Morgunblaðið - 19.06.2020, Page 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020
Sínum augum lítur hver ásilfrið og það sem einumkann að þykja rétt geturhorft öðruvísi við öðrum.
Um þetta snýst Blekkingaleikur
Kristinu Ohlsson og ekki verður
annað sagt en að henni takist vel til í
glæpasögunni.
Oft veltir lítil
þúfa þungu hlassi
og í þessu tilfelli
reynist nýkeyptur
hlutur Martins
Benners, lög-
manns í Stokk-
hólmi í Svíþjóð, í
antíkverslun í
New York í
Bandaríkjunum
dýrkeyptur. Í stað þess að fela þar
til bærum yfirvöldum rannsókn
málsins leitar hann svara sjálfur og
það dregur dilk á eftir sér svo um
munar.
Á nýliðnum árum hafa ýmis mál,
sem lengi lágu í þagnargildi, komið
upp á yfirborðið. Ýmsir hafa fengið
tilhlýðilega refsingu, þó seint sé, en
aðrir komist undan réttvísinni.
Sænski spennusagnahöfundurinn
nýtir sér þessa sviðsmynd og úr
verður flétta, sem skýrist ekki full-
komlega fyrr en í sögulok.
Flækjurnar eru margar, jafnt í
einkalífi sem í öðrum samskiptum
helstu persóna. Sagan er spennandi
og ævintýraleg á köflum. Gullna
hliðið er lengi í bakgrunninum, hvort
sem sagan gerist í Stokkhólmi eða
New York, en allar leiðir liggja til
Rómar um síðir, hvort sem menn
vilja það eða ekki.
Martin Benner er í aðalhlutverki.
Hann hefur margt til brunns að bera
en virðist svolítið tvístígandi á
stundum, óákveðinn, en vill samt
komast til botns í máli málanna,
hvað sem það kostar. Lucy er hans
helsta stoð og stytta, en samband
þeirra er vægast sagt svolítið
óvenjulegt. Boris er líka yfirleitt til
taks þegar á þarf að halda, en hann
er ólíkindatól, sem kemur og fer eins
og vindurinn.
Ekki er allt sem sýnist og höf-
undur leikur sér með brothætt efnið,
fer um víðan völl, en lokar svo mál-
inu, að mestu á viðeigandi hátt.
Heldur samt dyrum opnum að hætti
blekkingameistara.
Flækjur Þær eru margar flækjurnar í Blekkingaleik Kristinu Ohlsson.
Lög og reglur
leikmanna
Glæpasaga
Blekkingaleikur bbbmn
Eftir Kristinu Ohlsson. Nanna B. Þórs-
dóttir þýddi. Kilja. 432 bls. JPV útgáfa
2020.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Platan Sinfonia með samnefndu
verki eftir Guðmund Stein Gunn-
arsson kemur út í dag hjá banda-
ríska útgáfufyrirtækinu Carrier
Records og bæði á geisladiski og
vínyl í handgerðum umbúðum eftir
listamanninn Sam Rees sem búsett-
ur hefur verið á Íslandi, að því er
fram kemur í tilkynningu. Þar segir
að „Sinfonia“ sé nýlegt tónverk, en
það var frumflutt í mars á síðasta ári
af tónlistarhópnum Fengjastrúti
sem flytur það einnig á plötunni.
„Tónsmíðin notast við sérstilltar
munnhörpur, flöskur og ýmis sér-
stillt hljóðfæri til að ná fram svoköll-
uðum annarlegum hljóðheimi sem
meðal annars byggir á míkrótónum.
Þá eru nóturnar ekki á pappír eins
og venjulega tíðkast. Nóturnar eru í
rauninni myndbönd – tónlistar-
mennirnir horfa á myndbönd á með-
an þeir spila. Þetta er gert til þess að
mála um hrynrænan heim þar sem
engin jöfn bil eða beinar línur fyrir-
finnast og allt er á skjön. Lítið sem
ekkert getur gerst á sama tíma.
Þetta allt saman er regla frekar en
undantekning í verkum Guðmundar
Steins,“ segir í tilkynningunni.
