Morgunblaðið - 11.06.2020, Blaðsíða 60
60 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2020
Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 – www.kemi.is - kemi@kemi.is
NÚ FÁST BOSCH
BÍLAVARAHLUTIR HJÁ KEMI
TUNGUHÁLSI 10
40 ára Aðalsteinn er
uppalinn á Kópaskeri
en býr nú á Akureyri.
Hann er rafvirki að
mennt og vinnur hjá
Roða. Aðalsteinn er
einnig knattspyrnu-
dómari
Dóttir: Halldís Alba, f. 2011.
Systur: Sigurrós, f. 1969, og Sólveig, f.
1972, báðar búsettar á Akureyri.
Foreldrar: Tryggvi Aðalsteinsson, f.
1948, fv. rafveitustjóri í Norðurþingi og
skrifstofustjóri hjá RARIK, og Herdís
Halldórsdóttir, f. 1948, vann hjá heima-
þjónustu Akureyrarbæjar. Þau eru búsett
á Akureyri.
Aðalsteinn
Tryggvason
um náttúruvernd á Norðurlandi 1969-
1980 og Vísindafélagi Norðlendinga
1970-1975. Hann var stofnandi og rit-
stjóri Týlis – tímarits um náttúru-
fræði og náttúruvernd 1971-1985 og
sat í ritstjórn Glettings, tímarits um
austfirsk málefni 1991-2002. Hann
hefur beitt sér fyrir verndun náttúr-
unnar á ýmsum vettvangi og er mikill
skógræktarmaður. Helgi var sæmdur
hinni íslensku fálkaorðu árið 2014 fyr-
ir ritstörf og rannsóknir á íslenskri
náttúru.
Í haust er væntanleg samantekt á
ljóðum Skáld-Guðnýjar sem Helgi
hefur verið að dunda við síðasta miss-
erið. Nú er hann aðallega að dútla við
að fara í gegnum og tölvusetja gamalt
efni. „Tölvan hefur reynst mikilvægt
hjálpargagn við skriftir síðustu þrjá-
tíu árin, og líka hefur internetið kom-
ið að gagni. Hinsvegar hef ég komist
vel af án sjónvarps í áratug og far-
síma hef ég aldrei notað, hvað þá
„snjallsíma“. Bókakaup hafa freistað
mín, bækur þekja nú flesta veggi í
íbúðinni, aðallega eru það fræðibæk-
ur og tímarit. Ekki get ég hugsað mér
1.000 tegunda. Nær öllum tegundum
og flokkum varð að gefa íslensk nöfn
og var það ærinn höfuðverkur. Bókin
var prentuð í tvö þúsund eintökum
sem nú eru næstum uppseld.“ Nýjust
er bókin Vallastjörnur – einkennis-
plöntur Austurlands, sem kom út ár-
ið 2017.
Helgi stofnaði og stýrði Samtökum
H
elgi Hallgrímsson
fæddist 11. júní 1935 í
Holti í Fellum og ólst
upp á Arnheiðar-
stöðum og Droplaug-
arstöðum í Fljótsdal. „Ég var lítið
gefinn fyrir sauðfé, en hafði gaman af
allri ræktun, og mikið þurfti að rækta
af túnum og görðum á nýbýlinu Drop-
laugarstöðum.“
Helgi gekk í barnaskóla í Fljótsdal
1945-1948, 2-3 mánuði á vetri, og síð-
an í Alþýðuskólann á Eiðum. Hann
varð stúdent frá Menntaskólanum á
Akureyri 1955 og nam líffræði, með
grasafræði sem aðalgrein, við háskóla
í Göttingen og Hamborg 1955-1963.
Helgi var kennari við Alþýðuskól-
ann á Eiðum 1957-1958 og Mennta-
skólann á Akureyri 1959-1969. Hann
var forstöðumaður við Náttúrugripa-
safnið á Akureyri 1964-1987 og rann-
sóknastöðina Kötlu á Árskógsströnd
1970-1979.
Helgi hefur fengist við margskonar
rannsóknir á náttúru Íslands, aðal-
lega vatnalífi og sveppaflóru landsins
og ritað bækur um þau efni: Sveppa-
kverið (1979) og Veröldin í vatninu
(1979, 1990), auk fjölda greina í blöð-
um og tímaritum. Komið hafa út eftir
Helga þrjár stórar bækur hin síðari
ár. Árið 2005 kom stórbókin Lagar-
fljót – mesta vatnsfall Íslands út, árið
2010 kom út Sveppabókin, íslenskir
sveppir og sveppafræði og hlaut hún
Íslensku bókmenntaverðlaunin í
flokki fræðibóka 2011. Árið 2016 kom
svo út bókin Fljótsdæla, mannlíf og
náttúrufar í Fljótsdalshreppi.
„Árið 1990 var byrjað að semja
Sveppabókina og var unnið við hana
næstu árin, samhliða öðrum störfum
til aldamóta, þegar virkjunarmálin og
Lagarfljótsbók tóku yfirhöndina. Ár-
ið 2005 var þráðurinn tekinn upp aft-
ur og lokið við handritið á fjórum ár-
um. Það reyndist torsótt að fá
útgefanda að bókinni. Helstu for-
lögum fannst hún of stór og fræðileg
til að hún myndi seljast og lögðu til
mikla styttingu, sem höfundur léði
ekki máls á. Að lokum bauðst Stein-
grímur Steinþórsson í Skruddu til að
gefa hana út með ríflegum styrkjum.
