Morgunblaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 35
ÍÞRÓTTIR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020
Martin Hermannsson, landsliðs-
maður í körfuknattleik, var hvíldur í
gær þegar lið hans Alba Berlín vann
Göttingen auðveldlega, 93:68, í fyrri
leik liðanna í átta liða úrslitunum um
þýska meistaratitilinn í München.
Martin meiddist í baki fyrr í vikunni og
þjálfari liðsins ákvað að gefa honum
aukadag til að jafna sig. Martin sagði
við Morgunblaðið að hann ætti von á
að spila eitthvað í seinni leiknum sem
fer fram annað kvöld en samanlögð
stigatala ræður þannig að Alba er nær
öruggt með sæti í undanúrslitum.
Knattspyrnumaðurinn Örvar Egg-
ertsson gekk í gær til liðs við Fjölni en
hann hefur leikið með Víkingi í Reykja-
vík undanfarin þrjú ár. Örvar er 21 árs
sóknarmaður sem kom til Víkings frá
FH árið 2017 og hefur leikið 36 leiki
með liðinu í úrvalsdeildinni þar sem
hann hefur gert tvö mörk. Hann var í
leikmannahópi Víkings gegn Fjölni í
fyrstu umferðinni um síðustu helgi en
kom ekki við sögu í leiknum.
Spænski varnarmaðurinn Pablo
Marí leikur líklega ekki meira með Ars-
enal á þessu keppnistímabili í ensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Marí
meiddist snemma leiks gegn Man-
chester City í fyrrakvöld og sam-
kvæmt The Athletic eru meiðslin það
alvarleg að ekki er reiknað með að
hann spili meira. Hann gæti þurft að
fara í uppskurð. Granit Xhaka, miðju-
maður Arsenal, fór líka af velli
snemma leiks vegna ökklameiðsla en
hans meiðsli eru ekki talin eins slæm.
Opna bandaríska meistaramótið í
tennis mun fara fram í New York í
sumar en þetta tilkynntu forráðamenn
bandaríska tennissambandsins í gær.
Serena Williams, sigursælasta tenn-
iskona heims, var fljót að tilkynna
þátttöku sína á mótinu á samfélags-
miðlum og sömu sögu er að segja um
hina kanadísku Biöncu Andreescu
sem á titil að verja á mótinu. Það er
hins vegar ekki almenn ánægja með
þessa ákvörðun bandaríska tennis-
sambandsins því Novak Djokovic,
Nick Kyrgios, Rafael Nadal, Ashleigh
Barty og Simona Halep hafa öll gagn-
rýnt ákvörðunina um að spila mótið í
New York á meðan kórónuveirufarald-
urinn er ennþá að gera Bandaríkja-
mönnum lífið leitt.
Real Madrid missteig sig alls ekki í
gærkvöld þegar liðið vann allöruggan
sigur á Valencia, 3:0, í spænsku 1.
deildinni í knattspyrnu og minnkaði
þar með forskot Barcelona niður í tvö
stig á nýjan leik. Leikurinn var þó
markalaus í 60 mínútur en þá skoraði
Karim Benzema fyrir Real. Marco
Asensio bætti við marki á 74. mínútu
og Benzema innsiglaði sigurinn með
sínu öðru marki undir lokin.
Chelsea staðfesti í gær kaupin á
þýska knattspyrnumanninum Timo
Werner frá RB Leipzig, með fyrirvara
um að hann standist læknisskoðun.
Chelsea greiðir 50 milljónir punda fyr-
ir þennan 24 ára gamla
sóknarmann sem
hefur skorað 93
mörk í 157 leikjum
fyrir þýska félagið.
Hann kemur til liðs
við Chelsea í júlí og
leikur því ekki með
Leipzig í Meist-
aradeild Evrópu í
ágúst en liðið er
þar komið í átta
liða úrslitin.
Eitt
ogannað
1. DEILDIN
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Fyrsta deild karla í knattspyrnu,
Lengjudeildin, hefst í kvöld þegar
Þór tekur á móti Grindavík á Akur-
eyri en tveir leikir fara fram í dag áð-
ur en fyrsta umferðin klárast með
fjórum leikjum á morgun.
Eins og venjan er þykja liðin sem
féllu úr efstu deild í fyrra líkleg til ár-
angurs í sumar. Grindavík hefur skipt
um þjálfara, Sigurbjörn Hreiðarsson
er tekinn við, en þó haldið lykilleik-
mönnum sínum innanborðs. ÍBV hef-
ur sömuleiðis skipt um þjálfara þar
sem Helgi Sigurðsson er kominn í
brúna, og ef eitthvað er hefur byrj-
unarlið Eyjamanna orðið betra.
Sóknarmaðurinn öflugi, Gary
Martin, verður áfram með ÍBV og þá
hefur kempan Bjarni Ólafur Eiríks-
son fært sig frá Val til Vestmanna-
eyja.
