Morgunblaðið - 19.06.2020, Side 4

Morgunblaðið - 19.06.2020, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020 SMÁRALIND – WWW.DÚKA.IS COMPONIBILI hirsla Frá 13.900,- stk. JELLIES glös Frá 2.190,-stk DUNE Crystal bakki 46x32 cm – 10.900,- CINDY lampi 32.900,- BATTERY lampi Frá 21.900,- stk. BOURGIE mattur Limited Edition borðlampi 54.900,- TAKE lampi 12.900,- stk MASTERS stóll Frá 29.900,- PLANET borðlampi 28cm 54.900,- stk. KABUKI borðlampi 52.900,- MOON skál – fleiri litir Ø 45 cm 13.900,- Gefðu í útskriftargjöf Freyr Bjarnason Hallur Már Tekin voru sýni úr um 540 farþeg- um sem komu til Íslands á mið- vikudag. Greindist einn þeirra með veiruna. Beðið er eftir mót- efnamælingu til að skera úr um hvort smitið er nýtt, og þar með smitandi, eða gamalt, sagði Þór- ólfur Guðnason sóttvarnalæknir á blaðamannafundi almannavarna í gær. Frá því skimanir hófust við landamærin á mánudag hafa sýni verið tekin úr um 2.400 manns. Sex manns hafa greinst með veir- una og tveir þeirra eru taldir vera smitandi. Þeir eru í einangrun. Þórólfur tók fram að of snemmt væri að draga víðtækar ályktanir út frá skimuninni á landamær- unum. Auðveldara yrði að gera það eftir um tvær vikur. Fram- kvæmdin hefði gengið nokkuð vel þó einhverjir hnökrar hefðu komið upp. Helst tengdust þeir tækni- legum vandamálum við að koma upplýsingum til einstaklinga um niðurstöður skimana. Fram kom í máli Páls Þórhalls- sonar, skrifstofustjóra í forsætis- ráðuneytinu, að landamæraeftirliti á innri landamærum Schengen- ríkjanna yrði hætt á mánudag. Þó svo vegabréfseftirlit falli niður á milli þessara ríkja mun lögreglan áfram styðja við bakið á þeim sem vinna við sýnatöku. Atburðarás vikunnar hefur verið hröð fyrir starfsfólk Sóttvarna- hússins á Rauðarárstíg. Þar eru nú sautján erlendir gestir, eða tveim- ur fleiri en var þegar mest lét á hápunkti faraldurs kórónuveir- unnar hér á landi. Yfirleitt eru fimm til tíu starfsmenn við störf í húsinu, þar sem 72 herbergi eru til reiðu. Gylfi Þór Þorsteinsson, umsjón- armaður hússins, segir hlutina hafa gerst fullhratt fyrir sinn smekk í vikunni. Starfsfólkið sé samt sem áður tilbúið að bregðast hratt við. „Ég held að það komi einhverjar sjö vélar í dag [til landsins] til dæmis,“ sagði Gylfi við mbl.is í gær. „Við vitum ekkert hvort einhver þar þurfi að koma hingað eða ekki. Þannig að við erum alltaf viðbúin því að þurfa að bregðast við.“ Spurður út í öryggisgæslu í hús- inu segir Gylfi að öryggi sé alltaf í forgangi til að tryggja sóttvarnir og öryggi starfsfólks og sjálf- boðaliða. Myndavélar séu á öllum göngum og öryggisverðir séu alltaf til staðar, og sú hafi alltaf verið raunin. Of snemmt að draga ályktanir  Sýni höfðu í gær verið tekin úr um 2.400 komufarþegum  Sex greinst með veiruna  Vandamál komið upp við miðlun upplýsinga um niðurstöður skimana  72 herbergi til reiðu í Sóttvarnahúsinu Nýtt aðkomutákn Garðabæjar sem markar aðkomu að bænum hefur verið sett upp vestan megin við Hafnarfjarðarveg á Arnarneshálsi. Verkið er fléttað saman úr þremur jafnstórum flötum römmum í þrívítt verk. Aðkomutáknið var valið í hug- myndasamkeppni Garðabæjar og Hönnunarmiðstöðvar Íslands á með- al hönnuða og myndlistarmanna árið 2016 þegar Garðabær fagnaði 40 ára kaupstaðarafmæli. Vinningstillagan sem nú er risin kom frá Teiknistofunni Tröð og var unnin af Sigríði Magnúsdóttur, arki- tekt FAÍ, Hans-Olav Andersen, arkitekt FAÍ, Magnúsi Andersen ljósmyndara og Nínu Solveigu And- ersen. Á næstu misserum verður að- komutákninu komið upp í mismun- andi stærðum á fleiri stöðum í bæn- um, en hægt er að útfæra táknið úr mismunandi efnum og ólíkum stærð- um eftir því hvað hentar best á hverjum stað. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Skipt út Gamla merki Garðabæjar víkur fyrir nýja aðkomutákninu. Nýtt aðkomutákn á bæjar- mörkum Garðabæjar Lögreglan á höfuðborgarsvæð- inu hefur birt ellefu Rúmenum sektarboð að upphæð 150 til 200 þúsund krónur fyrir brot á sóttkví, auk þess sem tveimur af þeim hefur verið birtur úr- skurður Útlendingastofnunar um vísun úr landi. Eftir er að koma í ljós hvort fleiri úr hópnum verður vísað úr landi, að sögn Ásgeirs Þórs Ás- geirssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu. Fyrir utan þessa ellefu sem birt hefur verið sektarboð fer lögreglan á Suðurlandi með mál Rúmenanna þriggja sem voru handteknir fyrst hér á landi grunaðir um þjófnað og fyrir að hafa brotið lög um sóttkví. Tveimur vísað úr landi ELLEFU SEKTAÐIR Ljósmynd/Lögreglan Blaðamannafundur Almannavarnir boðuðu til fundar í Katrínartúni í gær. Páll Þórhallsson var með þríeykinu. Fjöldi eftir landshlutum Óstaðsett 6 19 Útlönd 1 0 Austurland 8 18 Höfuðborgarsvæði 1.322 322 Suðurnes 77 54 Norðurland vestra 35 3 Norðurland eystra 46 31 Suðurland 180 41 Vestfirðir 97 26 Vesturland 44 19 Smit Sóttkví Uppruni smits Innanlands Óþekktur Erlendis 65.801 sýni hafa verið tekin 10 einstaklingar eru látnir Enginn á sjúkrahúsi eða á gjörgæslu 5 einstaklingar eru í einangrun Fjöldi smita frá 28. febrúar til 17. júní Heimild: covid.is 1.816 5 1.750 1.500 1.250 1.000 750 500 250 þeirra sem hafa greinst voru í sóttkví 81% 57% 8,6% sýna tekin hjá LSH voru jákvæð og 0,51% sýna tekin hjá ÍE 22.030 hafa lokið sóttkví533 manns eru í sóttkví Staðfest smit Virk smit apríl maí júnímars 1.816 smit voru staðfest í gær kl. 13.00 5 eru með virkt smit 1.801 einstaklingar hafa náð bata

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.