Morgunblaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020 ✝ Sigríður Ein-arsdóttir fædd- ist á Skúfslæk í Vill- ingaholtshreppi 10. apríl 1920. Hún lést 7. júní 2020. Foreldrar hennar voru Einar Sveins- son frá Ásum í Gnúpverjahreppi, f. í Syðra-Langholti í Hrunamannahreppi 24. apríl 1884, d. 4. nóv. 1958, og Sesselja Loftsdóttir frá Steinsholti í Gnúpverjahreppi, f. þar 13. feb. 1891, d. 18. júní 1961. Systkini Sigríðar voru: 1) Guðrún, f. 29. apríl 1921, d. 8. nóv. 1919 en fluttust að Efri-Gróf í sömu sveit 1922. Árið 1929 settust þau að í Brúnavallakoti á Skeið- um og þar gekk Sigríður í skóla í Brautarholti. Þau bjuggu í Skarði í Gnúpverjahreppi 1935 til 1949 þegar þau reistu nýbýlið Lækjar- brekku að mestu í landi Steins- holts í Gnúpverjahreppi. Sigríður og Sveinn bróðir hennar voru bæði ógift og tóku við búinu þegar faðir þeirra lést og bjuggu í Lækjarbrekku til 1991. Þrátt fyrir stutta skóla- göngu var Sigríður um árabil handavinnukennari í Ásaskóla. Þau systkinin settust að á Hörðu- völlum 6 á Selfossi eftir að þau brugðu búi en snemma árs 2017 fluttist Sigríður á Sólvelli, heimili aldraðra á Eyrarbakka, þar sem hún lést. Útförin fer fram frá Stóra- Núpskirkju í dag, 19. júní 2020, klukkan 14. 2011, gift Knut Aa- gestad, búsett í Risør í Noregi, börn þeirra Svanhild, f. 1946, d. 2014, Einar, f. 1948, og Sævar, f. 1950; 2) Guðbjörg, f. 29. apríl 1921, d. 8. des. 2015, gift Ólafi Þorsteins- syni, búsett í Reykja- vík, börn þeirra Þor- steinn, f. 1947, Einar, f. 1949, og Sigrún, f. 1953, d. 1971; 3) Sveinn, f. 5. nóv. 1922, d. 28. feb. 2007, bóndi í Lækj- arbrekku í Gnúpverjahreppi. Foreldrar Sigríðar hófu búskap á Skúfslæk í Villingaholtshreppi Sigga í Lækjarbrekku var ekki aðeins móðursystir mín heldur líka fóstra. Öll sumur frá því ég man eftir mér og þar til ég var 16 ára dvaldist ég hjá henni og Sveini bróður hennar og afa og ömmu meðan þau lifðu. Og alla tíð var Lækjarbrekka mér annað heimili. Sigga ólst upp við fremur kröpp kjör, foreldrar hennar voru á hrak- hólum með jarðnæði, bjuggu á fimm stöðum á sinni búskapartíð í Flóa, á Skeiðum og í Gnúpverja- hreppi og tvö ár, 1928 og 1929, þeg- ar Sigga var átta og níu ára gömul, voru þau til heimilis hjá föðursyst- ur hennar, Guðrúnu, og manni hennar, Ámunda Jónssyni frá Minna-Núpi, fyrra árið í Háholti og seinna árið á Minna-Núpi. Skóla- gangan var ekki löng, hún gekk í barnaskóla í Brautarholti á Skeið- um en seinna var hún, eins og margar sveitastúlkur, í vist í Reykjavík að vetrinum, stundum reyndar sem ráðskona. Þá nýtti hún tækifærið og sótti tíma í kvöld- skóla en frekari skólagöngu varð henni ekki auðið. Hún lærði meðal annars hannyrðir sem lét henni svo vel að löngu seinna var hún, þrátt fyrir þessa takmörkuðu skóla- göngu, ráðin sem handavinnukenn- ari við Ásaskóla í Gnúpverjahreppi og gegndi hún því starfi allmarga vetur. Þetta fór reyndar fram hjá mér, sumardrengnum, en þeir nemendur hennar sem ég hef heyrt í bera henni ákaflega vel söguna, eins og allt samferðafólk hennar, jafnt börn sem fullorðnir. Á yngri árum var hún eftirsótt til aðstoðar á bæjum, t.d. ef húsmóðirin lá á sæng. Þótt öll hús í Lækjarbrekku væru nýleg þegar ég var þar sem barn skorti þó mikið upp á þau þægindi sem við þekkjum nú. Raf- magn kom ekki í sveitina fyrr en eftir 1960, þangað til var eldað á kolaeldavél, ísskápur var enginn né önnur rafknúin eldhúsáhöld, hvað þá sjálfvirk þvottavél. En fótstigin saumavél var þar og prjónavél og voru þessi tæki notuð þegar um hægðist eftir haustverkin. Eins og hjá öðrum húsmæðrum í sveit var yfrið nóg að gera. Yfir sumarið voru yfirleitt tvö eða fleiri börn í sumardvöl og kaupamaður auk fleiri sem þar áttu athvarf um lengri eða skemmri tíma. Borið var á borð fyrir þetta fólk fjórum eða fimm sinnum á dag, hún sinnti mjöltum kvölds og morgna og hríf- an stóð aldrei ónotuð lengi meðan á heyskap stóð. Nær allur matur var verkaður heima, stundum jafnvel strokkað smjör. Hér er of langt mál að telja upp öll þau verk sem þurfti að sinna, en aldrei varð ég samt var við neinn asa á Siggu, allt var þetta unnið eins og ekkert væri, en eflaust hefur hún oft verið þreyttari en ég gerði mér grein fyr- ir þegar hún fór síðust allra í rúmið á kvöldin. Veturinn 1943 skrifaði Sigga móður minni, systur sinni, sem þá var í Húsmæðraskólanum á Laug- arvatni: „Ég býst við að þú verðir vel búfær þegar þú kemur að hafa meir að segja lært uppeldisfræði.“ Ég hef ekki tölu á öllum þeim börn- um og unglingum sem voru um lengri eða skemmri tíma í Lækj- arbrekku og nutu hlýju og umönn- unar. Þar þurfti Sigga enga tilsögn. Þær eru bjartar minningar mínar um bernskusumrin í Lækjar- brekku og Siggu er gott að minn- ast. Einar Ólafsson. Einar faðir Sigríðar var sonur hjónanna Sveins Einarssonar frá Miðfelli í Hrunamannahreppi og Guðbjargar Jónsdóttur frá Tortu í Biskupstungum sem bjuggu í Syðra-Langholti í Hrunamanna- hreppi fram til 1907 er þau fluttust að Ásum í Gnúpverjahreppi. Systkini Einars voru Jón, dó ungur, Sigþrúður í Steinsholti, Guðrún á Minna-Núpi, Ágúst í Ás- um og Kristján í Geirakoti í Sand- víkurhreppi. Sesselja móðir Siggu var dóttir Lofts Loftssonar frá Austurhlíð í Gnúpverjahreppi bónda í Steins- holti og konu hans Sigríðar Eiríks- dóttur frá Hömrum. Systkini Sesselju er upp komust voru þau Eiríkur í Steinsholti, Bjarni á Eyrarbakka og Þóra á Grafarbakka í Hrunamanna- hreppi. Frændgarðurinn var fjölmenn- ur og náinn. Hópur frændsystkina hefur búið á Minna-Núpi, í Eystra- Geldingaholti, Steinsholti, Lækjar- brekku og Ásum, og fólkið frá Steinsholti og Lækjarbrekku er auk heldur systkinabörn bæði í móður- og föðurætt. Einar og Sesselja hófu búskap á Skúfslæk í Villingaholtshreppi 1919 og áttu þar heima í tvö ár. Þar fæddust þeim þrjár dætur, Sigríð- ur og tvíburarnir Guðrún og Guð- björg. Frá Skúfslæk fóru þau hjón búnaði sínum að Efri-Gróf í sama hreppi og bjuggu þar í fimm ár og þar fæddist sonur þeirra Sveinn sem síðar bjó í Lækjarbrekku með Siggu systur sinni. Hann lést árið 2007. Eftir að þau brugðu búi í Efri- Gróf var Einar í lausamennsku, fór til sjós og vann á ýmsum bæjum. Á meðan var Sesselja með þau Sig- ríði og Svein á Minna-Núpi. Guð- rún var eitt ár hjá vinkonu Sess- elju, Kristínu Gunnlaugsdóttur í Gröf í Hrunamannahreppi, en Guð- björg fór að Ásum, til hjónanna Ágústar Sveinssonar og Kristínar Stefánsdóttur, og ólst upp hjá þeim eftir það. Guðbjörg átti Ólaf Þor- steinsson frá Háholti; Guðrún Knut Ågestad frá Noregi. Fyrir aldamótin 1900 keypti Ágúst í Birtingaholti Brúnavalla- kot á Skeiðum og fór því á flot við Einar að hann gerðist ráðsmaður sinn þar og átti fjölskyldan því þar heima frá 1929 til 1935. Nú tóku hjónin sér bólfestu í Skarði í Gnúpverjahreppi, fengu aðra hálflenduna á leigu hjá sókn- arpresti Stóra-Núpsprestakalls sem bjó sjálfur á helmingi jarðar- innar. Eftir 14 ár í Skarði stofnuðu þau nýbýlið Lækjarbrekku, keyptu hundrað hektara úr landi Steins- holts og spildu úr Hömrum. Bær- inn stendur á fögrum stað í brekkurótum Ásgeirsholts með út- sýn til Búrfells, Heklu, Tindfjalla, Eyjafjallajökuls og Þríhyrnings. Hér stóð hjáleiga frá