Fjallað var nýverið um plötuna á
stöð breska ríkisútvarpsins, BBC 3,
og einnig í ítalska tónlistarritinu
Percorsi Musicali. Í báðum tilfellum
tengdist umfjöllunin Ana-Maria
Avram tónskáldi sem lést árið 2017
og er platan tileinkuð henni.
Guðmundur hefur verið virkur í
íslensku tónlistarlífi lengi vel, átti
þátt í að skipuleggja tónleikaröðina
Jaðarber og hefur verið virkur í
starfi samtakanna S.L.Á.T.U.R. um
árabil. Hann hefur skrifað tónverk
fyrir hljómsveitir og tónlistarhópa á
borð við Caput, Elju, Kammersveit
Reykjavíkur, Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands, Nordic Affect, Duo Harpverk
og fjölda erlendra tónlistarhópa og
þeirra á meðal skosku BBC-
sinfóníuhljómsveitina.
Tónskáld Guðmundur Steinn hefur verið virkur í íslensku tónlistarlífi.
Nóturnar í raun myndbönd
Magnús Þór Þor-
bergsson hefur
verið ráðinn
dramatúrg við
Borgarleikhúsið
frá og með næsta
leikári. Hann
lauk BA-prófi í
almennri bók-
menntafræði frá
Háskóla Íslands,
MA-gráðu í leik-
listarfræðum frá Freie Universität
Berlin og doktorsprófi frá Íslensku-
og menningardeild HÍ. Hann hefur
starfað sem lektor við Sviðslista-
deild Listaháskóla Íslands og
gegndi þar stöðu fagstjóra Sviðs-
höfundabrautar á fyrstu árum
hennar. Síðustu ár hefur Magnús
sinnt rannsóknum við HÍ en með-
fram þeim hefur hann verið stunda-
kennari við Sviðslistadeild LHÍ og
Íslensku- og menningardeild HÍ.
Hann er einnig forseti samtaka
Norrænna leiklistarfræðinga.
Magnús Þór ráðinn
í starf dramatúrgs
Magnús Þór
Þorbergsson
Óskarsverðlaunahátíð næsta árs
verður frestað um tvo mánuði og
verður hún haldin 25. apríl 2021.
Þetta kemur fram á vef The Guardi-
an. Ákvörðun þessa efnis var tekin
vegna áhrifa heimsfaraldurs Co-
vid-19 á kvikmyndaheiminn. Útgáfa
nýrra kvikmynda hefur að mestu
leyti legið niðri síðustu mánuði og
er þessari seinkun ætlað að koma til
móts við framleiðendur. Tímabilið
sem kvikmyndir þurfa að vera
frumsýndar á til þess að vera
gjaldgengar hefur einnig verið
framlengt um tvo mánuði, fram í
febrúar.
Í tilkynningu frá forseta Ósk-
arsakademíunnar, David Rubin, og
framkvæmdastjóra hennar, Dawn
Hudson, kemur fram að þeir vonist
til að þetta veiti kvikmyndafram-
leiðendum svigrúm til þess að klára
og gefa út myndir sínar, án þess að
þeim hegnist fyrir eitthvað sem eng-
inn ræður við. Þau segja að kvik-
myndir hafi, í yfir heila öld, gegnt
mikilvægu hlutverki huggunar, inn-
blásturs og skemmtunar á myrkum
tímum og það eigi ekki síður við nú.
Kvikmyndir sem einungis hafa
verið sýndar í streymi á netinu
verða einnig gjaldgengar, í fyrsta
sinn, svo lengi sem sýningar á hvíta
tjaldinu hafi verið skipulagðar.
Það sama á við um Bafta-hátíðina.
Henni hefur verið frestað aftur til
11. apríl 2021. Þar verður einnig
tekið við kvikmyndum úr streym-
isveitum og kvikmyndum sem eru
enn án skipulagðs sýningartímabils
í kvikmyndahúsum.
AFP
Seinkun Óksarsverðlaunin verða af-
hent tveimur mánuðum seinna á næsta
ári vegna afleiðinga Covid-19.
Óskarnum seinkað
um tvo mánuði
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI