Morgunblaðið - 03.07.2020, Side 22

Morgunblaðið - 03.07.2020, Side 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 2020 Atvinnuauglýsingar Álnabær Verslunarstarf Starfskraftur óskast í verslun okkar í Síðumúla 32, Reykjavík. Vinnutími frá kl. 10-18 eða kl. 13-18 alla virka daga. Áhugasamir sendi umsókn á ellert@alnabaer.is Félagsstarf eldri borgara Árskógar Smíði, útskurður, tálgun, pappamódel með leiðb. kl. 9-16. Hádegismatur kl. 11:30-13. Kaffisala kl. 14:45-15:30. Allir velkomnir í Félagsstarfið, sími 411-2600. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Tæknilæsi kl. 09:00- 11:30. Morgunkaffi í handavinnustofu kl. 10:00. Tæknilæsi kl. 13:00- 15:30. Opið kaffihús kl. 14:15-15.00. Sjúkraþjálfari með einfaldar stykt- ar og þolæfingar kl. 13, allir velkomnir. Erum að fara í sumarferð í Hveragerði fimmtudaginn 9. júlí, hvetjum alla að koma með, skráning í ferðina fer fram í síma 535-2760. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Blöðin, spjall og kaffi kl. 8:50-11. Listasmiðja opin kl. 9-16. Hreyfiþjálfun með sjúkraþjálfara kl. 10:30- 11:30, aðgangur ókeypis. Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Aukin vellíðan kl. 13.30, aðgangur ókeypis. Síðdegiskaffi kl. 14:30. Við vinnum eftir samfélagssáttmálanum og þannig tryggjum við góðan árangur áfram. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790 Gerðuberg 3-5 Kl. 08:30-16:00. Opin handavinnustofa kl. 10:00- 12:00. Prjónakaffi. Hraunbær 105 Kl. 9:30-11:30 fyrirlestur byggður á jákvæðri sálfræði. Farið yfir góð ráð og hagnýtar leiðir til að stuðla að jákvæðum tilfinn- ingum, jákvæðri hegðun og jákvæðum hugsunum. Fyrirlesari er Ingrid Kuhlman, meistari í hagnýtri jákvæðri sálfræði. Kl. 13:00 dans- leikfimi með Auði Hörpu. Dansinn hentar öllum og sporin eru létt og einföld. Allir velkomnir, aðgangur ókeypis. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Útvarpsleik- fimi kl. 9:45. Gönguferð kl. 13:30 Korpúlfar Gönguhópar leggja af stað klukkan 10:00 frá Borgum og inni í Egilshöll. Sumarnámskeið í dansi verður annan hvern föstudag kl. 14:00. Sviðslistahópurinn Strengur verður með leiksýninguna Endalausir þræðir í dag kl. 14 í Borgum, við hvetjum alla til að mæta. Samfélagshús Sumarhópurinn okkar fer í ferð í Grasagarðinn og eru allir velkomnir með. Þar fá þau fræðslu um garðinn kl. 12. Svo er kíkt inn á kaffi Flóru. Næsta mánudag er hjá okkur hláturjóga kl. 14 og hvetjum við ykkur til að mæta í það og hlæja með okkur! Samfélagshúsið Vitatorgi Við byrjum daginn á hressandi dansleik- fimi klukkan 9:30 í setustofu. Klukkan 11:30 er ferð í Grasagarðinn þar sem við munum rölta um með leiðsögn og enda á kaffihúsinu Flóran þar sem við fáum tilboð á kaffi og köku. Bingóið verður á sínum stað í matsal á Vitatorgi og hefst klukkan 13:30. Vöfflukaffi í framhaldi af því. Verið öll velkomin til okkar á Lindargötu 59. Seltjarnarnes Kl. 10:30 er kaffispjall í króknum. Kl.11:00 er leikfimi í salnum á Skólabraut. Kl. 13:30 er Samsöngur. Kl.14:00 er spurningar gleði og happy hour. Hlökkum til að sjá ykkur. Eigið góðan dag og góða helgi. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-14. