Morgunblaðið - 03.07.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.07.2020, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 2020 ✝ Vigdís Guð-mundsdóttir fæddist 17. október 1928 í Riftúni í Ölf- usi. Hún lést á Hrafnistu í Reykja- vík 6. júní 2020. Foreldrar henn- ar voru Helga Jóns- dóttir, f. 1897, d. 1983 og Guð- mundur S. Sigurðs- son, f. 1896, d. 1987. Vigdís var næstyngst sex systkina, eftirlifandi er Ingi Sigurjón. Látin eru Björn, Sig- rún Pálína og hálfsystur Vigdís- ar, sammæðra, Fanney Breið- fjörð og Benedikta Ketilríður Breiðfjörð Benediktsdætur. Eftirlifandi eiginmaður Vig- dísar er Baldur Júlíus Guð- mundsson, f. 9. júlí 1924. Börn Vigdísar og Baldurs eru: 1) Sigríður Ingibjörg, f. 1955, maki Karl S. Sigurðsson, f. 1955. Synir þeirra eru: a) Baldur Vignir, f. 1979, sambýliskona hans er Sólrún Ingvarsdóttir, b) Jóhann Helgi, f. 1983, maki hans usi, Þorlákshöfn, Hlíðarenda og Hlíð í Grafningi. Hún lauk barnaskólaprófi í sveitinni og fór síðar í Húsmæðraskólann í Reykjavík og einnig til Kaup- mannahafnar í húsmæðraskóla. Hún vann við ýmis störf, m.a. við Sogsvirkjun og á Sauma- stofu Öryrkjabandalagsins. Vigdís kynntist eftirlifandi eiginmanni sínum, Baldri J. Guðmundssyni, 1953 og gengu þau í hjónaband 17. júní 1955. Þau hófu búskap sinn í Drápu- hlíð 30, fluttu í Álftamýri 4 árið 1962 og bjuggu þar í 45 ár. Síð- ustu árin bjuggu þau í Bólstað- arhlíð 41 þar til þau fluttust á Hrafnistu í Reykjavík síðastliðið sumar. Þau hjónin byggðu sér sumarhús við Apavatn 1974 og varð hann þeirra annað heimili yfir sumartímann allt upp frá því. Þau byggðu þar upp fjöl- skylduparadís þar sem fjöl- skyldan hefur átt fjölmargar samveru- og gæðastundir. Vig- dís ræktaði fallegan garð í kringum bústaðinn og undi sér vel í sveitinni. Vigdís var félagslynd kona og mjög gestrisin, hún naut sín best þegar var fjölmenni og líf og fjör í kringum hana. Útför Vigdísar fer fram frá Háteigskirkju í dag, 3. júlí 2020, kl.ukkan13. er Bettina Larsen, c) Benedikt Karl, f. 1989, sambýliskona hans er Bríet Sveinsdóttir, d) Sig- urður Björn, f. 1997, unnusta hans er Margrét Brands- dóttir. 2) Guð- mundur Helgi, f. 1959, maki Harpa Gunnarsdóttir, f. 1962. Dætur þeirra eru: a) Helga, f. 1983, b) Vigdís Eva, f. 1987, sambýlismaður hennar er Vilhjálmur Levi Egils- son, c) Ásthildur Didda, f. 1994, sambýlismaður hennar Halldór Gauti Kristjánsson. 3) Sævar Björn, f. 1965, maki Sigríður Oddný Marinósdóttir, f. 1971. Börn þeirra eru: a) Dagný Björk, f. 1992, sambýlismaður hennar er Hallur Húmi Blumen- stein, b) Brynjar Freyr, f. 1998, unnusta hans er Harpa Rós Gunnarsdóttir. Barnabarnabörnin eru 11 talsins. Vigdís ólst upp í Riftúni í Ölf- Það tínist hratt úr öldunga- ráðinu okkar þessi misserin. Fyrir rúmu ári var það skipað fjórum af okkar allra bestu og nú er aldursforsetinn einn eftir á lífi rétt 96 ára gamall. Á síð- asta ári féllu foreldrar mínir frá og nú var röðin komin að elsku- legri tengdamóður minni, Viggu. Þótt maður viti í hvað stefnir þegar fólk er komið á tí- ræðisaldurinn, þá bar andlát Viggu snögglega að. Leiðir okkar Viggu hafa legið saman síðustu 40 árin. Hún tók vel á móti unglingsstelpunni sem