Morgunblaðið - 03.07.2020, Side 10

Morgunblaðið - 03.07.2020, Side 10
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hjólreiðar Frá heimsókn hjólreiðahópsins Team Rynkeby til Bessastaða. Hjólreiðahópurinn Team Rynkeby leggur af stað á morgun í hringferð um landið til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna, SKB. Um góðgerðarhjólreiðar er að ræða sem hafa árlega farið fram frá Dan- mörku til Parísar, en vegna kórónu- veirufaraldursins var ferðinni frestað í ár og þátttakendur frekar hvattir til að hjóla innanlands. Lagt verður af stað frá Barnaspít- ala Hringsins kl. 10 á morgun, í lög- reglufylgd. Rósa Guðbjartsdóttir, for- maður SKB, mun halda tölu áður en hópurinn hjólar af stað. Team Rynkeby á Íslandi mun hjóla 850 km í kringum landið til 11. júlí nk. Team Rynkeby er stærsta evrópska góðgerðarverkefnið, þar sem þátttak- endur hjóla á hverju ári 1.200 km leið frá Danmörku til Parísar til styrktar langveikum börnum og fjölskyldum þeirra. Team Rynkeby Ísland var stofnað árið 2017 með það að mark- miði að hjóla í söfnunarátaki Team Rynkby til styrktar SKB. Á síðast- liðnu ári söfnuðust 23,6 milljónir kr. Alls söfnuðu öll Team Rynkeby- liðin um 1,5 milljörðum kr. í fyrra. Unnt er að heita 1.500 krónum á Team Rynkeby með því að hringja í styrktarnúmerið 907-1601, 3.000 kr. með því að hringja í 907-1602 og 5.000 kr. í númerið 907-1603. Hjóla hringinn í kringum landið  Góðgerðarhjólreiðar Team Rynkeby 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 2020 Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is Vefverslun komin í loftið! mostc.is Gerið verðsamanburð FULL BÚÐ AF NÝJUM G FALLEGUM VÖRUM 4.990 kr. Túnika 7.990 kr. Regnjakkar O Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Kátur kvennahópur tók nýlega þátt í skemmtilegu verkefni sem snerist um það að borða góðan dögurð og gefa honum síðan ítarlega umsögn. Gestgjafarnir voru hjónin Hildur Stefánsdóttir og Sigurður Guð- mundsson í Holti í Þistilfirði þar sem þau reka gistiheimilið Grástein auk sauðfjárbúskapar. „Nú langar okkur til að auka þjón- ustuna og höfða líka til heimafólks í byggðarlaginu og þá varð til sú hug- mynd að bjóða upp á dögurð eða „bröns“ á laugardagsmorgnum milli klukkan 11 og 14. Við ákváðum að prufukeyra dögurðinn fyrst á nokkr- um konum og fá þær til að rýna ræki- lega í alla framkvæmd og veitingar og gefa okkur skriflega umsögn og gagnrýni í lokin, því betur sjá augu en auga,“ sagði Hildur kankvís. Konurnar sem boðnar voru mættu í brönsinn á laugardagsmorgni, til- búnar að rýna til gagns í veiting- arnar, og fengu höfðinglegar mót- tökur hjá húsbændum. Boðið var upp á vel útilátinn disk fyrir hvern gest, hlaðinn góðgæti eins og heimabök- uðu súrdeigsbrauði, eggjum og beik- oni, forystupylsum, ostum og ávöxt- um. Sultutau, pestó og fleira var á borðum, að ógleymdu brennheitu kaffi og tesopa. Sætur biti í lokin setti svo punktinn yfir i-ið. Girnilegur dögurður Pakksaddar frúr fengu svo rýni- seðil á borðin til sín þar sem þær fóru rækilega yfir dögurðinn, gæði, magn og tegundir og skráðu athugasemdir sínar. „Ég mun svo bregðast við umsögn kvennanna í þessum rýniseðlum því markmið okkar hér á Grásteini er auðvitað að bjóða upp á hinn full- komna dögurð og frábært að fá til þess hjálp frá konum á ýmsum aldri,“ sagði gestgjafinn Hildur. Næsta laugardag eftir prufu- keyrslu rýnihópsins var svo opið í dögurðinn og voru hjónin Hildur og Sigurður ánægð með viðtökurnar og aðsóknina. „Já, þetta fór vel af stað þennan fyrsta laugardag, margir nýttu sér þjónustuna og við munum halda áfram næstu þrjá