Morgunblaðið - 03.07.2020, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.07.2020, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 3. J Ú L Í 2 0 2 0 Stofnað 1913  155. tölublað  108. árgangur  STEFNIR Á AÐ SPILA NÆSTA TÍMABIL STEINGERÐ TRÉ OG STEYPU- STYRKTARJÁRN VEL ÚTILÁTNIR DISKAR Á GRÁSTEINI NÝ SÝNING 28 DÖGURÐUR Í ÞISTILFIRÐI 10FÓTBROTINN 27 Sólin skein á höfuðborgarbúa í gær og miðborgin iðaði af lífi þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið þar um, enda náði hitinn rúmlega 15 gráðum. Engum bílum var fyrir að fara á Laugavegi en þess í stað höfðu gangandi vegfarendur nægt rými til að athafna sig. Sumir vildu þó komast hraðar yfir, eins og þessi unga kona sem þeystist um á hjólabretti. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Þeyst um miðborgina á hjólabretti í blíðunni Mistök voru gerð hjá Icelandair þegar rann- sóknarnefnd sam- gönguslysa var ekki samstundis tilkynnt um alvar- legt flugatvik á Keflavíkurflug- velli í október 2016. Þetta segir Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Icelandair. Fyrsta tilkynning um slysið barst nefndinni morguninn eftir, frá Isavia, en í skýrslu nefndar- innar segir að vegna þess hve seint tilkynning barst hafi ekki verið unnt að tryggja hljóðupptökur hljóðrita vélarinnar af atvikinu, og það hafi haft áhrif á rannsóknina. „Við til- kynntum þetta of seint,“ segir Jens. „Það er einfaldast að segja að verk- lagsreglur okkar með tilkynningar svona alvarlegra atvika hafi ekki ver- ið nægilega skýrar.“ Brugðist hafi verið við þessu með því að skerpa á verklagsreglum og brýna fyrir áhöfnum og flugleiðsöguþjónustu, flugmönnum og flugumferðarstjórum að tilkynna alvarleg atvik tafarlaust. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem rann- sókn yfirvalda gerir athugasemd við hve langan tíma hafi tekið Icelandair að tilkynna um alvarlegt flugatvik. Í skýrslu rannsóknarnefndar sam- gönguslysa í Noregi um alvarlegt flugatvik vélar Icelandair á Garder- moen-velli í Noregi árið 2002 var bent á að engin tilkynning hefði borist frá Icelandair eftir lendingu í Ósló, held- ur hefði vélin haldið áfram til Stokk- hólms og þaðan til Keflavíkur áður en íslenskum yfirvöldum hefði verið gerð grein fyrir atvikinu. Segir í þeirri skýrslu að vélin hefði þurft á kyrr- setningu og nákvæmri skoðun að halda strax eftir lendingu í Ósló. Mistök að tilkynna alvar- legt flugatvik ekki strax  Áður gerð athugasemd við seinagang  Verklagi breytt M Icelandair gripið til ... »6 Flug FI431 frá Glasgow 19. október 2016 » Jarðvari vélarinnar fór í gang í 152 metra hæð. » Tólf sekúndum seinna hófu flugmenn að hækka flugið. » Lægst náði vélin 67 metra hæð áður en brugðist var við. » Aðeins munaði átta sek- úndum að vélin brotlenti. Jens Þórðarson Kenneth Peterson, eigandi Columbia Ventures sem byggði upp álver Norðuráls á Grundartanga, tekur þátt í upp- byggingu 40 her- bergja gistiheim- ilis í Reykholti í Biskupstungum. Hann gekk til liðs við viðskipta- félaga sinn, Bjarna Kristján Þor- varðarson, forstjóra lyfjafyrirtæk- isins Coripharma, um uppbygging- una. Saman eiga þeir félagið Stök gulrót ehf. ásamt Jóhanni Guðna Reynissyni. Framkvæmdin var fullfjár- mögnuð í miðjum kórónuveiru- faraldrinum og verður húsið byggt í haust og vetur. Stefnt er að opnun 15. júní á næsta ári. »4 Kenneth Peterson Peterson í gistingu  Tekur þátt í upp- byggingu í Reykholti  „Mér finnst sjálfri ósköp leiðinlegt og dá- lítið sorglegt að bókaútgáfan, bæði prentun og allt sem við kem- ur bókum, sé komin á hendur erlendra aðila. Við erum í góðu sambandi við Forlagið en höfum lítið um þetta að segja,“ segir Guðný Halldórsdóttir, kvikmyndagerðarkona og dóttir nóbelsskáldsins Halldórs Laxness. Bent hefur verið á að með sölu á 70% hlut í Forlaginu til Storytel AB í Svíþjóð færist höfundarverk Lax- ness í erlenda eigu. Sjálf kveðst Guðný þó ekki hafa miklar áhyggj- ur af því. Boðað hefur verið til fundar í stjórn Rithöfundasambands Íslands í dag þar sem ræða á fyrirhuguð kaup Storytel á Forlaginu. „Þeir fé- lagsmenn sem við höfum heyrt í eru mjög óöruggir,“ segir Ragnheiður Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri Rithöfundasambandsins. »14 Höfum lítið um þetta að segja Guðný Halldórsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.