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Bíó kl. 13.00 (verður í boði með auglýsingu í Selinu). Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílar Toyota Auris til sölu Nýskr. 11/2007. Ek. 82 þús. km. Bensín, beinsk., 5 gíra, 4ra dyra, dökk blár. 4 ný heilsársdekk/vara- dekk. Næsta skoðun 2021. Smurbók(/þjónustubók. Reyklaust ökutæki. Topp eintak. Verð kr. 690.000. Upplýsingar í síma 899 2599. Smá- og raðauglýsingar Vantar þig pípara? FINNA.is Atvinnublað Morgunblaðsins fimmtudaga og laugardaga Er atvinnuauglýsingin þín á besta stað? Sendu pöntun á atvinna@mbl.is eða hafðu samband í síma 569 1100 Allar auglýsingar birtast í Mogganum, á mbl.is og finna.is ✝ Þau mistökurðu við vinnslu minningar- greina í blaðinu í gær að röng mynd og æviágrip birtist með eftirfarandi minningargreinum. Greinarnar eru birtar aftur með réttu æviágripi og mynd. Morgunblaðið biður alla hlutaðeigandi inni- lega velvirðingar á mistökunum. Ragnhildur Kristborg fæddist á Eskifirði 4. apríl 1950. Hún lést á heimili sínu á Fáskrúðs- firði þann 21. júní. Foreldrar hennar voru þau Kristinn Berg Pétursson sjó- maður og seinna matráður hjá ameríska hernum á Keflavíkur- flugvelli og Vilborg Björnsdóttir húsfreyja. Ragnhildur var þriðja yngst í aldursröð af 13 systkinum. Hún átti 6 alsystkini og 6 hálfsystk- dóttir, hún er gift Einari Guð- mundi Þorvaldssyni. Börn þeirra eru Aníta, Telma Ósk og Þorvaldur. Telma Ósk á eitt barn hann Aron Einar. 2) Rík- arður Berg Bragason, hann er kvæntur Ayusintu Dana Lestari. Börn eru þau Kári, Ragna Lind, Hafþór Berg, Rakhavalera, Freyja Rún, Brynjar Ario. 3) Þorbjörn Ingi Bragason, sam- býliskona hans er Hrafnhildur Sigurbjörnsdóttir. Börn eru þau Kristján Ari, Guðrún María, Hafliði Hallur, Bergrós Mía, Benedikt Ingi og Guðbergur Nói. 4) Jack Kristinn Simpson, hann er kvæntur Estin Simpson. Börn eru Auðunn Ezra, Eva Lovísa, Lára Björg og Lilianne Fjóla. 5) Díana Lynn Simpson, hún er gift Kristjáni Þórði Snæ- bjarnarsyni. Börn eru Ilmur Líf, Ragnhildur Ósk og Snæbjörn. Útför Ragnhildar fór fram í kyrrþey frá Eskifjarðarkirkju. Aðstandendur þakka hlýhug og stuðning sem sýndur hefur verið við andlát Ragnhildar. ini. Nöfn þeirra eru í aldursröð, Svan- hildur Sigríður Kristinsdóttir, Haukur Zophanías- son, Erna Hafdís Berg Kristins- dóttir, Kristín Árna Zophaníasdóttir, Birna Zophanías- dóttir, Ragnar Gunnsteinn Zoph- aníasson, Björk Hafrún Kristinsdóttir, Örn Kristinsson, Helgi Grétar Krist- insson, Unnar Kristinsson, Steinunn Guðný Kristinsdóttir og Eygló Hrönn Kristinsdóttir. Ragnhildur giftist tvisvar, fyrri eiginmaður hennar var Bragi Benteinsson fyrrverandi lögreglumaður. Hún kynntist seinni eiginmanni sínum í Kefla- vík honum Jackaray Simpson hann starfaði sem flugvirki hjá bandaríska hernum, hann lést 1986. Börn Ragnhildar Kristborgar eru 1) Guðbjörg Linda Braga- Elsku mamma, að skrifa minningargrein um þig núna er mjög óraunverulegt, þú á fullu að koma þér fyrir í nýju fínu íbúð- inni þinni með glæný húsgögn sem var nýbúið að kaupa. Þú varst svo spennt að flytja aftur austur á land, þú hafðir bú- ið þar í átta daga þegar höggið stóra kom, mamma farin. Hvern- ig gat þetta gerst? Lífið var ekki alltaf dans á rós- um hjá þér en