Morgunblaðið - 19.06.2020, Page 1

Morgunblaðið - 19.06.2020, Page 1
ALLT SEM ÞÚ VILT VITA UM BRÚÐKAUP BRÚÐKAUP 48 SÍÐUR F Ö S T U D A G U R 1 9. J Ú N Í 2 0 2 0 Stofnað 1913  143. tölublað  108. árgangur  Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hjúkrunarfræðingar ræddu stöðu kjaraviðræðna og yfirvof- andi verkfall á félagsfundi á Grand hóteli í Reykjavík í gær. Að óbreyttu hefst ótímabundið og víðtækt verkfall stéttarinnar klukkan átta á mánudagsmorgun, sem náð gæti til á þriðja þús- und hjúkrunarfræðinga víða um land. Fundur samninganefnda Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og ríkisins stóð frá morgni til miðs dags í gær og var þá boðaður nýr fundur, sem hefst í dag klukkan 10. Fleiri fundir eru ekki á dagskrá um helgina en verða að vonum skipulagðir í dag, takist ekki að semja. Aðal- steinn Leifsson ríkissáttasemjari sagði í gær að viðræðurnar væru þungar og snúnar, en Alma Möller landlæknir sagði að kerfið yrði að reiða sig á undanþágustarfsfólk ef til verkfalls kæmi. Benti hún á að hjúkrunarfræðingar ynnu við smitrakn- ingu og sýnatöku á Landspítalanum. Félög hjúkrunarfræði- nema lýstu yfir stuðningi við baráttuna í gær. Víðtækt verkfall hjúkrunarfræðinga hefst að óbreyttu á mánudag  Niðurstöður verkefnisins GróLindar sýna að 25% Íslands teljast til svæða þar sem vist- fræðileg virkni er mikil og rof tak- markað. Aftur á móti teljast 45% landsins á svæðum þar sem virkni vistkerfa er takmörkuð, rof mjög mikið eða hvort tveggja. 38% af beit- arsvæðum landsins lenda í bestu tveimur ástandsflokkunum og 39% í tveimur verstu ástandsflokkunum, samkvæmt skilgreiningu. »11 39% beitarlands á svæði sem telst vera í lélegu ástandi Vatnsnes Margt fé er í Húnaþingi.  Tekjur ferðaþjónustufyrirtæk- isins Grayline voru síðustu þrjá mánuði aðeins 1% af því sem hal- aðist inn í mánuðunum desember, janúar og febrúar. Þórir Garðars- son stjórnarformaður segir að á fyrra þriggja mánaða tímabilinu hafi tekjurnar verið tæpar 700 milljónir en farið niður í 680 þús- und kr. á seinna tímabilinu. Grayline vonast til að geta hafið akstur á ný í byrjun júlí en það verður ákveðið endanlega í næstu viku og metið hvaða horfur eru um komur ferðafólks. »2 Tekjur aðeins 1% af því sem var í vetur Samkvæmt nýrri viðhorfskönnun meðal starfsmanna Reykjavíkur- borgar telur rúmlega fjórðungur þeirra sig hafa orðið vitni að for- dómum eða skorti á virðingu í starfi sínu á síðustu tólf mánuðum. Er algengast að fordómarnir snúi að starfsfólki af erlendum uppruna, en einnig er nefnt heilsufar, kyn, aldur, holdafar, fötlun, trúarskoð- anir og kynhneigð. Tæp 14 prósent starfsmanna borgarinnar segja að þeir hafi á síðustu tólf mánuðum orð- ið fyrir áreitni frá þjónustuþegum borgarinnar og tæp 5 prósent nefna áreitni frá samstarfsmönnum. Fram kemur að 3,4 prósent telja sig hafa sætt einelti af hálfu samstarfsfólks og 1,8 prósent af hálfu þjónustu- þega. »14 Morgunblaðið/Ómar Reykjavíkurborg Könnuðu viðhorf. 25% nefna fordóma  Viðhorf starfsfólks borgarinnar kannað Snorri Másson snorrim@mbl.is Gunnar Scheving Thorsteinsson, varðstjóri hjá lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu, fékk í gær ásamt fé- laga sínum greiddar miskabætur frá ríkinu fyrir ólögmæta handtöku, húsleit og aðrar þvingunaraðgerðir sem þeir máttu þola árið 2015, þegar þeir voru handteknir í svonefndu LÖKE-máli. Garðar Steinn Ólafsson lögmaður samdi við ríkislögmann í umboði þeirra, en skrifað var undir í síðustu viku og féð innt af hendi í gær. Garð- ar segir skjólstæðinga sína ekki vilja tjá sig um fjárhæðina opinberlega enda sé hún ekki það sem skipti máli. „Það sem skiptir máli er viður- kenningin á því að það hafi ekki verið þörf á eða rétt að handtaka þá, sem lá fyrir en ríkið var tregt til að viður- kenna það,“ segir Garðar. Með þessu telur hann málinu lokið lagalega. Gunnar og tveir aðrir, starfsmað- ur símafyrirtækis annars vegar og lögmaður hins vegar, voru hand- teknir árið 2015 vegna gruns um að Gunnar hefði flett upp nöfnum kvenna í innra kerfi lögreglunnar á árunum 2007 til 2013 og deilt upplýs- ingum með hinum. Síðar var fallið al- farið frá þeirri ákæru. Gunnar var hins vegar fundinn sekur í Hæstarétti um að hafa greint vini sínum frá því á Facebook að hann hefði verið skallaður af ungum dreng við skyldustörf. Það brot var þó ekki talið stórfellt. Lögmaðurinn sem var handtekinn vegna málsins samþykkti fyrr í ferl- inu afsökunarbeiðni frá lögreglunni og gaf þar með upp bótarétt sinn. Eftir sátu Gunnar og fyrrverandi starfsmaður símafyrirtækisins en þeir kærðu Öldu Hrönn Jóhanns- dóttur, þáverandi aðstoðarlögreglu- stjóra á höfuðborgarsvæðinu, fyrir misbeitingu lögregluvalds við rann- sókn á meintu athæfi þeirra. Sú kæra var látin niður falla; Bogi Nils- son, settur ríkissaksóknari í málinu, taldi annmarka hafa verið á rann- sókninni en ekki slíka að það varðaði brot á almennum hegningarlögum. Segir Garðar málið hafa legið mjög þungt á skjólstæðingum sínum. „Ég held að menn jafni sig aldrei á því að vera handteknir svona ger- samlega að ósekju, þegar þeir skilja ekki einu sinni hver ásökunin er,“ segir hann. Þremenningarnir gistu fangaklefa við handtökuna. Garðar gagnrýnir að kæra á hend- ur Öldu hafi verið látin niður falla og hún getað haldið áfram störfum fyrir lögreglu, þó hún fari ekki með form- legt lögregluvald sem yfirlögfræð- ingur lögreglunnar á Suðurnesjum. „Ég geri miklar athugasemdir við að einhver sem hefur orðið uppvís að því að brjóta lög við sakamálarann- sókn haldi áfram störfum.“ Ljúka LÖKE-máli með greiðslu bóta  Sömdu við ríkislögmann  Ólögmæt handtaka og húsleit Morgunblaðið/Árni Sæberg Samið Garðar segir málið hafa leg- ið þungt á skjólstæðingunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.