig oft á því hversu langan tíma það tók. Sér- staklega hafði hún áhyggjur af dætrum sínum sem stóðu stöðugt vaktina – hún vildi ekki vera fyrir eða íþyngja þeim á nokkurn hátt og sagðist vilja að þær héldu áfram með lífið án þess að vera bundnar yfir sér. Það hvarflar að mér að sá stað- ur sem kann að virðast endirinn geti einnig verið upphafið. Ég óska henni góðrar heimkomu í Sumarlandið, sem við trúum báð- ar að bíði okkar. Hún mætti örlögum sínum af miklum styrk, raunsæi og æðru- leysi, og með þeirri afstöðu gerði hún sínum nánustu auðveldara fyrir. Sárþjáð og farin að kröftum lagðist hún inn á líknardeild Land- spítalans 8. maí sl. þar sem hún síðan lést hinn 20. maí. Dæm svo mildan dauða, Drottinn, þínu barni, eins og léttu laufi lyfti blær frá hjarni, eins og lítill lækur ljúki sínu hjali, þar sem lygn í leyni liggur marinn svali. (Matthías Jochumsson) Blessuð sé minning systur minnar og þökk sé þeim sem spurðu eftir henni, létu sig varða líðan hennar og sendu henni góðar kveðjur. Katrín Jónína Björgvinsdóttir. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ERLA JÓHANNSDÓTTIR frá Sandgerði, lést á hjúkrunarheimilinu Hlévangi í Reykjanesbæ miðvikudaginn 3. júní. Útförin hefur þegar farið fram í kyrrþey, að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir eru færðar til starfsfólks Hlévangs fyrir fagleg störf og hlýlegt viðmót. Maríus Gunnarsson Jóhanna Kr. Maríusdóttir Sigurður Þórsson Elín Maríusdóttir Halldór S. Olgeirsson Gunnar Maríusson Sigrún F. Úlfarsdóttir Jóhann Kr. Maríusson Kolbrún Björgvinsdóttir Þráinn Maríusson Sigríður F. Þorsteinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðursystir okkar, ANNA PÁLÍNA ÞÓRÐARDÓTTIR, lést á HSN á Sauðárkróki miðvikudaginn 3. júní. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju föstudaginn 12. júní klukkan 14. Streymt verður frá athöfninni á facebooksíðu Sauðárkrókskirkju. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Sjálfsbjörg í Skagafirði, banki 0310-13-300424, kt. 570269-0389. Sigurður Sigfússon Stefanía Sigfúsdóttir Ingvi Þór Sigfússon og fjölskyldur þeirra Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, sambýlismaður og afi, JÓHANN ÞÓRÐUR GUÐMUNDSSON húsasmíðameistari, Brekkugötu 1, Garðabæ, lést sunnudaginn 5. apríl á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Útför hans fer fram frá Lindakirkju föstudaginn 12. júní klukkan 13. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknardeildarinnar fyrir hlýju og góða umönnun. Sigurður Jóhannsson Hildur Sigurjónsdóttir Guðmundur Jóhannsson Unnur Ósk Björgvinsdóttir Ólöf Dómhildur Jóhannsd. Atli Þór Jakobsson Þórunn Ólafsdóttir og barnabörn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.