Morgunblaðið - 03.07.2020, Page 24

Morgunblaðið - 03.07.2020, Page 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 2020 Hæ sæti – hvað vilt þú borða! Bragðgott, hollt og næringar ríkt Smáralind, Kringlunni, Spönginni, Reykjanesbæ og Akranesi – dyrabaer.is ÚTSÖLUSTAÐIR: Byko, Selfossi | Garðheimar | Heimkaup |Dýrabær 50 ára María er fædd og uppalin í Hörgárdal en býr núna í Reykjavík. Hún er stúdent frá MA og íslenskufræð- ingur frá HÍ. Í aldar- fjórðung hefur hún starfað sem íslenskukennari í fram- haldsskóla, þar af 20 ár í Mennta- skólanum í Reykjavík. Þar er hún jafnframt félags- og forvarnafulltrúi. Maki: Ágúst Ólafsson, f. 1971, íþróttakennari við MR. Börn: Íris Björk Ágústsdóttir, f. 2001, fornmálanemi í MR, og Ásta Björk Ágústsdóttir, nemi í Hlíðaskóla, f. 2005. Foreldrar: Jórunn Sigtryggsdóttir, f. 1950, d. 2002, og Kristján Ingi Her- mannsson, f. 1939, búsettur á Akur- eyri. Þau voru bændur í Lönguhlíð í Hörgárdal. María Björk Kristjánsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Reyndu að hafa alla þræði í hendi þér áður en þú ræðst í þær framkvæmdir sem þig dreymir um. Síðdegis gerist eitt- hvað skrýtið og skemmtilegt. 20. apríl - 20. maí  Naut Kláraðu allt sem fyrir liggur áður en þú byrjar á nýjum verkefnum. Njóttu samt lofsins því þú átt það skilið. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er ástæðulaust að fá sektar- kennd yfir öllu sem þú gerir fyrir sjálfan þig. Meira en er raunsætt, heilbrigt eða skyn- samlegt. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú munt eiga í byrjunarörðugleikum þegar þú hefst handa við stórt verkefni sem þér verður falið. En það er bara tímabundið ástand. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Gerðu ráð fyrir einherju óvæntu frá yfirmanni þínum. Fólk er ekki að reyna að ergja þig þó að það geri mistök. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Takirðu áhættu þarftu líka að vera maður til að taka afleiðingunum. Skoðaðu mál þín á raunsæjan hátt og þá skilurðu betur viðbrögð þín og getur breytt þeim. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú skalt hafa það markmið þennan mánuðinn að vera skýr í samskiptum. Hraðar er ekki betra og hægar er ekki verra. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú hefur náð takmarkinu sem þú stefndir að síðustu vikurnar. Allir munu njóta þess að fá hól frá þér í dag og heillandi persónuleiki þinn sýnir öllum hve einlægur þú ert. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Fátt jafnast á við skemmtilegar umræðustundir í hópi góðra vina. Skoðaðu hvert mál vandlega áður en þú tekur af- stöðu. Láttu stoltið ekki hindra þig núna því þú þarft á hjálp að halda. 22. des. - 19. janúar Steingeit Eigirðu erfitt með að gera upp hug þinn getur reynst gagnlegt að leita ráða hjá öðrum. Mundu bara að ekki eru allir við- hlæjendur vinir. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú gætir fengið tækifæri til að láta gott af þér leiða í dag. Gefðu þér tíma til að rækta sjálfan þig. 19. feb. - 20. mars Fiskar Ofurkraftur þinn er samúð. Sökum þessa getur þú forðast neikvæðar aðstæður með því að loka á hvaðeina sem er niður- drepandi. H örður Felix Harðar- son minnist upp- vaxtaráranna á Sel- tjarnarnesi með miklum hlýhug. Þar óx hann úr grasi frá þriggja ára aldri og var byggðin á Nesinu þá enn að taka á sig mynd. „Mikið var af opnum svæðum og algjör veisla fyrir krakka að alast þarna upp við mikið frelsi og ævintýri. Við kom- umst upp með að djöflast og leika okkur í nýbyggingum, hoppa fram af húsþökum og heyja alls konar stríð þar sem bogar og örvar komu við sögu. Sterkustu minningarnar eru þó tengdar grasvelli sem börn- in kölluðu Diddó, þar sem við vor- um í fótbolta alla daga og langt fram á kvöld, og gerðum varla hlé á leiknum nema rétt til að skjótast heim til að ná í eina samloku.“ Hörður Felix gekk í Mýrarhúsa- skóla og Valhúsaskóla en fór að því loknu í Verzlunarskóla Íslands. Að loknu stúdentsprófi tók við laga- nám við Háskóla Íslands og útskrif- aðist hann árið 1995. Hörður hóf þá störf sem fulltrúi hjá Lögmönnum Mörkinni, nú Mörkinni lögmanns- stofu. Árið 1999 fór Hörður til náms við Háskólann í Exeter í Englandi og lauk þar mastersprófi (LLM) í Evrópurétti ári síðar. Að námi loknu varð Hörður einn eig- enda Markarinnar lögmannsstofu og hefur starfað þar alla tíð síðan, að undanskildu 8 mánaða tímabili þegar hann var yfirlögfræðingur Glitnis banka. Á árunum 2003 til 2005 nam Hörður samkeppnisrétt við King‘s College í Lundúnum samhliða vinnu. Hann var prófdóm- ari við lagadeild Háskóla Íslands til fjölda ára, stundakennari og síðar aðjúnkt í samkeppnisrétti við sama skóla. Hann hefur skrifað all- margar ritrýndar greinar á sviði lögfræði auk greina sem birst hafa í fjölmiðlum. Árið 1996 hlaut Hörður réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi, og fyrir Hæstarétti 2001. Hann hef- ur flutt fjölda mála á öllum dóm- stigum og fyrir EFTA dómstólnum. Hörður hefur verið áberandi í mörgum af stærri dómsmálum undanfarinna ára, jafnt í einka- málum sem sakamálum. Hörður hefur tekið virkan þátt í starfi KR og var sæmdur silfur- merki félagsins. Hann hóf snemma að stunda íþróttir og fór þar mest fyrir knattspyrnu. Gekk Hörður til liðs við KR um leið og hann hafði aldur til og vann til fjölmargra verðlauna í yngri flokkum. Vegna þrálátra meiðsla þurfti hann að leggja skóna á hilluna en sneri sér þá að golfiðkun og varð m.a. klúbb- meistari í Nesklúbbnum og spilaði með unglingalandsliði Íslands á Norðurlanda- og Evrópumóti 1997. Íþróttir spila enn stórt hlutverk í lífi Harðar og hefur hann m.a. stundað kraftlyftingar og hlaupið hálfmaraþon nokkrum sinnum, bæði innanlands og erlendis. Hjól- reiðar hafa bæst við í seinni tíð og Hörður jafnframt duglegur að stunda stangveiði, vatnasport af ýmsu tagi og skíði. Hörður var varamaður í áfrýj- unardómstóli KSÍ til fjölda ára og gegnir því starfi enn. Hann sat í stjórn Lögmannafélags Íslands 2009 til 2011 auk þess að sinna öðr- um verkefnum fyrir félagið. Þá hef- ur Hörður setið í stjórn margra fyrirtækja. Með knattspyrnuna í blóðinu Spurður hvort íþróttameiðslin hafi nokkuð bundið enda á það sem leit út fyrir að yrði glæstur knatt- spyrnuferill segir Hörður að í yngri flokkum hafi hann varla talist sá besti eða næstbesti í liðinu en lík- lega hafi þjálfurunum þótt hann hafa leiðtogahæfileika sem komu sér vel fyrir liðið og var Hörður gjarnan í stöðu miðvarðar. „Ég hafði gott auga og var þokkalega efnilegur, en líka seinþroska og full lítill á þessu tímabili í lífinu þó að ég hafi síðar orðið stærri og sterk- ari,“ segir hann en Hörður átti ekki langt að sækja hæfileikana því faðir hans, Hörður Felixson, og föður- bræður, þeir Bjarni og Gunnar Felixsynir, spiluðu allir með ís- lenska landsliðinu í knattspyrnu. Lengi býr að fyrstu gerð og hafa íþróttirnar fylgt Herði alla ævi. Strax á táningsaldri myndaði hann vinatengsl við félagana í KR sem hafa varað allt fram á þennan dag. Hörður Felix Harðarson hæstaréttarlögmaður – 50 ára Fyrirmynd Hörður með tveimur barna sinna, þeim Mikael og Kristel. Fékk gott uppeldi hjá KR Fjör Íþróttir, stangveiði og vatnasport af ýmsu tagi eru í uppáhaldi. Ljósmynd/ RÚV Tryggvi Aðalbjörnsson Áhrif Hörður hefur komið að fjölda mikilvægra dómsmála. 40 ára Rúna Birna fæddist í Reykjavík en ólst upp á Bolungarvík. Frá Vestfjörðum flutti hún til Danmerkur en þaðan lá leiðin til Auð- kúluheiði í Húnavatns- sýslu. Núna býr Rúna Birna á Leirvogstungu í Mosfellsbæ. Hún útskrifaðist sem viðskipta- og mark- aðsfræðingur frá HR 2005 og lauk MBA frá sama skóla 2014. Maki: Jón Örn Jónsson, f. 1976, umsjón- armaður fyrir Eþíópíumarkað hjá Reykjavik Geothermal. Börn: Kristján Hagalín Jónsson, f. 2003, Katla Rún Jónsdóttir, f. 2005, d. 2007, Arent Orri Jónsson, f. 2002, Steinun Thalia Jónsdóttir, f. 2003, Hjördís Arna Jóns- dóttir, f. 2010, Jakob Esra Jónsson, f. 2012. Foreldrar: Kristjana Arnadóttir hjúkr- unarfr., f. 1955 og G. Hagalín Guðmunds- son rafmagnstæknifr., f. 1954. Rúna Birna Hagalínsdóttir Til hamingju með daginn Reykjavík Viktor Nino L. Gunnlaugsson fæddist 28. júní 2019 kl. 0.07. Hann vó 3.686 g og var 54 cm langur. Foreldrar hans eru Lani P. Limotan og Gunnlaugur Einarsson. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.