mikið áttum við yndislegar stundir áður en þú fórst austur, fá knúsin og koss- ana, heyra elskan mín í lok allra símtala er svo dýrmæt minning sem maður heldur í. Ég var voðalega mikil mömmustelpa þegar ég var yngri, vildi bara alltaf vera heima með mömmu, fannst algjör óþarfi að vera stunda einhver diskótek og þannig ef ég gat ver- ið heima í kósý með mömmu eða hangið yfir henni þegar hún fékk gesti. Við vorum alltaf að bralla eitthvað saman ég og þú en ég held að það hafi verið akkúrat eins og þú vildir hafa það, við tvær saman að brasa eitthvað. Þú varst rosaleg glingurkona og þar erum við ólíkar því ég er andstæðan við það, þú vilt eiga mikið af alls konar dóti en ég vil eiga lítið dót, oft sagði ég, mamma eigum við ekki bara henda þessu, þú þarft ekkert á þessu að halda en neibb það mátti aldrei, þótt þú vissir að þú myndir aldrei nota hlutinn í framtíðinni. En maður brosir bara yfir því núna. Söknuðurinn er mikill, að missa pabba þegar ég var lítil stelpa og svo missa mömmu núna. Þetta er erfitt og sárt en mikið svakalega er ég þakklát fyrir tímann okkar saman und- anfarnar vikur. Þú komst reglu- lega til mín í heimsókn, við sátum og hekluðum, hlustuðum á tónlist og höfðum það huggulegt í róleg- heitunum og spjölluðum um heima og geima. Elduðum góðan mömmumat og áttum dásamleg- ar stundir. Ég veit að þú varst þakklát fyrir þennan tíma líka. Þegar ég skutlaði þér á flugvöll- inn og horfði á þig labba út í flug- vél varstu alltaf að snúa þér við og vinka aftur og aftur bless. Ég veit að þú leitaðir mikið í trúna og sér maður það þegar maður er að ganga frá íbúðinni þinni og fara yfir dótið þitt, aldr- ei hafði ég spáð mikið í það en trúin hjálpaði þér. Þú ert núna komin til pabba og ég veit að hann tekur vel á móti þér. Guð geymi þig elsku mamma og takk fyrir allar góðu stund- irnar okkar saman, mun sakna þín alltaf. P.S. Bið að heilsa pabba og þú mátt knúsa hann fast frá mér, veit að fangið hans verður hlýtt. Þín dóttir Díana Lynn. Elsku amma. Þessir tímar hafa verið mjög erfiðir. Þú varst tekin allt of snemma frá okkur. En mikið er- um við ánægðar að hafa eytt síð- ustu tveim mánuðum með þér og verðum ævinlega þakklátar fyrir það. Við systurnar vorum búnar að plana að koma austur og hitta þig í júlí og eyða tíma með þér eins og við vorum búnar að tala um. Þú varst svo spennt að heyra að við ætluðum að koma í heim- sókn til þín og skoða nýju fallegu íbúðina þína. Þú varst svo stolt af sjálfri þér að koma þér úr að- stæðunum sem þú hefur verið í í langan tíma og byrja nýjan kafla fyrir austan. Við verðum alltaf þakklátar að hafa verið hluti af nýja kaflanum þínum og munum alltaf vera stoltar af þér, elsku amma okkar. Við munum alltaf muna eftir því þegar þú komst í ferminguna okkar og vorum við mjög ánægð- ar að þú komst til að fagna með okkur. Við náðum að taka svo margar myndir saman og erum mjög þakklátar að geta litið á þær í framtíðinni og muna eftir góðu tímunum sem við áttum á þessum degi. Svo munum við aldrei gleyma því þegar við heyrðum í þér árið 2018 og kíktum í heimsókn. Við sögðum þér hvernig okkur var að ganga í framhaldsskóla og maður sá stoltið á andlitinu þínu. Svo fórum við systurnar í bíltúr