Markvörðurinn Halldór Páll Geirs-
son var drjúgur í marki ÍBV í fyrra,
þó liðið hafi að lokum fallið úr deild-
inni. Morgunblaðið sló á þráðinn til
Halldórs sem tók undir að Eyjamenn
séu með öflugt lið, það er þó ekki þar
með sagt að þeir séu öruggir upp í
sumar.
Snúin deild með erfiðum
útileikjum
„Fyrst okkur er spáð svona góðu
gengi þá vilja væntanlega öll lið
sanna sig gegn okkur. Það verður
ekki auðvelt verkefni að fara upp úr
þessari deild. Við munum þurfa að
hafa jafn mikið fyrir því og öll önnur
lið. Þetta er snúin deild, með mikið af
erfiðum útileikjum,“ sagði Halldór
við Morgunblaðið.
Eyjamenn mæta Magna í fyrstu
umferðinni á Hásteinsvelli á morgun.
Magnamenn frá Grenivík hafa bjarg-
að sér frá falli með ævintýralegum
hætti nú tvö ár í röð og reynst ólík-
indatól í deildinni. Þeir verða líklega í
fallbaráttunni aftur í sumar, ásamt
nýliðum Leiknis frá Fáskrúðsfirði og
Vestra.
Afturelding, sem var nýliði í fyrra,
verður líklega einnig í neðri hlutanum
og þá er spurning með Þróttara úr
Reykjavík. Í Laugardalnum björg-
uðu menn sér frá falli í lokaumferð-
inni á síðustu leiktíð en hafa síðan þá
skipt um þjálfara, endurheimt sókn-
armanninn Dion Acoff, sem varð Ís-
landsmeistari í tvígang með Val, og
fengið spænskan framherja, Esaú
Rojo. Geti þeir skorað mörkin í sum-
ar er aldrei að vita nema Þrótturum
takist að lyfta sér hressilega upp töfl-
una.
Mörg lið sem vilja fara upp
En hvaða lið telur Halldór líkleg til
að berjast við ÍBV um toppsætin?
„Maður horfir helst til Grindavíkur
og Keflavíkur. Grindvíkingar verða
ekki jafn slæmir í sumar og þeir voru
í þessum bikarleik um daginn, þar
sem við hittum á frábæran dag og
þeir slakan. En svo eru alltaf 5-6 lið á
hverju ári sem vilja fara upp,“ sagði
Halldór.
Leiknir úr Reykjavík varð í þriðja
sæti í fyrra, tveimur stigum á eftir
Fjölni, og hefur ekki tapað deild-
arleik síðan 11. júlí á síðasta ári.
Leiknismenn hafa þó misst tvo af sín-
um bestu leikmönnum, Eyjólf Tóm-
asson markvörð og Kristján Pál Jóns-
son. Brynjar Hlöðversson er aftur á
móti snúinn aftur í Breiðholtið eftir
ævintýri í Færeyjum.
Keflavík mistókst að fara strax aft-
ur upp í fyrra eftir að hafa fallið ári
áður en hefur síðan þá bætt við leik-
mannahópinn. Þá ætla Þórsarar sér
einnig betra mót, þeir voru á toppn-
um eftir átta umferðir á síðustu leik-
tíð en fataðist flugið eftir því sem leið
á sumarið. Þar var það helst heima-
vallarárangurinn sem varð Akureyr-
ingum að falli, þeir unnu aðeins fjóra
af 11 leikjum sínum á Þórsvelli.
Framarar hafa svo haldið áfram að
byggja upp í Safamýrinni og eru með
skemmtilegt lið. Ekkert lið fékk fleiri
stig á heimavelli síðasta sumar en
Framarar. Stóra spurningin er hins
vegar hver getur bætt upp fyrir
mörkin fimmtán sem Helgi Guð-
jónsson skoraði á síðustu leiktíð en
hann skipti úr Fram í Víking í efstu
deild í vetur. Alexander Már Þorláks-
son, er snúinn aftur, en hann skoraði
28 mörk fyrir KF í 3. deild í fyrra og
þá er Þórir Guðjónsson einnig kom-
inn til Fram eftir að hafa spilað í efstu
deild undanfarin ár.
Víkingar í Ólafsvík eru svo oft óút-
reiknanlegir, þeir hafa verið meðal
efstu liða undanfarin tvö ár en eru nú
þjálfaðir af Jóni Páli Pálmasyni, en
ekki Ejub Purisevic sem hafði stýrt
liðinu nær samfleytt frá árinu 2003.
Skemmtilegt og íslenskt
Halldór segir það frábært að vera
kominn með gamalreynda kempu
eins og Bjarna Ólaf inn í liðið en hann
er orðinn 38 ára og var lykilleikmaður
í Íslandsmeistaraliði Valsara 2017 og
2018. „Þetta er maður sem allir
hlusta á þegar hann talar og hann er
stanslaust gjammandi í leikjum, að
stjórna mönnum fyrir framan sig.