sonurinn fór að bjóða með sér heim. Og hún reyndist mér og fjölskyldunni alltaf vel, var hvetjandi, áhugasöm og elsku- leg. Vigga var góð kona, ættmóð- ir sem fylgdist einstaklega vel með sínum afkomendum og frændgarði öllum. Hún gerði sér far um að hitta eða heyra í sínu fólki reglulega, hvort sem það var búsett hérlendis eða er- lendis. Hún var áhugasöm um fólkið sitt, þjóðfélagsmálin, póli- tíkina, íþróttir og veðrið. Vigga var selskapskona, hélt margar glæsilegar veislur í gegnum árin og hún var ekki lengi að snara góðgæti á borðið þegar gesti bar að garði. Hún elskaði að hafa sig til og klæða sig upp á í sitt fínasta púss til að fara á mannamót. Hún var vandvirk kona og fíngerð, allt handverk lék í höndunum á henni, hvort sem það var saumaskapur, bróderingar, kertaskreytingar eða glerlist. Eftir hana liggja mörg falleg verk sem hún útbjó fyrir fjöl- skylduna. Hún var líka mjög nákvæm og var alltaf með mál- bandið í töskunni sinni ef á þyrfti að halda. Hún hafði gott verkvit og hefði örugglega lært verkfræði ef hún hefði haft tækifæri til slíkrar menntunar á sínum yngri árum. Vigga fylgdist vel með þjóð- málunum og var rammpólitísk. Það eru ófáar rökræðurnar sem hafa verið teknar um þriðja orkupakkann við eldhúsborðið í Bólstaðarhlíðinni á undanförn- um árum. Það var okkur Gumma svo dýrmætt hvað tókst mikill vin- skapur á milli foreldra okkar. Þau höfðu unnið saman við Sogsvirkjun á sínum tíma og könnuðust því hvort við annað þegar við Gummi fórum að rugla saman okkar reytum. Þau áttu saman margar góðar stundir við spilamennsku, mat- arboð, í sveitinni og hinum ýmsu veislum fjölskyldunnar. Vigga og Baldur byggðu upp fjölskylduparadís við Apavatn og þar nutu þau sín best. Vigga ræktaði upp fallegan garð í kringum sumarbústaðinn og hafði þann fallega sið að gróð- ursetja tré fyrir hvert barna- barn sem fæddist í fjölskyld- unni. Það var alltaf gott að koma í sumarbústaðinn og njóta þar samveru með þeim hjónum, alltaf glatt á hjalla og mikið skrafað og framkvæmt. Nú stendur til að stækka og byggja upp fjölskyldusvæðið við Apa- vatn. Okkur vannst ekki tími til að segja Viggu frá því að við hjónin ákváðum í vetur að okk- ar svæði við vatnið fengi nafnið Vigdísarlundur – henni til heið- urs. Við vitum að henni hefði þótt mjög vænt um það og þar munum við gróðursetja falleg tré og runna í minningu hennar á komandi árum. Elsku Vigga mín, að leiðar- lokum kveð ég þig með kær- leika og þakklæti fyrir samleið okkar í lífinu. Hvíl í friði. Hjartans þökk fyrir allt og allt. Þín tengdadóttir, Harpa. Ó, Jesú bróðir besti glymur enn í eyrum okkar bræðra ár- um og áratugum síðar, en amma söng það lágstöfum þeg- ar við gistum hjá henni. Við vorum alltaf velkomnir í Álfta- mýrina, eyddum þar miklum og góðum tíma, og voru jól og ára- mót tilhlökkunarefni á ári hverju. Á sumrin vorum við þar oft eftir fótboltaæfingar, þreytt- ir og svangir. Það var hægt að ganga að því vísu að amma ætti deig í vöfflur, að besta kjötsúpa í heimi yrði á einhverjum tíma- punkti reidd fram, að reykur úr hollustusígarettum og hljóð úr sjónvarpinu af íþróttaleik, hvort sem það var fótbolti, handbolti, frjálsar eða fimleikar, umlyki íbúðina