laugardaga, sjáum svo hvað setur,“ sögðu hús- bændurnir Hildur og Sigurður á gistiheimilinu Grásteini í Þistilfirði. Hildur segir að júnímánuður hafi verið nokkuð góður í ferðaþjónust- unni og bókanir núna fleiri en á sama tíma í fyrra. Dömur rýna í dögurð  Kvennahópur hittist í Holti í Þistilfirði og snæddi dögurð  Einnig í boði fyrir íbúa og ferðafólk á laugardögum Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Dögurður Konur skála fyrir góðum dögurði. Hjónin Sigurður Guðmundsson og Hildur Stefánsdóttir fyrir miðju. Pétur Magnússon petur@mbl.is „Auðvitað stefnum við á að komast í fyrsta flokkinn,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra, en á þriðjudaginn greindi Morgunblað- ið frá því að Ísland væri í öðrum flokki af þremur í skýrslu bandaríska utan- ríkisráðuneytisins um aðgerðir gegn mansali. Þetta þýðir að ekki sé talið að stjórnvöld uppfylli lágmarksskilyrði um aðgerðir gegn mansali, en hafi sýnt viðleitni við að uppfylla þau. „Það er þó já- kvætt að skýrslan fjalli með mjög já- kvæðum hætti um það sem hefur ver- ið gert hér á landi undanfarið, bæði hvað varðar fjárveitingu, eflingu lög- reglunnar, áherslur stjórnvalda í að- gerðum gegn mansali og fleira,“ segir Áslaug Arna. Hún segir það hafa ráðið úrslitum að enginn hafi verið ákærður fyrir mansal á síðustu árum, en mikilvægt sé að kanna hvort megi styrkja rannsókn mansalsmála og leita skýringa hvers vegna þessi mál komist ekki inn á borð ákæruvaldsins. „Það er mikilvægt að fá það allt upp á yfirborðið,“ segir Áslaug. Ýmsar aðgerðir Áhersluskjal stjórnvalda gegn man- sali var kynnt í mars 2019, en í kjölfarið samþykkti ríkisstjórn að stofna form- legan samráðshóp til að bera ábyrgð á framkvæmd aðgerða á þessu sviði. Samhliða því voru settir af stað aðgerðarhópar til að útfæra ýmsa hluta aðgerðarinnar. Hóparnir eru þrír, sá fyrsti snýr að forvörnum, annar að aðstoð, stuðningi og vernd fyrir fórnarlömb, og sá þriðji að rannsókn og saksókn. Ríkisstjórnin hefur þá varið fimm milljónum í Rauða krossinn, til stuðn- ings við forvarnir og fræðslu um man- salsmál. Þá hafa stjórnvöld samið við Bjarkarhlíð um að vera miðstöð sem þolendur ofbeldis og mansals geti leitað til, og verði falið það hlutverk að sam- eina verklag og viðbrögð þegar grunur kemur upp um mansal, auk þess að sinna forvörnum og fræðslu, og stuðla að vitundarvakningu um málaflokkinn. „Síðan er í gangi vinna við endur- skoðun á ákvæði hegningarlaga þegar litið er að mansali. Það er á þingskrá minni fyrir næsta þing,“ bætir Áslaug við. Í skýrslunni segir að erfitt sé að átta sig á umfangi mansals á Íslandi, þar sem erfiðlega hafi gengið að útvega opinbera tölfræði um slík mál. Áslaug segist vona að það sé til bóta, en áhersla sé á að ná að halda utan um mál sem koma upp hérlendis og geta brugðist við atvikum með réttum hætti þegar þau koma upp. „Fyrst og fremst er það mjög mik- ilvægt að hérna sé einn aðili sem ber ábyrgð þegar þetta kemur upp svo heildarviðbrögðin séu heildstæð. Bjarkarhlíð mun gegna hlutverki þess aðila, sem samhæfingarmiðstöð á sviði ofbeldis- og mansalsmála.“ Að lokum segir Áslaug að stofnað hafi verið teymi innan Útlendinga- stofnunar með það að markmiði að skýrt greiningarferli verði til staðar og verklag verði endurbætt til að grípa til aðgerða til að aðstoða hugsanleg fórnarlömb mansals. „Ég bind vonir við að vegna þessa teymis getum við enn frekar borið kennsl á fórnarlömb,“ segir Áslaug. Stefnt að því að komast í fyrsta flokk  Dómsmálaráðherra bregst við nýrri mansalsskýrslu Bandaríkjamanna Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.