Um fjórðungur bókar er almenn
sveppafræði, en í kerfishluta er um
700 tegundum lýst og getið meira en
líf án bóka. Ég er enn virkur í nokkr-
um félögum, hef bréfaskipti við
frændur og vini og sæki tónleika og
sýningar þegar færi gefast.
Skógurinn á „óðali“ foreldra minna
er sannkölluð paradís. Þangað kem ég
endrum og sinnum, dáist að trjám og
blómum og hlusta á sinfóníu fugla,
vinds og vatns. Gróðurbreytingin á
Héraði og víðar um land hefur farið
fram úr björtustu vonum. Hún er
mesta ævintýri lífs míns.“
Fjölskylda
Eiginkona Helga var Ninna Krist-
björg Gestsdóttir, f. 19.10. 1932, d. 1.1.
2008, húsfreyja, síðast á Egilsstöðum
þar sem Helgi býr enn. Þau gengu í
hjónaband 23.4. 1958. Foreldrar
Kristbjargar voru hjónin Gestur
Kristjánsson, f. 10.11. 1906, d. 9.8.
1990, bóndi í Múla í Aðaldal og síðar á
Húsavík, og Guðný Árnadóttir, f. 6.3.
1904, d. 3.11. 1933, húsfreyja. Vinkona
Helga er Ólöf Stefanía Arngríms-
dóttir, f. 20.6. 1945, hjúkrunarfræð-
ingur.
Börn Helga og Kristbjargar: 1)
Helgi Hallgrímsson, náttúrufræðingur og rithöfundur – 85 ára
Á 80 ára afmæli Helga Frá vinstri: Hallgrímur, Ólöf, Helgi, Agnes, Helgi Hjálmar og Kristjana dóttir Bjarkar.
Hlustar á sinfóníu náttúrunnar
Afmælisbarnið Helgi.
30 ára Björn Ómar
er Akureyringur, er
húsasmíðameistari
og eigandi BB
bygginga ásamt
föður sínum.
Maki: Margrét
Jóna Kristmunds-
dóttir, f. 1993, nemi í viðskiptafræði
við HA.
Dætur: Bríet Tinna, f. 2015, og Em-
ilía Þórunn, f. 2019.
Foreldrar: Sigurður Björgvin Björns-
son, f. 1951, húsasmíðameistari, og
Ólína Aðalbjörnsdóttir, f. 1958, að-
stoðarleikskólastjóri á Hólmasól. Þau
eru búsett á Akureyri.
Björn Ómar
Sigurðarson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Daglegt umhverfi manns hefur
mikið að segja svo leggðu þitt af mörk-
um til þess að þér og öðrum líði sem
best þar. Reyndu þó að eyða ekki um
efni fram og láta matföng nægja.
20. apríl - 20. maí
Naut Gamall vinur getur sagt þér ýmis-
legt um þig sjálfan en varastu að taka
allt bókstaflega sem sagt er.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þegar aðrir eru ringlaðir er allt
morgunljóst fyrir þér. Mundu að ekkert
er þess virði að missa heilsuna fyrir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Mundu að virða skoðanir annarra
þótt þær komi ekki alveg heim og saman
við það sem þér finnst. Jafnvel þarftu að
taka upp ný vinnubrögð að einhverju
leyti.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Vináttan er verðmæti sem enginn
skyldi fara gáleysislega með en hafa ber
í huga að ekki eru allir viðhlæjendur vin-
ir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ert gjafmildur í dag. En smá-
vegis mannalæti eru góð og gild til þess
að þagga niður efasemdaraddir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Nú viðrar vel til þess að brydda upp
á nýjungum. Gerðu það upp við þig hvað
þú vilt og stattu svo fast á þínu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er sjálfsagt að styrkja
þá sem minna mega sín. Hlutir sem eru
spennandi núna þarfnast eftirfylgni og
mikillar vinnu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er óþarfi að taka alla
hluti svo bókstaflega sem heimurinn sé
einhuga á móti þér. Treystu á sjálfan þig
og varastu áhrif frá öðrum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Leyfðu einhverjum sem lítur
upp til þín að njóta góðs af innsæi þínu.
Gleymdu þó ekki að vera til staðar og
aðstoða vini þína sem á því þurfa að
halda.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þar sem þér virðast nokkrar
leiðir færar þarftu að gaumgæfa þær
vandlega áður en þú velur þá réttu. En
þér liggur ekkert á.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Allt samstarf byggist á samkomu-
lagi og málamiðlunum. Treystu á sjálfan
þig ef þú vilt koma einhverju í verk.
Til hamingju með daginn
Akureyri Emilía Þórunn Björns-
dóttir fæddist 2. ágúst kl. 22.58.
Hún vó 2.700 g og var 49 cm löng.
Foreldrar hennar eru Björn Ómar
Sigurðarson og Margrét Jóna
Kristmundsdóttir.
Nýr borgari