og síðar, þegar við vor- um aðeins eldri, að pólitík yrði rökrædd af hita. Það gerðist samt einstaka sinnum að það vantaði deigið í vöfflurnar og þá var afi hiklaust sendur út í búð. Apavatn er hinn griðastaður ömmu þar sem við vorum það heppnir að verja stórum hluta af æsku okkar, staður sem amma og afi byggðu upp af elju og dugnaði. Verðmætar minningar skóp- ust þar og skapast enn; amma að láta okkur fá pott til að setja á hausinn til að verja okkur fyr- ir kríunum þegar við fórum að tína egg, hesturinn Máni sem í minningunni var eins og hver annar fjölskyldumeðlimur, rab- arbarasulta, berjagrautur, kart- öflugarðurinn og amma að borða augun úr urriða. Á síðari tímum hefur hvergi verið betra að vera um verslunarmanna- helgina en á Apavatni, þar sem fjölskyldan hefur komið saman og gert sér glaðan dag undir góðlátlegu eftirliti ömmu Viggu, sem þó fylgdist með öllum fréttum dagsins og leyfði sér eins og eitt rósavínsglas á kvöldin. Amma var fyrst og fremst góð manneskja sem umvafði fólkið sitt kærleika, hún var áhugasöm um líf okkar og ann- arra, hún var brosmild baráttu- kona fyrir okkar minnstu bræð- ur og systur, hafði sterkar skoðanir og kallaði ekki allt ömmu sína. Amma, þín verður saknað. Baldur Vignir Karls- son, Jóhann Helgi Karlsson, Benedikt Karl Karlsson og Sig- urður Björn Karlsson. Komið er að kveðjustund. Vigdís móðursystir mín var að kveðja þennan heim. Hún náði að fylla 90 árin og rúmlega það líkt og Sigrún móðir mín sem dó í fyrrasumar. Það var eitt ár á milli þeirra systra í aldri og mjög kært alla tíð enda sam- rýndar og góðar vinkonur. Systurnar, sem giftust ungar, voru heilmiklar skvísur sam- kvæmt myndum og frásögnum. Þær voru duglegar að sauma á sig og sína og bökuðu gjarnar hnallþórur þegar veislur voru haldnar og voru jólaboðin einkar minnisstæð. Vigga sótti Hússtjórnarskól- ann á Laugarvatni og eignaðist þar vinkonur til frambúðar sem hittust reglulega. Vigga var fé- lagslynd, lífsglöð og nægjusöm. Hún ræktaði vinskap við sam- ferðafólk sitt og var meðvituð um mikilvægi sannrar vináttu. Fólk sem lifir nánast heila öld upplifir miklar þjóðfélags- breytingar á ævi sinni. Lífs- hlaup Viggu var farsælt. Hún fylgdist vel með málefnum líð- andi stundar. Hún var pólitísk en ekki alltaf ánægð með fram- vindu mála, einkum eftir hrun, og lét það óspart í ljós svo að sumum af yngri fjölskyldumeð- limunum þótti stundum nóg um. Alltaf var þó gaman að spjalla og sköpuðust oft fjörugar um- ræður við eldhúsborðið. Vigga og eiginmaður hennar Baldur voru mjög samtaka í hjónabandi sínu og eiga saman stóran og myndarlegan afkom- endahóp. Vigga var sjómanns- kona framan af og leysti vel verk sín af hendi sem varðaði heimilishaldið. Vigga var sjálf- stæð kona og vílaði ekki fyrir sér hlutina. Hjá Viggu var alltaf kaffi á könnunni og viðeigandi meðlæti, deig í ísskápnum enda alltaf notalegt fyrir þá sem litu við. Heimilið virkaði svipað og kaffihús í hverfinu nú á tímum; miðstöð mennskunnar. Vigga var heimakær og mikil húsmóð- ir. Hún var alltaf elskuleg og áhugasöm um fjölskyldumeð- limi og fylgdist með verkefnum þeirra hverju sinni og velgengni hvers og eins. Hún veitti þeim athygli, uppörvun og ástúð. Hún var sannarlega meðvituð um mátt kærleikans og þar með umhyggjunnar. Apavatn og bústaður Viggu og Baldurs hefur verið sælu- reitur stórfjölskyldunnar til fjölda ára, en þar áttu þau inni- haldsríkar samverustundir. Höfðingjar heim að sækja. Náttúran og vatnið heilla og heila. Við Apavatnið hafa þau verið undanfarin ár með tjald- búðir um verslunarmannahelg- ar með tilheyrandi dagskrá, söng og gleði. Viggu var kátína í blóð borið. Oft var brosað og mikið hlegið. Með þessum orðum vil ég þakka ánægjuleg minningar- brot og skemmtileg samskipti í gegnum tíðina. Hvíl þú í friði, elsku frænka. Helga G. Halldórsdóttir. Vigdís Guðmundsdóttir Hlýja, bros, kær- leikur og umhyggja eru orðin sem lýsa Hendrik Skúlasyni vini mínum og sam- starfsfélaga í Breiðabliki best. Leiðir okkar lágu saman í Smáranum, íþrótta- svæði Breiðabliks, þar sem hann var að fylgja yngstu dóttur sinni, Erlu, eftir og ég var að rífa kjaft eins og venjulega. Hæglátur sem Hendrik var þá var fátt sem benti til þess að við yrðum jafn miklir félagar og við síðar urðum. Við sátum saman í meistara- flokksráði kvenna og fylgdum stelpunum okkar eftir út um allt land. Þegar Erla varð eldri og sá sjálf um að koma sér á æfingar og Hendrik Skúlason ✝ Hendrik Skúla-son fæddist 6. maí 1941. Hann lést 12. júní 2020. Útför hans fór fram 25. júní 2020. í leiki sá Hendrik ekki ástæðu til að hætta að sinna ung- viðinu og átti hann fjölmargar stundir við Gull- og silfur- mótin eftir að Erla var komin í meist- araflokk. Breiðablik, og knattspyrna kvenna almennt, býr að því að Hendrik var óþreytandi með myndbandstöku- vélina og sennilega átti hann eitt mesta safn lifandi mynda frá stúlknaleikjum og –mótum frá árunum í kringum 1985-1990. Myndavélin var alltaf á lofti. Það er með miklum söknuði sem ég kveð Hendrik Skúlason en ofar er þó þakklæti fyrir að hafa fylgt honum um stund og átt hann að vini. Elsku Íris, Hjördís, Anna, Agla, Sigurjón og Erla, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Ingibjörg Hinriksdóttir (Ingó). ✝ Lára Ragnhild-ur Bjarnadótt- ir, Lóló, var fædd í Haga í Austur- Húnavatnssýslu þann 17. apríl 1936. Hún lést 1. mars 2020. Foreldrar henn- ar voru hjónin Elín- borg Teitný Björnsdóttir f. 27. maí 1917, d. 2. maí 1971 og Bjarni Jónsson f. 14. maí 1906, d. 25. apríl 1990. Þau skildu. Seinni maður Elínborgar var Jón Guðmundur Benedikts- son og bjuggu þau í Höfnum á Skaga. Lóló var menntaður snyrtifræðingur og heilbrigð- isgagnafræðingur. Hún vann á Landakoti, síðar við versl- unarstörf og bókhald en seinni árin sem læknaritari bæði á Reykjalundi og á heilsugæslu Mosfellsbæjar. Sammæðra systkini Lólóar eru Birna Stein- unn Jónsdóttir f. 1945 og Bene- dikt Jónsson f. 1947, d. 1999. Systkini samfeðra eru Björg f. 1944, Jón f. 1946, d. 1990, Sig- ríður Kristín f. 1948, Ragnar Páll f. 1950, Sigur- laug f. 1951 og Lár- us Hagalín f. 1956. Eiginmaður Lólóar var Grímur Valdemar Sigurðs- son f. 1935, d. 1990. Þau giftu sig 13. apríl 1958. Þau eignuðust soninn Sigurð Jón árið 1961. Hann er gift- ur Rósu Sveins- dóttur f. 1961 og eiga þau þrjú börn, Sólveigu Láru f. 1982 í sambúð með Friðriki Arnari Helgasyni, Grím Snæland f. 1987 og Elínborgu Rós f. 1994. Langömmubörnin eru tvö, Benjamín Thor f. 2016 og Kar- lotta Rós f. 2019. Lóló var stödd á Gran Can- aria með sínum góða vini Sig- urði Hreiðari Hreiðarssyni þeg- ar kallið kom. Hún verður jarðsungin frá Lágafellskirkju í Mosfellsbæ í dag, 3. júlí 2020, kl. 13. Streymi frá athöfninni verður á www.sonik.is/lolo og útvarp- að verður við kirkjuna á tíðni FM 106,1. Við höfðum vitað hvort af öðru síðan við vorum nálægt tvítugu, en kynntumst ekki í raun fyrr en orðið var nokkuð framorðið hjá okkur báðum og rugluðum ekki saman reytum í eiginlegum skiln- ingi. Bjuggum aldrei saman nema þegar við ferðuðumst saman – sem var nú bara blessunarlega oft – en gistum hvort hjá öðru þegar það hentaði, vorum sálu- félagar og trúnaðarvinir. Við gát- um talað um allt og vissum að öll leyndarmál voru óhult; ég held að við höfum aldrei rifist eða reiðst hvort öðru þessi 5 ár sem gæfan gaf okkur saman. Eins og hún sagði stundum: Þetta er of gott til að geta enst. Afrísku Spánareyjar voru okk- ur báðum kærar. Þó átti Gran Canaria þar stærri hlut. Héldum þar til að mynda upp á áttræð- isafmælin okkar. Með hæfilegu árabili. Þangað fórum við nú á útmánuðum eins og til stóð. Höfðum fáa daga dval- ið þegar hún varð snögglega veik og þurfti sjúkrahúsdvöl. Síðan áttum við tíu yndislega daga sam- an þó augljóslega væri af henni dregið. En við nutum lífsins og staðarins eftir föngum. Eftir á að hyggja held ég að hún hafi vitað að hverju dró og hún notaði tím- ann til að leggja mér lífsreglurn- ar. Meðal annars að segja mér hvernig hún vildi hafa jarðarför- ina sína. Hvers vegna var henni það ofarlega í huga? Svo kom fólkið hennar, Siggi og Rósa, til okkar þarna úti og það þótti henni einstaklega vænt um. En áfram dró af henni sem endaði með því að hún kvaddi heiminn tæpum tveimur sólar- hringum síðar. Ég fullyrði að hún var sátt við það, eins og komið var. Lífsfylling hennar og auga- steinn var kominn til hennar. Og var þar í heimi sem henni þótti gott að vera og hafði hlakkað til að heimsækja einu sinni enn. Næstu dagar þar á eftir eru mér í hálfgerðri þoku. Ég ráfaði um staðinn og reyndi að gera eitthvað af því sem við höfðum planlagt að gera saman. Sætið við hlið mér í flugvélinni á leiðinni heim var nöturlega autt. Í dögum talið er ekki langt síð- an þetta gerðist. En mér finnst það óralangur tími. Eitt af því sem hún sagði við mig á stund okkar milli stríða var á þá leið að við værum orðin svo gömul að við yrðum að vera við því búin að annað félli frá. En þá ætti það sem eftir lifði að minnast þess góða sem við áttum saman. Það yrði ekki frá okkur tekið. En að öðru leyti halda áfram að lifa lífinu og gera úr því það besta sem kostur væri. Það ætla ég að gera, Lára mín ljúf. Minningin um árin með þér gerir mér það auðveldara. Sigurður Hreiðar. Lára Ragnhildur Bjarnadóttir Minningarvefur á mbl.is Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að- gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum.         þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber       ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát Minningar og andlát

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.