Morgunblaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 40
Leikrit unnið upp úr skáldsögu Virginíu Woolf, Orlandó, verður sýnt í Borgarleik- húsinu á komandi leikári og segir í því af glæsilegum og töfrandi aðalsmanni sem er elskhugi Elísabetar I Englandsdrottn- ingar sem vaknar dag einn sem kona eftir að hafa sofið í sjö sólarhringa. Þarf hann bæði að aðlagast breyttum heimi og nýju kyni. Konur verða áberandi í þessari uppfærslu Borarleikhússins þar sem leikgerðin er eftir Kristínu Ei- ríksdóttur og Arnbjörgu Maríu Danielsen og sá Kristín einnig um þýðingu ásamt Soffíu Auði Birgisdóttur. Leik- stjóri er Arnbjörg María Danielsen, hönnuður leikmynda og búninga Ingibjörg Jara Sigurðardóttir og leikarar þau Árni Þór Lárusson, Haraldur Ari Stefánsson, Jörundur Ragnarsson, Lára Jóhanna Jónsdóttir og Vala Kristín Ei- ríksdóttir. Herdís Stefánsdóttir semur tónlistina og um leikgervi sér Rakel María Hjaltadóttir. Arnbjörg María og Ingibjörg Jara hafa starfað mikið í Berlín undanfarin ár og Herdís Stefánsdóttir tónskáld býr og starfar í Los Angeles í Bandaríkjunum. Konur áberandi í uppfærslu á Orlandó í Borgarleikhúsinu FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 171. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Fylkir er með sex stig við hlið Breiðabliks og Vals á toppi úrvalsdeildar kvenna í knattspyrnu eftir að hafa lagt KR-inga að velli í Vesturbænum í gærkvöld, 3:1. Breiðablik vann útisigur á Selfyssingum, 2:0, í stórleik umferðarinnar og Valur vann nauman sigur á nýliðum Þróttar. Þá vann Stjarnan sannfærandi sigur á FH- ingum, 3:0. »34 Fylkir er við hlið Breiðabliks og Vals á toppnum ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Svonefndur sólstöðuhópur undir stjórn Þórs Jakobssonar veður- fræðings hefur árlega á sumarsól- stöðum frá 1985 staðið fyrir sól- stöðugöngu og tíunda árið í röð verður hún í Viðey í samstarfi við Borgarsögusafn Reykjavíkur ann- að kvöld. „Við byrjuðum á þessu nokkrir kunningjar,“ rifjar Þór upp, en fyrsta gangan var frá Almannagjá á Þingvöllum að Kjarvalsstöðum í Reykjavík. Síðan tóku við göngur víða á höfuðborgarsvæðinu og áður en byrjað var að ganga í Viðey var genginn hringur í Öskjuhlíð í ára- tug. „Fyrsta gangan tók um sólar- hring en síðan hefur þetta færst yf- ir í létta kvöldgöngu við allra hæfi.“ Þór segist hafa haft góðan stuðn- ing af Einari Egilssyni, þar til hann féll frá, en Guðlaugur Leósson og Halldór Kristinn Petersen hafi líka verið í framvarðarsveitinni frá byrjun. „Við kölluðum þetta með- mælagöngu með lífinu og menning- unni strax í byrjun og tilgangurinn hefur verið sá sami síðan; dagur sem fólk hvílist frá deiluefnum og gleðst yfir því að vera til,“ segir Þór og leggur áherslu á að sólstöðugangan sé gleðistund. Allt að 150 manns á öllum aldri hafa tekið þátt í göngunni en Þór segir að veðrið hafi gjarnan áhrif á fjöldann. „Við höfum verið frá 30 og upp í 120 í Viðey, en fyrir margt löngu voru um 150 manns í göngu um Seltjarnarnes og víðar enda skínandi gott veður þá,“ segir veðurfræðingurinn. Hann leggur áherslu á að fólk klæði sig eftir veðri og taki með sér nesti ef vill. Allir sameinist í þögn Á morgun verður siglt frá Skarfabakka kl. 20:00 og til baka ekki síðar en kl. 23:00. Frítt er fyr- ir sex ára og yngri og handhafa gestakortsins. Árný Helgadóttir hjúkrunarfræðingur stjórnar upp- hitun fyrir gönguna. Gengið verður umhverfis Kvennagönguhól, um- hverfi hans skoðað og sögur sagðar af staðnum. Ágústa Rós Árnadótt- ir, verkefnisstjóri viðburða hjá Borgarsögusafninu, skipuleggur gönguna en auk hennar koma Guð- mundur Hermann Guðmundsson, viðburðastjóri í Viðey, og Guð- brandur Benediktsson safnstjóri að málum. Á völdum stað flytur gest- ur sólstöðuhátíðarinnar, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Ís- lands, ávarp. Síðar, rétt fyrir „sól- stöðumínútuna“, greinir Þór frá til- gangi sólstöðugöngunnar. Á norðurhveli jarðar er sólin hæst á lofti um 21. júní og lægst um 21. desember. Þá eru sumar- og vetrarsólstöður. Andartakið þegar daginn hættir að lengja og styttist í vetrarsólstöður er kallað „sólstöðu- mínútan“ og í ár verður hún klukk- an 21:44 annað kvöld, samkvæmt útreikningum stjörnufræðinga. „Þá stöldrum við við, höfum mínútu- þögn og hugsum eitthvað hver fyrir sig,“ segir Þór. Draumur Þórs hefur lengi verið að þögn verði í heiminum á „sól- stöðumínútunni“. „Þetta er alls staðar sama mínútan þannig að mig dreymir um að koma þessari þögn á víða um heim,“ segir hann. Í því sambandi bendir hann á að hann hafi verið í sambandi við samtökin The Planetary Society, alþjóðleg samtök um stjörnufræði, með næsta ár í huga. Ljósmynd/Jórunn Rothenborg Í Öskjuhlíð Þór Jakobsson fræðir þátttakendur í sólstöðugöngu 21. júní 2008. Hann heldur stutta tölu annað kvöld. Vill þögn í heiminum  Þór Jakobsson hefur staðið fyrir sólstöðugöngu frá 1985

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.