til Keflavíkur til þess að skoða íþróttabúð sem var að loka og enduðum á að kaupa okkur jakka, áður en við fórum heim ákváðum við að stoppa í Nettó og kaupa okkur hressingu. Þar varst þú í bílnum á móti okkur. Þegar við vorum á leiðinni inn fannst okkur þú vera svo kunn- ugleg og trúðum því ekki að þetta værir þú. Vorum ekki bún- ar að sjá þig í dálítinn tíma þann- ig að það var mjög gaman að hafa hitt þig og tala aðeins saman áð- ur en við þurftum að fara aftur til Reykjavíkur. Við munum alltaf muna eftir þessum tímum og verðum við alltaf ánægðar þegar við tölum saman um þessa tíma, þetta eru svo góðar minningar sem við eigum. Þú varst tekin of snemma frá okkur, einmitt þegar lífið var komið á góðan hraða og þú varst umkringd fjölskyldunni þinni, en við vitum að þú verður alltaf með okkur. Við söknum þín svo mikið, elsku amma. Hvíldu í friði. Ilmur Líf og Ragnhildur Ósk. Það er sárt að þurfa að kveðja þig, kæra tengdamamma. Við höfum átt margar góðar stundir saman á þessum rúmu 23 árum frá því ég fór að heimsækja ykk- ur austur í Biskupstungur að elt- ast við dóttur þína. Ég minnist gestrisni þinnar alla tíð, kalkún- ninn um jólin, þegar við Díana nældum okkur iðulega í bita að næturlagi. Hjá ykkur lærði ég að njóta kalkúnasamlokunnar að bandarískum sið. Það var alltaf góður matur á borðum hjá þér og þú sýndir börnunum þínum og mér alltaf svo mikla væntum- þykju og ást. Það var alltaf mjög mikið hleg- ið þar sem þú varst og einkennir hlátur og gleði þessar samveru- stundir. Þú varst hörkudugleg kona, hafðir mikla ánægju af því að hafa mikið dót í kringum þig og fékkst nú oft að heyra að það væri nú svolítið of mikið á köfl- um. Varst nú ekkert alltof kát eftir að við Díana fluttum dótið úr geymslunni yfir í nýja geymslu, í einum af flutningunum, en þá ákváðum við að taka svolítið til og henda óþarfa hlutum. Þegar ég lít yfir farinn veg er eins og svo oft í lífinu ýmislegt sem maður hefði viljað hafa með öðrum hætti. Það er þannig að lífið er ekki alltaf dans á rósum og þú barðist við mörg vandamál sem mér finnst ótrúlegt að skuli hafa þurft að lenda á einni og svo góðri og hjartahlýrri manneskju. Það sem situr eftir verða allar þær ynd- islegu minningar sem við áttum og verða ekki teknar frá okkur. Það var okkur ómetanlegt að fá að njóta síðustu 8 vikna með þér. Að fylgjast með þér ekki bara að taka ákvörðun um að breyta og bæta líf þitt heldur að fram- kvæma það var hreint út sagt magnað. Það var viljastyrkurinn sem kom þér á miklu betri stað. Það var fyrir viljastyrkinn sem varð til þess að þessar 8 vik- ur urðu svo góðar, matarboð, samtöl og samvera sem verða okkur svo dýrmæt héðan í frá. Að sjá þig á nýju heimili þar sem allt gekk svo vel, þú glamp- aðir af stolti og ánægju með lífið. Það er erfitt að hafa ekki náð að heimsækja þig á nýja heimilið en munaði þar eingöngu nokkr- um vikum þar sem við vorum bú- in að skipuleggja ferð austur. Ég er svo stoltur af þér. Mikið hefði verið gaman að fá að njóta fleiri gæðastunda með þér, kæra tengdamamma. Hvíldu í friði, elsku Ragnhildur mín. Kristján Þórður Snæbjarnarson. Ragnhildur K. Kristinsdóttir Simpson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.