Morgunblaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 33
Foreldrar Bergsveinu voru hjónin Gísli Bergsveinsson, f. 11.6. 1894, d. 20.3. 1971, skipstjóri og útgerðar- maður í Neskaupstað, og Eyleif Jóns- dóttir, f. 2.3. 1908, d. 2.4. 1989, hús- móðir. Sonur Geirs og Bergsveinu var Gísli Sigurður Geirsson, f. 26.12. 1957, fisktæknir og framkvæmda- stjóri í Hafnarfirði, var kvæntur Kristínu Þóru Eðvarðsdóttur, f. 23.6. 1959, búsett í Garðabæ. Þeirra börn eru a) Eðvarð Þór, f. 13.4. 1982, bú- settur á Sauðárkróki. Börn hans eru Gísli Berg, f. 29.10. 2004, Victor Berg, f. 30.12. 2006, Oliver Breki, f. 24.10. 2009, Athena Marín, f. 14.2. 2012 og Víkingur Berg, f. 27.1. 2018; b) Berg- lind Sveina Gísladóttir, f 19.12. 1984, búsett í Hafnarfirði, gift Viktori Reinholdssyni, 29.10. 1987. Börn þeirra eru tvíburarnir Adrían Evan og Amelía Eva, f. 7.8. 2012; c) Geir Sigurður, f. 25.4. 1991, búsettur í Hafnarfirði, í sambúð með Zivile Vaisyte, f. 16.11. 1993. Systkini Geirs eru Guðrún Sigur- jónsdóttir, f. 30.5. 1925, d. 19.12. 2013, skrifstofumaður í Neskaupstað; Mar- grét Sigurjónsdóttir, f. 20.10. 1927, d. 22.9. 2017, húsfreyja í Reykjavík; Páll Sigurjónsson, f. 3.5. 1935, d. 15.1. 2014, sjómaður og bifreiðarstjóri í Hafnarfirði; Sigurjóna Sigurjóns- dóttir, f. 13.8. 1940, fv. skrifstofu- maður hjá Icelandair, búsett í Garða- bæ; Sigurður Sigurjónsson, f. 25.4. 1945, d. 1.7. 2003, byggingarmeistari í Hafnarfirði. Foreldrar Geirs voru hjónin Sigur- jón Jónsson, f. 3.9. 1901, d. 29.3. 1984, múrarameistari í Hafnarfirði, og Vil- borg Pálsdóttir, f. 1.9. 1907, d. 31.10. 1999, húsmóðir. Geir Sigurjónsson Vilborg Einarsdóttir húsfreyja á Þrándarstöðum Grímur Þorsteinsson bóndi á Þrándarstöðum í Eiðaþinghá Margrét Grímsdóttir húsfreyja á Borg Páll Sigurðsson búfræðingur og b. á Borg í Njarðvík á Borgarfirði eystra Vilborg Pálsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði ElínbjörgArnbjörnsdóttir húsfreyja á Ósi Sigurður Jakobsson bóndi á Ósi í Hjaltastaðaþinghá Guðný Pálsdóttir úsfreyja í Reykjavíkh Kjartan Sveinsson húsahönnuður Rannveig Ólafsdóttir húsfreyja í Ásakoti Þórarinn Sigurðsson bóndí í Ásakoti í Flóa Sigurveig Þórarinsdóttir húsfreyja á Minni-Ólafsvöllum Jón Þorleifsson bóndi á Minni-Ólafsvöllum á Skeiðum Gróa Þorleifsdóttir húsfreyja á Efri-Brúnavöllum Þorleifur Jónsson bóndi á Efri-Brúnavöllum á Skeiðum Úr frændgarði Geirs Sigurjónssonar Sigurjón Jónsson múrarameistari í Hafnarfirði DÆGRADVÖL 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020 Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ VERA EKKI AÐ HAKKA Í ÞIG POPP Á MEÐAN ÞÚ ERT MEÐ HIKSTA.” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að búa til góðar minningar þá og þegar. LEIÐ NÁTTÚRUNNAR TIL ÞESS AÐ SEGJA ÞÉR AÐ ÞÚ SÉRT EKKI NÓGU FEITUR MANSTU GÖMLU GÓÐU DAGNA? HVORT ÉG GERI! MAMMA MÍN BREIDDI ALLTAF YFIR MIG OG SÖNG FYRIR MIG ÞAR TIL ÉG SOFNAÐI OG MIG DREYMDI UM LEIKFÖNG, NAMMI OG KETTLINGA! EFTIR HVERJU MANST ÞÚ? SKIPTIR EKKI MÁLI! „… GÆSIN GARGAÐI BRA-BRA-BRA, HANINN GALAÐI GAGGALAGÚ, BÓNDI VINUR VAKNA ÞÚ OG VER ÞITT HÆNSNABÚ.” EGGJAPÚNS… Það hafa verið umhleypingarundanfarið. Ólafur Stefánsson orti á Leir á þriðjudag: Fellur regn á runna’ og strá, ryðjast lækir býsna frekt. Út í suddann seggir gá, sunnanlands er rekjan þekkt. Í búmannslúr er lagst á ný; látin amboð kyrr um hríð. Enginn kraftur aftrar því, uns það kemur skárri tíð. Það var vinalegri tónn í Pétri Stefánssyni þegar hann orti þennan sama dag um „veðrið snemma í morgun“: Hylja skýin himinsvið, horfinn sólarljóminn. Sunnangola gælir við gróðurinn og blómin. Friðrik Steingrímsson skrifar úr Mývatnssveit: „Mikið bitmý í sveit- inni þótti fréttnæmt og fólk hræðist að koma hér vegna flugnanna“: Um lífríki er löngum rætt og lína svört er dregin, nú er blessað mýið mætt, mikið er ég feginn. Allt er nú með ógnar skrið af mér léttir sálar drunga. Hvað er mýbit miðað við magran fisk og dauða unga? Davíð Hjálmar svarar: Þótt selkjöt ég salt í mig rífi og sviðin úr hnefa ég stýfi og magál af á er munurinn sá að mý étur ketið á lífi. „17. júní á Reykhólum 2020“ er yfirskrift þessarar stöku hjá Jóni Atla Játvarðssyni á Boðnarmiði: Ung er gæs með gamlan stegg sem giska litlu nennir. Sólin undir suðurvegg sína vini brennir. Hannes Pétursson yrkir heima hjá sér á Álftanesi „Til skóg- arþrastar“: Ég get boðið þér tré, ekki laufgan lund, þótt líkast til væri það meira gaman. Vertu samt hjá mér vorbjarta stund og við skulum taka lagið saman! Vel fer á að þessu fylgi „Þunga- rokk á sólmánuði“: Mig þreytir rómuð athöfn ungra guða: að orga glenntir stef í míkrófón. Ég þrái að heyra fiskiflugur suða, þær flytja gömlu hjarta sumartón. Gömul vísa í lokin: Mikið gengur Melstað á, margir lúa hrinda: 10 að raka, 12 að slá, 20 hey að binda. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Umhleypingar, bitmý og magur fiskur Lyklasmíði & öryggiskerfi Skútuvogur 1E | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 533 2900 |WWW.LYKLALAUSNIR.IS Öruggur og nettur verðmætaskápur fyrir heimili. 3 - 8 stafa aðgangskóði ásamt lyklum ef rafhlöður skildu klárast. Innbyggð 130 dB bjalla fer í gang ef rangur aðgangskóði er notaður oftar en þrisvar. VERÐMÆTASKÁPUR Hæð (cm) Breidd (cm) Dýpt (cm) Ytra mál 25 35 25 Innra mál 24,2 34 20

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.