Steinsholti, hét Gata. Kom til greina að nefna býlið svo, og þótti of skammt til Götu í Hrunamannahreppi; en bæjarlækurinn heitir Götulækur. Það sem mér þótti miklu skipta í fari Siggu í Lækjarbrekku var trútt minni og eðlisgreind og hve vel hún var máli farin. Danir kalla, að menn séu ekki „med fulde fem“, en það orðaði Sigga svo, að þeir væru „með pörtum“. Guð verndi ástvinina alla. Hann blessi minningu Sigríðar Einars- dóttur. Gunnar Björnsson, fv. kaupamaður í Eystra-Geldingaholti. Hún Sigga í Lækjarbrekku náði því að verða 100 ára fyrr á þessu ári. Á þeim tímamótum fór margt um hugann. Ég fór að hugsa til fjöl- skyldunnar í Lækjarbrekku, þess- ara næstu nágranna okkar á Hæli, um góðu móttökurnar sem við krakkarnir á Hæli fengum í sendi- ferðum eða ekki sendiferðum um nágrennið. Ég man hlýjuna og góð- mennskuna sem stafaði frá henni Sesselju í þá daga. Við krakkarnir fórum iðulega gangandi heim úr skólanum fyrir helgarnar. Sigurð- ur í Austurhlíð hafði kannski ferjað okkur yfir Kálfá sem oft var á ís eða ekki. Það kom fyrir að hann bar okkur á bakinu yfir ána. Og svo var lagt á brattann yfir hlíðina. Þá var gott að koma við í Lækjar- brekku og hvíla sig fyrir síðasta spölinn heim. Viðtökurnar voru hlýjar hjá öllu heimilisfólkinu. Sigga og Sveinn voru líka hinir bestu nágrannar, einstaklega bón- góð. Þegar bærinn á Hæli brann 1959 nutum við heimilisfólkið mik- illar velvildar sveitunganna. Þá sýndu systkinin í Lækjarbrekku mömmu og pabba það vinarbragð að taka Lása vinnumann og skjól- stæðing mömmu og pabba að sér allt til þess að hægt var að dvelja í nýja húsinu. Allir sem til þekkja vissu að Lási var ekki allra og kannski ekki óskaheimilismaður. Þetta víluðu þau ekki fyrir sér, tóku því eins og öðru með jafnaðar- geði. Lási gekk svo á hverjum morgni fram að Hæli og upp að Lækjarbrekku á kvöldin. Mamma átti alltaf hauk í horni þar sem Sigga var. Alltaf tilbúin að rétta hjálparhönd. Hún var flink sauma- kona og hjálpaði oft mömmu með slíka hluti. T.d. man ég að hún saumaði kápu á mig krakka, kjóla á mömmu og mig fleira þegar flest var heimasaumað. Seinna áttum við Sigga ýmislegt saman að sælda. Í stjórn kven- félagsins í mörg ár og ekki síst þeg- ar ég fékk hana til að taka að sér handavinnukennslu í skólanum. Allt gerði hún af stakri trú- mennsku. Ég veit að líf Siggu var ekki alltaf auðvelt þótt hún gerði það yfirleitt ekki að umtalsefni, enda léttlynd og brosmild að eðl- isfari. Sigga átti góða að sem sýndu henni umhyggju og ástúð þegar hún þurfti þess mest við eins og hún átti svo sannarlega skilið þessi ágæta heiðurskona. Ég kveð mína gömlu vinkonu og nágranna með þökkum. Hún á góða heimvon. Jóhanna Steinþórsdóttir. Hún Sigga í Lækjarbrekku var fastur póll í tilveru okkar mæðgna frá því sú elsta varð fósturbarn hennar veturinn 1944 til þessa dags. Við dvöldum hjá henni heil sumur og vetrarparta sem börn og unglingar í nær samfellt fjóra ára- tugi en áttum síðan stöðugt sam- band með heimsóknadvölum á há- tíðum og hversdags. Í minningunni er Sigga stór þótt hún væri lágvaxin. Hún var kær- leiksrík og það fór ekki á milli mála þótt hún flíkaði því ekki mikið. Henni féll sjaldan verk úr hendi. Allt fór fram af hægð, yfirvegun og að því er virtist fyrirhafnarlaust. Og hún bjó til besta matinn. Margt kemur upp í hugann þeg- ar hugsað er til Siggu. Æðruleysi, stóísk ró, ræktun úti og inni, handavinna, gestrisni, þolinmæði, kímni, gæska við dýr og menn, þekking á ótal hlutum og einstakt verksvit. Það var gott og lærdómsríkt að vera í nærveru Siggu, þess naut fjöldi barna sem voru í hennar umsjá. Hún hafði sérstaklega gam- an af að kveðast á og kunni ótal vís- ur og ljóð. Dæmi um kímnigáfu og æðruleysi Siggu er þessi vísa, eftir Matthías Jochumsson, sem hún fór með fyrir okkur stuttu fyrir 100 ára afmæli sitt: Bráðum kveð ég fólk og Frón og fer í mína kistu. Rétt að segja sama flón sem ég var í fyrstu. Vísurnar voru af ýmsum toga og í dag minnumst við Siggu okkar með kvöldbæn sem hún kenndi okkur. Kveðjum en vitum að hún fylgir okkur ævinlega í hjarta, hug og höndum. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson) Hlédís Guðmundsdóttir, Sigríður Líba Ásgeirsdóttir, Embla Dís Ásgeirsdóttir. Sigríður Einarsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN HALLDÓRSDÓTTIR Heiðarseli 21, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi í faðmi fjölskyldunnar 15. júní. Útför hennar fer fram frá Seljakirkju fimmtudaginn 25. júní klukkan 15. Pétur Haraldsson Haraldur Pétursson Guðný Pétursdóttir Michael Refstrup Sigrún Pétursdóttir Jón Anton Jóhannsson og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi, KRISTINN DANÍELSSON vélfræðingur, lést á heimili sínu föstudaginn 17. apríl. Útför hans fer fram frá Lindakirkju 23. júní klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagið. Vilhelmína Ólafsdóttir Helgi Kristinsson Molly Lynn Smith Davíð Freyr Albertsson Tinna Þorvaldsdóttir Ísabella Ösp, Börkur Elí, Aníta Eik, Birkir Leó María Albertsdóttir Berglind, Elísabet Freyja Yndislega móðir okkar, dóttir, systir, mágkona og frænka, KRISTÍN ANNA ERLENDSDÓTTIR Vogatungu 22, Kópavogi varð bráðkvödd á heimili sínu fimmtudaginn 11. júní. Karl Aðalsteinn Aron Smári Anna Karlsdóttir Erlendur Erlendsson Sigrún Edda Erlendsdóttir Ársæll Aðalsteinsson Erlendur Snær Fannar Karl Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, RAGNHEIÐUR JÚLÍA GÍSLADÓTTIR, sem lést á hjúkrunarheimilinu Eyri á Ísafirði 21. mars, verður jarðsungin frá Súðavíkurkirkju laugardaginn 20. júní klukkan 14. Streymt verður frá útförinni í sal Kaupfélagsins. Sigurgeir Garðarsson Jónína Hansdóttir Þráinn Ágúst Garðarsson Sawai Sara Kham Gísli Garðarsson Kristín Jónsdóttir Hansína G. Garðarsdóttir Finnbogi Hermannsson Gerður Ragna Garðarsdóttir Ægir Sigurgeirsson Smári Garðarsson Karítas Halldórsdóttir Björn Jónsson Elsku besta mamma okkar, tengdamamma, amma og langamma, SIGRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR frá Þórisdal í Lóni, Kópavogsbraut 1a, lést sunnudaginn 14. júní. Útförin verður auglýst síðar. Guðmundur Knútsson Signý Knútsdóttir Hannes Ingi Jónsson Kristín Knútsdóttir Guðmundur Atlason barnabörn og barnabarnabörn Hinn 20. júní munum við koma saman í Ísafjarðarkirkju klukkan 14 og minnast elskulegrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁGÚSTU RAGNHILDAR BENEDIKTSDÓTTUR, Eyrargötu 6, Ísafirði, sem lést 1. apíl. Minningarathöfnin er öllum opin. Bjarni Líndal Gestsson Kristján Þór Bjarnason Auður Bjarnadóttir Ingibjartur Anton Ingvarsson Jóna Símonía Bjarnadóttir Þorsteinn Traustason Guðný Kristín Bjarnadóttir Jónas Hallur Finnbogason Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, DOROTHY SENIOR Bláskógum 3a Hveragerði, lést sunnudaginn 14. júní. Útför hennar fer fram frá Hveragerðiskirkju miðvikudaginn 24. júní klukkan 14. Gísli Garðarsson Garðar G. Gíslason Heiðrún Perla Heiðarsdóttir Steinunn Svanborg Gíslad. Ólafur Jósefsson Vigfús Örn Gíslason Soffía Eðvarðsdóttir Einar S. Kristjánsson Þórunn Ólafsdóttir Marteinn Sigurðsson barnabörn og langömmubörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.