Það er frábært að hafa hann og alveg
sérstaklega fyrir mig. hann stýrir
vörninni fyrir framan mig.“
Fátt er svo með öllu illt að ei boði
nokkuð gott og er það tilvikið hjá
Eyjamönnum. Auðvitað vill enginn
falla úr efstu deild en það gefur félag-
inu aftur á móti tækifæri til að breyta
um áherslur til lengri tíma. „Þó að
það sé auðvitað grútleiðinlegt að falla
þá reynum við að vinna sem best úr
þessu á móti. Við viljum gefa ungum
strákum séns, hafa þetta skemmti-
legt og íslenskt. Það hafa verið, í
gegnum tíðina, of margir útlendingar
sem hafa svo ekkert getað. Þeir hafa
verið að fá spiltíma á kostnað yngri
stráka sem eru jafn góðir,“ sagði
Halldór. Það felast tækifæri í þessu
sumri fyrir stráka eins og Eyþór
Orra Ómarsson, fæddur 2003 og hef-
ur verið að banka á dyrnar hjá meist-
araflokki, og Tómas Bent Magnússon
sem er átján ára og var með U19
landsliði Íslands fyrr á árinu. Þá eru
Gary Martin, José Sito og Telmo
Castanheira einir útlendinga eftir,
allt góðir leikmenn.
Eyjamenn, eins og eflaust öll lið
deildarinnar, eru komnir í starthol-
urnar og iða í skinninu, enda hefst
deildin loks í kvöld, tveimur mán-
uðum seinna en vejulega. „Við erum
búnir að vera æfa samviskusamlega
og undirbúa okkur vel. Það eru allir
spenntir, heilir og klárir í að byrja
spila fótbolta,“ sagði Halldór við
Morgunblaðið.
Fyrsta deildin er strembin
Eyjamenn ætla sér að stoppa stutt Mörg lið ætla sér stóra hluti í topp-
baráttunni í ár Ungir strákar fá tækifæri sem þeir hefðu annars ekki fengið
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Sigurstranglegir Halldór Páll Geirsson ver mark Eyjamanna sem þykja líklegir til afreka í 1. deildinni.
Rúnar Arnórsson úr GK og Saga
Traustadóttir úr GR eiga Íslands-
meistaratitla að verja þegar Ís-
landsmótið í holukeppni í golfi
hefst á Jaðarsvelli á Akureyri í dag.
Flestir bestu kylfingar landsins eru
með en 32 keppa í átta riðlum í
karlaflokki og 27 í sjö riðlum í
kvennaflokki. Fyrstu leikir áttu að
hefjast kl. 7.30 í morgun en önnur
umferð er leikin eftir hádegi og sú
þriðja í fyrramálið. Átta manna úr-
slit hefjast eftir hádegi á morgun
og úrslitaleikir fara fram á Jað-
arsvelli á sunnudaginn.
Titilvörn hjá
Rúnari og Sögu
Ljósmynd/GSÍ
2019 Saga Traustadóttir og Rúnar
Arnórsson sigruðu á síðasta ári.
Jóhann Berg Guðmundsson, lands-
liðsmaður í knattspyrnu, er enn
ekki tilbúinn til að spila með Burn-
ley en Sean Dyche knattspyrnu-
stjóri félagsins staðfesti í gær að
hann yrði ekki með liðinu gegn
Manchester City í ensku úrvalds-
deildinni á mánudagskvöldið. Það
er fyrsti leikur liðsins eftir hléið.
Jóhann lék síðasta deildaleik sinn
fyrir hálfum sjötta mánuði, gegn
Aston Villa á nýársdag, sinn sjö-
unda á tímabilinu, en meiddist á ný
í bikarleik gegn Peterborough
þremur dögum síðar.
Fjarvera Jóhanns
nálgast hálft ár
Ljósmynd/Burnley
Meiðsli Jóhann Berg Guðmundsson
hefur átt mjög erfitt tímabil.
ÍBV: Helgi Sigurðsson.
GRINDAVÍK: Sigurbjörn Hreiðarsson.
LEIKNIR R.: Sigurður Heiðar Höskuldsson.
VÍKINGUR Ó.: Jón Páll Pálmason.
KEFLAVÍK: Eysteinn Hauksson og Sigurður Ragnar Eyjólfsson.
ÞÓR: Páll Viðar Gíslason.
FRAM: Jón Þórir Sveinsson.
AFTURELDING: Magnús Már Einarsson.
MAGNI: Sveinn Þór Steingrímsson.
ÞRÓTTUR R.: Gunnar Guðmundsson.
LEIKNIR F.: Brynjar Skúlason.
VESTRI: Bjarni Jóhannsson.
Þjálfarar liðanna í 1. deildinni
KEPPNI Í DEILDINNI HEFST Í KVÖLD: